Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Qupperneq 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Qupperneq 35
29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 við værum búnar að gera og þegar við sögðum að við værum búnar með þessa toppa fékk maður aðeins meiri virðingu. Þetta voru alveg al- vöru hjólreiðar,“ segir Sigga, en dag- arnir gátu verið langir og strangir. „Við vorum að fara út klukkan níu á morgnana og komum heim sex á kvöldin. Einn daginn komum við beint í matinn í hjólafötunum. Það vakti ekki mikla kátínu hjá vertinum, að við værum ekki búnar að punta okkur eða fara í sturtu. Við þurftum að lofa því að gera þetta aldrei aftur,“ segir Sigga og hlær. Samvinna kemur manni áfram Ferðin tók viku en fyrsta daginn var frí vegna þess að töskurnar skiluðu sér ekki. „Við fórum bara í búðir, hvað annað!“ segir Sigga hlæjandi. Flestar fóru út með sín eigin hjól en hótelið sem þær voru á er sérstaklega hannað með þarfir hjólafólks í huga. Þar er hægt að setja hjólið í viðgerð og fá það þrifið og fékk hver kona sinn eigið hjólastand í kjallaranum. „Þetta er svolítið eins og í skíðaferð- unum nema að fólk er á hjóli.“ Sigga segir að Mallorca sé mjög hentug eyja til hjólreiða. Þar eru fjöl- breyttar leiðir og bæði hægt að velja ólíkar vegalengdir og einnig hversu bratt maður vill hafa það. „Það er svo fjölbreytt landslag og þetta eru svona hálfgerðar æfingabúðir,“ segir Sigga, en hópnum var skipti í tvennt, hrað- ari hóp og hægari. „Það er léttara að Það hefur víst ekki farið framhjáneinum að hjólreiðar eru nýj-asta æðið á Íslandi og sífellt fleiri ákveða að setjast á reiðfák og láta vindinn leika um andlitið á með- an brunað er eftir veginum. Hjólreið- ar sameina útivist og góða hreyfingu á sama tíma og ný svæði eru könnuð. Sumir láta sér ekki nægja að hjóla um litla Ísland, en boðið er upp á hjólaferðir til fjarlægðra landa hjá sumum ferðaskrifstofum. Þá er hægt að slá margar flugur í einu höggi; skoða nýtt land, borða framandi mat, vera úti í náttúrunni og hreyfa sig um leið. Svo er það auðvitað áskorun að takast á við nýjar brekkur eða langar vegalengdir daglega í nýju landi um leið og fólk kynnist vel hópnum sínum og eignast nýja vini. Fékk hjólabakteríuna Sigríður, ávallt kölluð Sigga, er ein þeirra sem fengið hafa bakteríuna. Hreyfing er henni ekki ókunn, þar sem hún hefur kennt líkamsrækt í áratugi hjá Hress í Hafnarfirði, en hjólreiðar hafði hún ekki stundað mikið fyrr en nýlega. Hún fór í sína fyrstu hjólaferð út fyrir landsteinana með manni sínum til Tenerife um ára- mótin. Nú er hún nýkomin frá Mal- lorca, þar sem 22 konur brunuðu saman á hjólunum sínum. „Ferðin hét „Mallorca stelpa“ og var skipulögð af Úrvali Útsýn. Ég var rosa spennt af því ég hafði líka farið til Tenerife á milli jóla og nýárs. Maður getur valið að vera með þetta ótrúlega erfitt eða léttara en enginn er sprengdur. Ég ákvað að fara aftur og fara í kvenna- reið. Þetta voru alls konar konur í alls konar formi og það var verið að hjóla 40-160 kílómetra á dag. Hver dagur hafði sinn sjarma og sína upplifun. Einn daginn var maður að hjóla bratt í snákabrekkum og svo annan dag að hjóla flatari brekkur framhjá engj- um. Svo var alltaf stoppað í hádeg- ismat á skemmtilegum stöðum,“ seg- ir Sigga. Virðing að hjóla á toppana „Við tókum fjóra toppa af átta sem er talað um að hjólarar verði að gera á Mallorca. Þegar við hittum aðra hjól- ara voru þeir að fiska eftir því hvað hjóla í hópi. Samvinna kemur manni áfram. Við erum að vinna saman líka,“ segir hún. Sigga segir að það hafi verið möguleiki á að taka leigubíl heim ef fæturnir væru að gefa sig. „Þú getur gert þetta eins og þú vilt.“ Mikið hlegið í ferðinni Kostirnir eru margir við svona ferðir að hennar sögn. „Það er svo gaman að vera úti í góðum félagsskap, hreyfa sig, borða góðan mat og kynnast þess- um konum. Það er mikið hlegið,“ segir Sigga. „Miðað við göngur kemst fólk yfir miklu meira svæði á hjóli. Þetta er miserfitt. Þegar það er mikið af brekk- um er þetta svolítið puð en þetta er aldrei leiðinlegt. Maður setur sér bara lítil markmið.“ Sigga segir það ótvíræðan kost við svona hjólaferðir að maður megi borða eins og maður geti í sig látið. Hún segir matinn hafa verið ein- staklega góðan á hótelinu. „Ertu ekki að grínast? Við átum eins og ég veit ekki hvað! Maður gat fengið sér eftir- réttahrúgu án þess að fá samviskubit. Og maður þarf að borða rosalega vel til þess að næsti dagur gangi vel. Ég mæli sko með svona ferðum!“ segir Sigga, sem stefnir á hjólaferð um Alpana í júní. Hver dagur með sinn sjarma Hjólaferðir til útlanda njóta vaxandi vinsælda. Í slíkum ferðum er hægt að upplifa náttúruna á annan hátt en úr bíl. Sigríður Einarsdóttir íþrótta- kennari er komin með hjólabakteríuna, en hún er nýkomin frá Mallorca þar sem hún lagði mörg hundruð kílómetra að baki. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Landslagið á Mallorca er fjöl- breytt; bæði flatlendi og fjöll. Það var mikið stuð í hópnum og oft fagnað þegar toppi var náð. Víða var stoppað til að snæða og fengu þá hjólin hvíld á meðan. Sigga tekur sig vel út á hjólinu. Sigríður Einarsdóttir með íslensku „Mallorca- stelpurnar“ fyrir aftan sig. Nýr og glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Fjölbreyttur og vandaður matseðill. Pantaðu borð í síma 483 4700

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.