Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 ALLTAFAÐÆFA. ALLTAFAÐKEPPA. ALLTAFAÐSANNAMIG. LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR LEYNIVOPN.IS TÆKIFÆRIÐ ER NÚNA „ “ Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu. Íslandsstofa sér um landkynningar- verkefni í tengslum við Evrópu- meistaramótið í knattspyrnu karla sem haldið verður í Frakklandi dag- ana 10. júní til 10. júlí. Öllum þátt- tökuþjóðum á mótinu gefst kostur á að vera með í sameiginlegu land- kynningarverkefni á Signubökkum, sem skipulagt er af Parísarborg. Ísland verður með alhliða kynn- ingu á landi og þjóð á svæðinu, í samstarfi við utanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðu- neytið, atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið og sendiráð Íslands í Frakklandi. Markmið verkefnisins er að kynna Ísland og íslenska menningu í Frakklandi, að því er fram kemur á vef Íslandsstofu. Af því tilefni verð- ur m.a. efnt til margvíslegra list- og matarviðburða í París, sem og í hin- um borgunum þar sem íslenska landsliðið mun spila leiki sína, St. Etienne og Marseille. Ísland verður með kynningaraðstöðu á Signubökk- um en einnig verður þjóðhátíðar- dagur Íslendinga haldinn hátíðlegur með skrúðgöngu með íslensku fjall- konuna í fararbroddi. Boðið verður upp á matarkynningar á Signubökk- um þar sem landsliðskokkurinn og keppandi fyrir Íslands hönd í Bo- cuse d‘Or keppninni, Viktor Örn Andrésson, mun matreiða rétti úr ís- lensku hráefni. Þá tekur Ísland þátt í samevrópsku grafíklistaverki sem málað verður. Myndlistarmaðurinn Arngrímur Sigurðsson hannaði verkið fyrir Ís- lands hönd og verður það málað á 60 fermetra flöt. Gert er ráð fyrir að um 50.000 gestir leggi að jafnaði leið sína um Signubakka í viku hverri og má bú- ast við að fjöldinn margfaldist á meðan á mótinu stendur. Ísland kynnt á Signubökkum  Fjallkonan í fararbroddi 17. júní Morgunblaðið/Golli EM í knattspyrnu Stuðningsmenn- irnir verða í stóru hlutverki. ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Frambjóðendur til embættis for- seta Íslands hafa verið á ferð og flugi undanfarið. Guðni Th. Jóhann- esson varð í gær fyrstur til að opna kosningaskrifstofu á Akureyri.    Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, er flutt í gamalt og glæsileg uppgert hús í Innbænum. Húsið, Aðalstræti 14, er nefnt Gamli spítali eða Gudmanns Minde.    Akureyrarbær og Aflið gengu í vikunni frá samningi um samstarf sem felur í sér aukinn stuðning bæjarins með því að leggja til hús- næðið en það sem Aflið hafði áður til umráða var fyrir löngu orðið allt of lítið.    Markmið samningsins er að efla þjónustu við þolendur heimilis- og kynferðisofbeldis og aðstandendur þeirra og auka samstarf þeirra sem vinna með fólki sem glímir við afeiðingar þess. Þá á að efla for- varnir og samstarf þeirra sem vinna að forvarnarstarfi innan málaflokkanna, sérstaklega gagn- vart börnum.    Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri segir Aflið hafa unnið ómetanlegt starf í samfélaginu og langt út fyrir sveitarfélagið. „Það er mikilvægt fyrir Akureyrarbæ að geta aðstoðað þennan öfluga hóp kvenna, sem stendur að baki starfinu,“ segir Eiríkur. Hann sagði óskastöðuna þá að starfsemi Aflsins yrði óþörf og samtökin þyrftu enga aðstöðu, en því væri því miður ekki að heilsa.    Sigrún Finnsdóttir, formaður Aflsins, segir tímamótin sérstaklega mikilvæg og geri samtökunum kleift að auka og þróa þjónustuna enn frek- ar við þolendur heimilis- og kyn- ferðisofbeldis. „Mjög ánægjulegt er að finna fyrir auknum stuðningi og skilningi í samfélaginu og þeirri vit- undarvakningu sem skilar sér í því að fleiri sækja sér hjálp, sem enga fengu áður,“ segir Sigrún.    Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og af því tilefni verður haldin fjölbreytt hátíð á Akureyri. Sjómannamessur verða í Akureyr- ar- og Glerárkirkju og hátíðardag- skrá fyrir unga sem aldna við Hof, þar sem m.a. koma fram bræðurnir og söngvararnir Friðrik Dór og Jón Jónsson. Í boði verður að sigla með Húna, Ambassador og Hafsúlunni frá Torfunefsbryggju að Sandgerð- isbót og til baka í fylgd smábáta.    