Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Það voru fleiri en mannfólkið sem nutu blíðviðr- isins sem var á landinu í gær. Gárungar höfðu það á orði að nú væri sumarið loksins komið og gæsamamma og ungar hennar virtust sammála því þegar þau spígsporuðu við Njarðargötu í gær. Þó að veðrið hafi verið gott um allt land var það sérstaklega gott á Austurlandi og mældist hiti víða yfir 20 gráðum, hæstur á Egilsstöðum, 23 gráður. Von er á góðviðriskafla næstu daga. Von er á góðviðriskafla næstu daga Morgunblaðið/Árni Sæberg Gæsafjölskyldan ánægð með blíðviðrið Skúli Halldórsson sh@mbl.is Frumvarp Illuga Gunnarssonar menntamála- ráðherra um breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna verður ekki á dagskrá þingsins til fyrstu umræðu áður en sumarleyfi þess hefst. „Mikill ágreiningur var um málið og niðurstað- an varð sú að það verður ekki mælt fyrir því fyrir þingfrestun,“ segir Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, í samtali við Morgunblaðið. Skýri kannski lítið fylgi Samfylkingar Illugi segir að sér finnist sem stjórnarand- staðan hafi tekið ranga ákvörðun, að beita sér gegn málinu með þessum hætti. „Nú höfum við tækifæri til að taka upp námslána- og styrkjakerfi að norrænni fyrir- mynd og þá hlýtur það að vekja mikla furðu að Samfylkingin, sem lagt hefur mikla áherslu á þær norrænu fyrirmyndir sem við höfum, skuli, þegar skýrt frumvarp er á borðinu, ekki einu sinni vilja taka málið til nefndar. Kannski skýrir þessi málsmeðferð að nokkru leyti hvers vegna þeim flokki gengur svona illa að öðlast traust kjósenda.“ Hann segist þó vonast til að frumvarpið nái að verða að lögum í haust, áður en þingi verður slitið fyrir kosningar. „Ég ætla að vera bjartsýnn á það. Ef frum- varpið yrði að lögum þá myndi greiðslubyrði 85% námsmanna verða léttari en áður var og styrkjum dreift með mun sanngjarnari hætti.“ Samstaða um sumarhlé síðdegis í dag Stefnt er að því að sumarhlé verði gert á þingfundum síðdegis í dag og virðist samstaða um það á meðal þingflokkanna. „Við miðum við að ljúka þessu fyrir dags- lok,“ segir Einar. Meðal annars eru húsnæðis- frumvörp Eyglóar Harðardóttur félagsmála- ráðherra eitt af öðru á leið í gegnum þingið. „Þau mál sem eru á annað borð tilbúin af hálfu velferðarnefndar verða kláruð.“ Nefndin kom saman í gærkvöldi til að freista þess að afgreiða húsnæðisbótafrumvarpið, en fyrr í vikunni afgreiddi hún frumvörp um al- mennar íbúðir og leigulög. Þá segir Einar það ljóst mál að búvörusamn- ingnum verði ekki lokið að sinni. Áfram verði þó unnið að honum á nefndadögum sem í hönd fari í næstu viku. Einlægur vilji hjá öllum inni á þinginu „Það kom mér á óvart hvað þetta hefur gengið vel,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þing- flokksformaður Pírata. „En við erum ekki beint í þinglokum, það er ágætt að halda því til haga. Við erum því að ýta þeim málum sem ekki eru tilbúin yfir á haustið, og þau mál sem eru tilbúin hafa fengið að rúlla í gegn á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Það hefur verið einlægur vilji hjá öllum inni á þinginu að taka þennan legg á þann veg að þingið geti öðl- ast ofurlítið traust og trúnað að nýju.“ Hún tekur fram að hún sé ánægð með þing- flokksformenn meirihlutans. „Þeir stóðu sig mjög vel í þessum samninga- viðræðum. Það er svolítið sérstök stemning hérna á Alþingi að mínu mati. Fólk er einhvern veginn öðruvísi en ég hef upplifað áður.“ LÍN-frumvarpið bíður haustsins  Ekki tekið á dagskrá Alþingis vegna mikils ágreinings  Menntamálaráðherra segist bjartsýnn á að frumvarpið verði að lögum í haust  Sérstök stemning inni á Alþingi, segir þingflokksformaður Pírata Einar K. Guðfinnsson Illugi Gunnarsson Birgitta Jónsdóttir „Það var aldrei vafi á því að við næðum til þeirra en þetta voru laus- ar skriður og erfitt og leiðinlegt brölt. Það var kannski aðallega það; hætta á grjóthruni sem gerði þetta erfiðara en ella,“ segir Ólafur Tryggvi Ólafsson, undanfari í björgunarsveitinni Súlum á Akur- eyri, í samtali við mbl.is í gær. Hann er einn þeirra sem tóku þátt í að bjarga erlendu pari sem lenti í sjálfheldu í Nesskriðum í Siglunesmúla við austanverðan Siglufjörð í fyrrinótt. Parið hafði samband við Neyðarlínuna á tólfta tímanum í fyrrakvöld og óskaði eftir aðstoð. Það hafði komið fótgangandi úr Héðinsfirði og var á leið til Siglu- fjarðar þegar það lenti í sjálfheldu á svæði þar sem er bratt fjalllendi niður að sjó. Hátt í fjörutíu manns tóku þátt í aðgerðinni ásamt lög- reglu. Björgunarsveitarfólk frá Ak- ureyri, Dalvík, Ólafsfirði og Siglu- firði lagðist á eitt til að koma fólkinu niður heilu á húfi og tókst vel til að mati Ólafs Tryggva. larahalla@m- bl.is „Lausar skriður og erfitt“  Par lenti í sjálfheldu í Nesskriðum í Siglunesmúla  Hátt í fjörutíu manns tóku þátt í björgunaraðgerðum auk lögreglu Ljósmynd/Ólafur Tryggvi Ólafsson Björgun Hátt í fjörutíu manns tóku þátt í leitinni auk lögreglu. Hún gekk vel. Tíðarfar var hagstætt í maí þó að þurrkur hafi víða háð gróðri fram eftir mánuði. Hiti var yfir meðallagi 1961 til 1990 en þó var að tiltölu kaldara um landið suðvestanvert en í öðrum landshlutum. Þrátt fyrir þurrviðri var veður heldur þungbúið lengst af um landið sunnan- og vest- anvert. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri samantekt á vef Veðurstofu Íslands um tíðarfar í maí. Meðalhiti á Akureyri var 6,8 stig, 1,3 stigum yfir meðaltali 1961 til 1990 og 0,9 stigum yfir meðaltali síð- ustu tíu ára. Mældist meðalhiti þar sá hæsti á landinu í mánuðinum auk Hafnar í Hornafirði þar sem með- alhitastig var einnig 6,8 stig. Al- mennt var mánuðurinn í þurrara lagi, sérstaklega syðst á landinu, þar austan við og norður með Aust- fjörðum. Á þeim slóðum er mán- uðurinn í hópi þurrustu maímánaða. Hagstætt en þurrt veðurfar einkenndi maímánuðinn Morgunblaðið/Styrmir Kári Þurr Maímánuður var nokkuð hlýr og þurr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.