Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Qupperneq 12
Spöngin 11, 112 Reykjavík Netfang stella@fmg.is. Glæsilegar nýjar íbúðir við Sóleyjarima í Grafarvogikynnir: Nýjar íbúðir í tveggja hæða fjölbýli við Sóleyjarima í Grafarvogi Íbúðirnar hafa allar sér inngang, stórar stofur og opin glæsileg eldhús. Tvö baðherbergi. Fataherbergi og baðherbergi inn af hjónaherbergi. Full innréttað þvottaherbergi. Steyptar verandir við íbúðir á 1.hæð, tvennar til þrennar svalir á íbúðum efri hæðar. Afar vandaður og glæsilegur frágangur í alla staði. Íbúðirnar eru tilbúnar og afhendast við kaupsamning án endanlegra gólfefna á stofu, eldhúsi og herbergjum. Sjón er sögu ríkari. Hafið samband við Sigurð á sigurdur@fmg.is, s.868 4687 eða Stellu á stella@fmg.is, s.824 0610 til að bóka skoðun. Sigurður Nathan Jóhannesson Aðstoðarmaður fasteignasala Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteignasali FORSETAVAKTIN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2016 Í vikunni fékkst staðfest að níunöfn yrðu á kjörseðlinum í for-setakosningum, en fyrir ekki svo löngu síðan leit út fyrir að þau gætu orðið mun fleiri, jafnvel 15 til 20. En jafnvel þótt fjöldinn hafi endað í níu einstaklingum er ljóst að ekki er hlaupið að því að koma þeim fjölda fyrir í sjónvarpssal svo vel sé. Frambjóðendur með tiltekið fylgi fengu þannig aðgang að sjónvarps- þætti á Stöð 2 á fimmtudag en aðrir ekki. Skiljanlega skapar þetta fyrir- komulag óánægju hjá þeim sem hafa ekki nægt fylgi til að komast að. En á alltaf að tala við alla eða er í lagi að ræða við nokkra frambjóðendur en sleppa öðrum? „Það er auðvitað þannig að það hvíla kannski ekki sömu skyldur á einkareknum og ríkisreknum fjöl- miðlum,“ bendir Valgerður Inga Jó- hannsdóttir, aðjúnkt í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, í samtali við blaðamann. Einkarekn- ir fjölmiðlar hafi þannig meira frelsi og geti hagað sínum þáttum eins og þeir telji að þjóni áhorfendum best. Hins vegar gefi það auga leið að ríkisfjölmiðill gæti ekki farið þessa leið. „Sjónarmiðin sem liggja ríkar til grundvallar hjá ríkisreknum fjöl- miðli væru t.d. ekki markaðssjónar- mið eða það að þóknast áhorfendum heldur það að miðillinn hefur ákveðnar skyldur gagnvart lýð- ræðislegri umræðu. En það sem gæti að einhverju leyti legið að baki hjá Stöð 2 er að þau telji áhorf- endum betur þjónað með því að tala bara við þá sem eiga raunverulega séns á að komast í stól forseta. En það má velta því fyrir sér hvort sú skylda er uppfyllt með því að sigta úr þá sem njóta ekki mikils fylgis samkvæmt skoðanakönnunum. Eitt sjónarmiðið er, burtséð frá því hversu raunhæfa möguleiki einhver á, að viðkomandi geti samt haft eitt- hvað fram að færa sem kjósendur og almenningur eru þá að fara á mis við. En á móti kemur að ef það eru of margir í útsendingu í einu verður tíminn sem hver og einn fær tak- markaður og hætta á að þetta verði leiðinlegt efni, bara stuttar spurn- ingar og svör,“ segir Valgerður. Fulltrúar Öryggis- og samvinnu- stofnunar Evrópu (ÖSE), sem sér um kosningaeftirlit víða um heim og gerir úttektir á fjölmiðlaumfjöllun vegna kosninga, komu á fund RÚV í vetur þegar verið var að útfæra regl- ur vegna kosninganna. Að sögn Rak- elar Þorbergsdóttur, fréttastjóra RÚV, bentu fulltrúar ÖSE þá á að það hefði sýnt sig að umræðuþættir með of mörgum þátttakendum væru almennt ekki góð þjónusta við kjós- endur. Betur færi á því að ræða við færri í einu og hver og einn fengi þannig meira rými þannig að kjós- endur næðu að átta sig á fyrir hvað þeir stæðu. RÚV ræðir við alla Að sögn Rakelar verður öllum fram- bjóðendum til forseta boðin þátttaka í kappræðum í sjónvarpssal. Þó sé mögulegt að hópnum verði skipt upp með einhverjum hætti. „Við getum aldrei sleppt neinum frambjóðanda, hvorki viljum það né getum. Það munu alltaf allir fá að taka þátt í umæðum hjá okkur en fjöldinn hefur orðið til þess að við höfum þurft að endurskoða og endurhugsa fyrirkomulagið. En það kemur aldrei til greina að útiloka neinn vegna slaks fylgis í skoðana- könnunum,“ segir Rakel. Þarf alltaf að tala við alla? RÚV hyggst ekki láta kannanir ráða því hverjir koma fram í umræðuþáttum líkt og Stöð 2 gerði í vikunni. Rök geta þó verið fyrir því að kjósendur fái meiri upplýsingar með því að hafa færri fram- bjóðendur í einu í sjónvarpssal. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Stöð 2 fór þá leið að bjóða einungis frambjóðendum með meira en 2,5% til kappræðna í sjónvarpssal. RÚV ætlar ekki að útiloka neinn frambjóðanda frá sínum umræðuþáttum. Morgunblaðið/Eggert 4 vikur TIL KOSNINGA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.