Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Leikarinn Darri Ingólfsson fer með lítið hlutverk í kvikmyndinni Money Monster sem Jodie Foster leikstýrir og George Clooney og Julia Roberts fara með aðalhlutverkin í. Í mynd- inni segir af því er stjórnandi fjár- málaþáttarins Money Monster, Lee Gates (Clooney), er tekinn í gíslingu í beinni útsendingu af ungum manni, Kyle Budwell, sem tapaði aleigu sinni eftir að hafa keypt hlutabréf sem Lee mælti með í þættinum. Budwell er leikinn af Jack O’Connell, Ro- berts fer með hlutverk útsend- ingarstjóra þátt- arins og Darri leikur íslenskan tölvuhakkara sem persónur Clooney og Roberts leita aðstoðar hjá. „Ég tala íslensku með stráki sem lék á móti mér, Svavari Krist- jánssyni sem býr í New York,“ segir Darri. Darri býr og starfar í Los Angeles og segir hann að „casting director“ myndarinnar, þ.e. sá sem velur leik- ara í prufur og metur þá, þekki hann og hafi vitað hann væri Íslendingur. Hann hafi haft samband við hann og þannig hafi hann landað hlutverkinu. Eftirlíking af hæð í íslensku bárujárnshúsi En hvernig var að starfa með Ósk- arsverðlaunaleikkonunni og leik- stjóranum Jodie Foster? „Hún var rosalega almennileg, auðvelt að vinna með henni. Við vor- um að spjalla aðeins saman meðan við vorum að bíða milli taka og það var góð upplifun að vinna með henni. Hún virkaði á mig sem öruggur leik- stjóri, hefur náttúrlega verið í bransanum lengi,“ segir Darri. Tökurnar sem Darri lék í fóru fram í myndveri í New York þar sem búið var að smíða eftirlíkingu af efri hæð íslensks bárujárnshúss. „Það var þarna alls konar íslenskt nammi, íslensk húsgögn og annað sem mað- ur þekkir að heiman,“ segir Darri kíminn. Eitt ár eða þar um bil er liðið frá tökunum og segir Darri að hann hafi ekki hitt Clooney og Roberts. Þeir Svavar hafi leikið saman í einu atriði myndarinnar og þar af leiðandi ekki hitt stjörnurnar. Ánægður með kvikmyndina -Liðkar það ekki fyrir, upp á fram- tíðarverkefni þín, að hafa leikið í þessari kvikmynd? „Það er örugglega ekkert slæmt að hafa leikið í kvikmynd fyrir Jodie Foster og hvert verkefni sem maður tekur að sér hjálpar til með fram- haldið að einhverju leyti,“ svarar Darri. Hann sá myndina í Los Ang- eles og segist hafa haft gaman af henni og verið ánægður með hana. „Þetta er ekki stórt hlutverk sem ég er með þannig að það var ekkert að trufla mig mikið að ég væri í henni, ég náði alveg að lifa mig inn í hana,“ segir Darri. Hann segist hafa verið mikill áhugamaður um kvikmyndir allt frá barnæsku og dreymt um að leika í kvikmyndum, íslenskum sem erlendum. Því sé hann eðlilega stolt- ur af því að hafa fengið að leika í þessari kvikmynd og fyrir þennan þekkta leikstjóra. Nokkur verkefni til skoðunar Spurður að því hvað sé fram und- an segir Darri að nokkur verkefni séu á borðinu sem þurfi að skoða betur. Hann geti lítið sagt um þau þar sem í kvikmynda- og sjónvarps- bransanum sé ekkert öruggt fyrr en tökur séu búnar og afraksturinn kominn á hvíta tjaldið eða sjónvarps- skjáinn. „Ég er alltaf í prufum og búinn að taka að mér sjónvarpsverk- efni hér og þar og það heldur bara áfram. Þess á milli nýt ég þess að vera tveggja barna faðir og að búa hérna úti og njóta lífsins,“ segir hann. Auk þess að fara með eitt af aðal- hlutverkunum í Borgríki 2: Blóð hraustra manna og Boðbera hefur Darri leikið í ýmsum bandarískum sjónvarpsþáttum, m.a. Dexter, Can- vassing!, Last Resort, NCIS: Los Angeles, Sequestered , Stalker, Criminal Minds, Castle og NCIS: New Orleans. Þá leikur hann í bandarísku kvikmyndinni Slumber sem frumsýnd verður á þessu ári. Þess má að lokum geta að sýn- ingar eru hafnar hér á landi á Money Monster. „Auðvelt að vinna með henni“  Darri Ingólfsson leikur íslenskan tölvuhakkara í nýrri kvikmynd Jodie Foster, Money Monster  „Hún var rosalega almennileg,“ segir Darri um leikstjórann AFP Í Cannes Jodie Foster frumsýndi nýjustu kvikmynd sína, Money Monster, á kvikmyndahátíðinni í Cannes 12. maí sl. og sést hér að sýningu lokinni með stjörnum myndarinnar, Juliu Roberts og George Clooney. Darri Ingólfsson Fyrsta úthlutun úr Tónlistarferða- sjóði Kex hostels fór fram í gær- morgun á gistiheimilinu og var einni milljón króna deilt á fimm verkefni. Hæstan styrk hlaut Júní- us Meyvant, 500.000 kr. fyrir tón- leikaferð sína um Evrópu sem mun kosta á sjöundu milljón króna. Zhrine hlaut 150.000 kr. styrk vegna mánaðarlangrar tónleika- ferðar um Bandaríkin með hljóm- sveitinni Ulcerate frá Nýja-Sjálandi og Sísí Ey sömu upphæð vegna tón- leika hljómsveitarinnar á Glaston- bury í sumar. Gyða Valtýsdóttir hlaut 100.000 kr. vegna tónleika- ferðar um Evrópu, en í henni mun hún bæði leika ein og með írska tónlistarmanninum Damien Rice. Þá hlaut Antimony 100.000 kr. vegna tónleika á Citadel-hátíðinni þar sem hún mun hita upp fyrir Sigur Rós. Tónlistarferðasjóður Kex hostels var stofnaður í apríl síðastliðnum og var opnað fyrir umsóknir í af- mælisviku gistiheimilisins. Í til- kynningu segir að sjóðurinn muni hafa að leiðarljósi að styrkja ungt tónlistarfólk til útrásar og styðja við bakið á því í tónleikaferðum. 25 umsóknir bárust sjóðnum. Morgunblaðið/Styrmir Kári Evrópuferð Júníus Meyvant hlaut hálfa milljón í styrk vegna fyrirhugaðrar tónleikaferðar um Evrópu. Hér sést hann á tónleikum á Airwaves í fyrra. Júníus hlaut hálfa milljón úr tónlistarferðasjóði Kex Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Japanskt meistaraverk Landsins mesta úrval af píanóum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. WARCRAFT 5:30, 8, 10:30(P) TMNT 2 5:30 TMNT 2 3D 8 MONEY MONSTER 5:30 X-MEN APOCALYPSE 3D 10:20 ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 5:30 BAD NEIGHBORS 2 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 22:30 Mistakasaga mannkyns, sem er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í dag í Gamla bíói, fellur niður vegna veikinda. Allir miðar verða endur- greiddir. Upp- lýsingar um endurgreiðslu fást á skrifstofu Listahátíðar í Reykjavík í síma 561 2444. Verkið er eftir þau Hall- veigu Rúnarsdóttur, Erp Eyvind- arson, Hilmar Örn Hilmarsson og Bjarna Frímann Bjarnason. Mistakasaga mann- kyns fellur niður Sýning í Gamla bíói fellur niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.