Gunnar Þórðarson og Magnús Kjartansson, meðlimir Trúbrots þegar hljómsveitin var og hét, léku öll bestu lög hennar ásamt öðrum framúrskarandi listamönnum um síðustu helgi á Græna hattinum við mjög góðan orðstír. Hugur fjöldans reikaði mörg ár aftur í tímann og greinilegt að tónleikarnir voru mikil upplifun, enda ekki á hverjum degi sem meistaraverkið Lifun og annað góðgæti úr safni Trúbrots er í boði í lifandi flutningi. Með félögunum á sviðinu var m.a. hljómsveitin Mezzo- forte eins og hún lagði sig Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Upp-Lifun Gömlu Trúbrotsfélagarnir og meðreiðarsveinar þeirra fóru á kostum. Frá vinstri: Eyþór Gunnarsson, Magnús Kjartansson, Jóhann Ásmundsson, Friðrik Karlsson, Stefanía Svavarsdóttir og Gunnar Þórðarson. Aflið í nýtt, gamalt húsnæði Morgunblaðið/Skapti Afl Sigrún Finnsdóttir, formaður Aflsins, og Eiríkur Björn Björg- vinsson, bæjarstjóri á Akureyri. Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Stofnun Flugþróunarsjóðs með það að markmiði að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík er lyftistöng fyrir ferða- þjónustuna á Norðurlandi, en stjórn sjóðsins tók til starfa í síðustu viku. Þetta segir Arnheiður Jóhannsdótt- ir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, sem hefur yfirumsjón með Flugklasanum Air66N sem er samstarfsverkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu á Norðurlandi, sveit- arfélaga, stofnana og annarra hags- munaaðila. Klasinn vinnur að markaðssetn- ingu og kynningu Akureyrarflug- vallar sem nýs áfangastaðar fyrir millilandaflug árið um kring. Alls eru það 10 sveitarfélög sem styrkja verkefnið og flest þeirra hafa gert þriggja ára samning sem rennur út í árslok 2017. „Einhver sveitarfélög voru með eins árs samning en sam- þykktu nýlega að framlengja, til dæmis Skagafjörður. Þetta er góður stuðningur og það hefur verið mikil áhersla hjá sveitarfélögunum að ná þessu í gegn,“ segir Arnheiður. Þarf að efla Akureyrarflugvöll Arnheiður segir vinnu flugklasans vera langhlaup en ekki spretthlaup. „Þetta verkefni er sett upp til margra ára og það má alveg gera ráð fyrir að það taki 5-10 ár að ná flug- félagi hingað, alveg eins og með aðra velli úti í heimi,“ segir Arnheiður. Hún bendir á að ýmsu sé ábótavant í öryggismálum á Akureyrarflugvelli sökum fjármagnsskorts. „Nú þegar Keflavíkurflugvöllur er orðinn svona mikið nýttur er Akureyrarflugvöllur á sama tíma ekki í stakk búinn til að sinna hlutverki sínu sem varavöllur. Ef margar flugvélar þyrftu að lenda þar kæmi strax upp vandamál. Þetta er eitt af þeim málum sem koma upp hjá klasanum í þeirri vinnu sem snýr að millilandaflugi þannig að völlur- inn sé tilbúinn. Við hjá klasanum höfum alltaf sagt að völlurinn geti tekið við þessu,“ bætir hún við. Hún segir að tilkoma Flugþróun- arsjóðs skipti miklu í þessari vinnu og hún finni aukinn áhuga Íslend- inga á að bæta dreifingu ferðamanna með því að fá millilandaflug á aðra staði. „Þetta er allt að koma. Flug- klasinn er lausn á mörgum vanda- málum sem eru efst í baugi í ferða- þjónustunni núna,“ segir Arnheiður. Flugklasinn eflir ferðaþjónustuna  Bjartsýn á að Akureyrarflugvöllur taki við millilandaflugi á næstu árum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Arnheiður telur að efla þurfi Akureyrarflugvöll sem fyrst. Flugklasinn AirN66 » Flugklasinn Air 66N er sam- starfsverkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu, sveitarfélaga, stofnana og annarra hags- munaaðila á Norðurlandi. » Flugþróunarsjóður var sett- ur á fót fyrr á þessu ári, en stjórn sjóðsins tók til starfa í síðustu viku. » Störf sjóðsins skipta miklu máli fyrir flugklasann og ferða- þjónustu á Norðurlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.