Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is Moules Frites Bière Bláskel með frönskum og bjór 3490,- alla fimmtudaga Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Forsætisráðherra Íraks, Haider al- Abadi, sagði í gær að her landsins hefði þurft að gera hlé á árásum sín- um á vígamenn samtakanna Ríkis ísl- ams í miðborg Fallujah vegna hættu á mannfalli meðal íbúanna. Talið er að um 50.000 íbúar séu enn í borginni og eru að minnsta kosti 20.000 þeirra börn, að sögn Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna, UNICEF. Fulltrúi UNICEF í Írak, Peter Hawkins, sagði í gær að mörg barnanna ættu á hættu að vígamenn Ríkis íslams neyddu þau til að berjast með þeim gegn stjórnarhernum. Neyðarástand í borginni Aðeins nokkur hundruð fjölskyldna hafa komist frá Fallujah frá því að herinn hóf sókn sína að borginni 22. maí. Haft er eftir fólki sem hefur sloppið þaðan að mikill skortur sé á matvælum, hreinu drykkjarvatni og lyfjum. Engin hjálpargögn hafa borist til Fallujah frá því í september í fyrra og íbúarnir hafa lifað á döðlum, dýra- fóðri og óhreinu vatni úr Efrat-fljóti. Rafmagnslaust hefur verið þar í rúm þrjú ár. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna segja að vígamenn Ríkis ísl- ams noti hundruð fjölskyldna í borg- inni sem skildi af holdi og blóði til að verjast árásum stjórnarhersins. Fallujah er næstfjölmennasta borg- in á valdi Ríkis íslams í Írak, á eftir Mosul í norðanverðu landinu. Víga- menn samtakanna hafa veitt harðari mótspyrnu í Fallujah en í þeim bæjum sem stjórnarherinn hefur náð á sitt vald á síðustu mánuðum. Þeir hafa notað Fallujah til að undirbúa sprengjutilræði í Bagdad og hermt er að þeir telji borgina svo mikilvæga að þeir séu tilbúnir að fórna lífi sínu til að reyna að verja hana. Alls búa um 592.000 manns í um- setnum borgum og bæjum í Sýrlandi, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Um fjórar milljónir til viðbótar lifa á svæð- um sem erfitt er að veita neyðar- aðstoð. Um 20.000 börn í hættu vegna átakanna í Fallujah  Vígamenn Ríkis íslams nota íbúa borgarinnar sem skildi af holdi og blóði AFP Barni bjargað Björgunarmenn flytja smábarn úr rústum byggingar sem eyðilagðist í loftárás Rússa á borgina Idlib. Lengstu járnbrautargöng í heim- inum voru opnuð formlega í Sviss í gær, nær sjö áratugum eftir að fyrstu teikningarnar af þeim voru lagðar fram. Göngin eru 57,4 kíló- metra löng, liggja undir Alpana í Sviss og segja þarlend stjórnvöld þau valda byltingu í lestasam- göngum milli Norður- og Suður- Evrópu. Svissneski verkfræðingurinn Carl Eduard Gruner lagði fram fyrstu teikningarnar af göngunum árið 1947 en ýmsar hindranir, m.a. vandkvæði á fjármögnun þeirra, urðu til þess að framkvæmdirnar hófust ekki fyrr en árið 1999. Framkvæmdirnar stóðu í sautján ár og kostuðu rúmlega 12 millj- arða svissneskra franka, jafnvirði 1.515 milljarða króna. Að sögn fréttaveitunnar AFP var notuð 410 metra löng vél sem boraði göngin, flutti jarðveg í burtu og setti upp forsteypta veggi þeirra. Meira en 28 milljónir tonna af jarðvegi voru fluttar í burtu og 125 manns unnu við framkvæmd- irnar á þrískiptum vöktum. Níu manns létu lífið í göngunum, að sögn BBC. Göngin eru um það bil 3,5 km lengri en næststærstu járn- brautargöng heimsins, Seikan- göngin í Japan, sem eru 53,9 km löng. Ermarsundsgöngin eru þau þriðju stærstu, 50,5 km löng. Fljótari, öruggari, ódýrari Gert er ráð fyrir því að 260 flutningalestir og 65 farþegalestir fari um göngin dag hvern. Ferða- tími lesta milli Zürich og Mílanó styttist um klukkustund og verður um tvær stundir og 40 mínútur. Flutningarnir um göngin verða fljótari, öruggari og ódýrari og gert er ráð fyrir því að um göngin fari vörur sem hafa verið fluttar með flutningabílum í um milljón ferða á ári. bogi@mbl.is Lengstu járnbrautargöng í heiminum: 57,4 km löng Opnuð fyrir umferð í desember næstkomandi Erstfeld Erstfeld Hæð 460 m Hæð 549 m Aðkomugöng, loftræstileiðslur Aðkomugöng Hæð 312 m Airolo Göschenen BiascaBodio Bodio Eldri járnbrautEldri göng Ný göng Gotthard-jarðgöngin Heimild: Svissneska lestafyrirtækið SBB Mílanó50 km ÍTALÍA FRAKKLAND SV ISS ÞÝSKALAND AUSTURRÍKILIE. Genf Zürich Freiburg Basel Lengstu járnbrautar- göng heimsins opnuð  Sögð valda byltingu í lestasamgöngum um Alpana Franskir rannsóknarmenn stað- festu í gær að frönsk flugvél hefði greint merki frá flugrita farþega- þotu EgyptAir sem hrapaði í Mið- jarðarhaf 19. maí. Gert er ráð fyrir því að leitarskip með fjarstýrðum köfunarróbóta, sem getur farið nið- ur í 3.000 metra dýpi, komi á svæð- ið í næstu viku. Ekki er vitað hvað olli því að far- þegaþotan hrapaði í Miðjarðarhaf, en ef flugritinn finnst getur hann veitt mikilvægar vísbendingar um orsökina. Rannsóknarmenn hafa ekki útilokað þann möguleika að hryðjuverkamenn hafi grandað þotunni en einnig er talið mögulegt að þotan hafi farist vegna bilunar eða mistaka flugmanna. Leitarmenn hafa fundið brak úr þotunni og leifar af farangri auk fatnaðar en flak hennar hefur ekki enn fundist. 66 manns voru í þotunni, þar af 56 farþegar, þegar hún hrapaði á leiðinni frá París til Kaíró. Frakkland AFP Sorg Starfsmenn EgyptAir í Kaíró minnast þeirra sem saknað er. Greindi merki frá flugrita

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.