Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Síða 25
Fanney segir stílinn einfaldan og sígildan og einkennamildir tónar og þægilegt andrúmsloft heimilið.Fjölskyldan er á leigumarkaðnum og segir Fann-
ey þau hafa þurft að aðlaga sig að ýmsu en eina skilyrðið
sem hún setur þó er að íbúðin sé björt. „Það er alltaf hægt
að vinna sig áfram út frá því. Ég reyni að hafa ekki mikið
af dóti heldur vel ég hvern hlut vel með tilliti til fagurfræð-
innar og notagildis. Ég vil líka að krakkarnir geti hlaupið
um og leikið sér svo verðmætir hlutir fara upp í efstu
hillu.“
Aðspurð segist Fanney versla mikið til heimilisins á int-
ernetinu. „Mér finnst langskemmtilegast að kaupa hluti
milliliðalaust, t.d. á etsy og í gegnum instagram. Ég versla
samt sennilega mest í IKEA og í Hrím.“
Fanney, sem sækir innblástur til heimilisins í gömul
myndaalbúm og á Instagram, segir stofuna eftirlætisrými
sitt á heimilinu. „Hún er svo björt og skemmtileg. Ég er
breytingaóð svo hún er aldrei eins lengi,“ segir hún og
bætir við að eldhúsborðið sé þó einskonar griðastaður fjöl-
skyldunar. „Uppahaldsstundirnar mínar eru þegar við
sitjum saman og borðum, hvort sem það er cheerios eða
steik. Þá er bannað að vera í símanum eða horfa á sjón-
varpið. Algjörlega heilagar stundir.“
Aðspurð hvað sé á óskalistanum inn á heimilið nefnir
Fanney borðstofuborð frá Agustav, Anatomy of letters
eftir Sigríði Rún, Gym-snaga frá Hay og marglyttumynd
eftir Heiðdísi Helgadóttur ásamt öllu sem danska hönn-
unarhúsið Woud framleiðir. Fanney Svansdóttir hönnuður.
Brio-eldavélin er sæt í barnaherberginu.
Fjölskyldan nýtur vanalega góðra samverustunda við eldhúsborðið. Ljósið er
frá HK Living en borðið er frá Ikea með fótum frá Prettypegs.
Smekklegt heimili
á Selfossi
Fanney Svansdóttir, sem hannar og framleiðir barnafatnað úr alpaca-ull
undir merkinu Ylur, hefur komið sér vel fyrir ásamt sambýlismanni sínum
Arnari og börnum þeirra Aroni Elí og Rán í bjartri og notalegri íbúð.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
’Ég reyni að hafa ekkimikið af dóti heldurvel ég hvern hlut vel meðtilliti til fagurfræðinnar
og notagildis.
Þetta skemmtilega barnarúm smíðaði parið.
Krúttlegur ruggustóll í barnaherberginu.
Falleg peysa frá Yl.
Skemmtilegar fígúrur skreyta barnaherbergið.
29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
HELGAR
SPRENGJA
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með
fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
Danskir hægindastólar. Til í leðri
og áklæði. Hallanlegir með snúningi.
Fáanlegir í mörgun litum í leðri.
Stærð: 77 × 75 × 109 cm
Leðurstóll með skemli
119.800 kr. 149.980 kr.
AFSLÁTTUR
20%
LEVANTO