Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2016, Page 43
29.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Salka Valka er ein af mínum uppá-
haldsbókum og eiginlega fyrsta
bókin sem ég las á ís-
lensku. Ég bjó erlendis
sem barn og þegar við
fluttum heim var ég á
tólfta ári. Pabbi vildi
endilega að við systk-
inin læsum eitthvað á íslensku, en
við vildum bara lesa enskar bækur.
Hann sagðist myndu borga okkur
einn eyri fyrir hverja blaðsíðu sem
við læsum á íslensku og ég las
Sölku Völku og fékk fimm krónur
fyrir. Eftir það þurfti ekki að borga
mér fyrir að lesa á íslensku, ég var
komin á bragðið.
Svo er það amerísk
klassík sem ég held
mikið upp: A Tree
Grows in Brooklyn eft-
ir Betty Smith sem gef-
in var út í Bandaríkjunum 1943 og
kom út á íslensku 1946. Ég las hana
fyrst þegar ég var í ameríska skól-
anum í París og svo aftur og aftur
og aftur, ég veit ekki hvað ég hef
lesið hana oft. Hún höfðaði mjög til
mín þegar ég las hana fyrst og ger-
ir það enn.
Þriðja bókin sem
mig langar að nefna er
Anna Karenina eftir
Tolstoj, hún er líka í
miklu uppáhaldi og ég
hef lesið hana mörg-
um sinnum. Hún hefur
líka verið þýdd á íslensku og það er
ágæt þýðing.
Áslaug
Agnarsdóttir
Hjörtur Pálsson
fagnar 75 ára
afmæli með
ljóðasafni.
Morgunblaðið/Eggert
BÓKSALA 18.-24. MAÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 KakkalakkarnirJo Nesbø
2 Í úteyjumFerdinand Jónsson
3 Þjóðaplágan ÍslamHege Storhaug
4 Hugrekki - Saga af kvíðaHildur Eir Bolladóttir
5 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante
6 Dalalíf IGuðrún Árnadóttir frá Lundi
7 Bak við luktar dyrB.A. Paris
8 VélmennaárásinÆvar Þór Benediktsson
9 JárnblóðLiza Marklund
10 Dalalíf IIGuðrún Árnadóttir frá Lundi
1 KakkalakkarnirJo Nesbø
2 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante
3 Dalalíf IGuðrún Árnadóttir frá Lundi
4 Bak við luktar dyrB.A. Paris
5 JárnblóðLiza Marklund
6 Dalalíf IIGuðrún Árnadóttir frá Lundi
7 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante
8 Þar sem fjórir vegi mætastTommi Konnunen
9 VinkonurRagna Sigurðardóttir
10 Það sem ekki drepur mannDavid Lagercrantz
Allar bækur
Íslenskar kiljur
MIG LANGAR AÐ LESA
Ekki þarf lengi að grúska í mann-
kynssögunni til að átta sig á því að
þar er fátt um konur. Forsvarskon-
ur fyrirtækis sem framleiðir barna-
efni, þær Elena Favilli og Fran-
cesca Cavallo, einsettu sér að bæta
úr því með bók sem færa myndi
sögur af merkiskonum.
Þær reka fyrirtæki sem þær
nefna Timbuktu Labs og hrintu af
stað Kickstarter-söfnun í apríl síð-
astliðnum til að gera bók um 100
konur úr mannkynssögunni, allt
fram á okkar daga. Þær skrifuðu
sögu þeirra sem ævintýri, fengu
100 listakonur til að myndskreyta
sögurnar og kölluðu bókina Kvöld-
sögur handa uppreisnarstelpum.
Kickstarter-söfnun þeirra byggð-
ist á því að safna nógu fé til að geta
lokið við hönnun og prentað af bók-
inni 1.000 eintök, samtals um hálfa
fimmtu milljón króna. Undirtekt-
irnar voru aftur á móti öllu betri,
svo góðar reyndar að engin bók
hefur safnað öðru eins fé á Kick-
starter – alls söfnuðust ríflega 70
milljónir þegar upp var staðið.
Kickstarter-söfnun fyrir bókina Kvöldsögur handa uppreisnarstelpum
skilaði ríflega 70 milljónum króna.
Kvöldsögur fyrir stelpur
KVENHETJUR
www.gilbert.is