Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Frá mínum bæjardyrum séð er al-
veg sjálfsagt að þetta mál sé rann-
sakað ef ráðherra telur þörf á því. Ég
get ekki séð að við setjum okkur upp
á móti því, enda höfum við ekkert að
fela,“ segir Óskar Einarsson lungna-
læknir um þá áætlun heilbrigðisráð-
herra að setja á laggirnar rannsókn-
arnefnd til að skoða barkaígræðslu-
málið svokallaða.
Óskar kom ásamt Tómasi Guð-
bjartssyni lækni að meðferð manns
hér á landi sem undirgekkst um-
deilda barkaígræðslu á Karolinska
háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi
árið 2011, maðurinn lést tveimur og
hálfu ári síðar. Ítalski skurðlækn-
irinn Paolo Macchiarini framkvæmdi
aðgerðina en hann hefur verið sak-
aður um rangfærslur í grein sem
hann skrifaði um niðurstöður
aðgerðarinnar. Óskar og Tómas voru
tveir af 28 meðhöfundum grein-
arinnar, auk þess sem Tómas var við-
staddur aðgerðina á Karolinska á
sínum tíma.
Aðkoma íslenskra stofnana
Í máli Kristjáns Þórs Júlíusson-
ar heilbrigðisráðherra á Alþingi á
mánudaginn kom fram að hann teldi
rétt að Alþingi skoðaði hvort ástæða
væri til þess að koma á fót rannsókn-
arnefnd til þess að rannsaka aðkomu
íslenskra stofnana að meðferð sjúk-
lingsins. Kristján sagði unnið að
minnisblaði um málið á sínum vegum
sem sent yrði til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar á næstunni og hún
beðin að taka formlega afstöðu til
þess.
Það var Elín Hirst, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sem spurði
fyrst um málið á þingi og velti því
einnig upp hvort hér á landi væru
starfandi læknar sem hefðu engra
hagsmuna að gæta við rannsókn
þessa máls, sem gætu rannsakað
það. Kristján Þór gat ekki svarað því,
fyrst þyrfti að liggja fyrir hvaða sér-
þekkingu þarf til að taka þátt í slíkri
rannsókn og hvort einhverjir læknar
sem starfa hér á landi hafi þá þekk-
ingu, síðan þyrfti að meta hæfni eða
hæfi þeirra á grundvelli hæfisreglna
stjórnsýslulaganna.
Landlæknir vanhæfur?
Birgir Jakobsson landlæknir
var forstjóri Karolinska háskóla-
sjúkrahússins í sjö ár og kom beint
þaðan þegar hann tók við stól land-
læknis í ársbyrjun 2015. Hann gæti
því talist vanhæfur til að koma að
rannsóknarnefndinni en hann var
forstjóri Karolinska þegar Macchi-
arini var þar að störfum. Birgir vildi
ekki tjá sig um þessa stöðu þegar eft-
ir því var leitað í gær enda ætti eftir
að skýrast betur hvort rannsókn-
arnefnd yrði komið á fót.
Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir
og prófessor, segist í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér í fyrrakvöld fagna
því að þetta flókna mál sé rannsakað,
forsendur slíkrar rannsóknar hljóti
þó að vera að rannsakendur hafi að-
gang að nauðsynlegum gögnum bæði
hérlendis og í Svíþjóð. Þá segir Tóm-
as það rangt sem haldið hafi verið
fram af fulltrúum Siðræðistofnunar
HÍ að helstu rannsakendur í Svíþjóð
hafi ekki aðgang að öllum málsgögn-
um hér á landi, Landspítalinn hafi
heimild til að afhenda viðkvæm gögn
til sænskrar rannsóknarnefndar.
Íhuga rannsókn
á aðkomu ís-
lenskra stofnana
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Alþingi Skoðað hvort rannsaka eigi
barkaígræðslumálið umdeilda.
Rannsóknarnefnd fari yfir barka-
ígræðslumálið „Ekkert að fela“
Óskar
Einarsson
Tómas
Guðbjartsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íslenskt dótturfyrirtæki Smyril Line,
sem þjónað hefur vöruflutningum
með Norrænu, mun taka við þjónustu
við ferðafólkið á Seyðisfirði um næstu
mánaðamót þegar samningur Smyril
Line og Austfars rennur út. Linda
Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri
Smyril Line Island, segir að allt verði
gert til að breytingin hafi ekki áhrif á
þjónustuna.
Linda segir að þar sem ekki hafi
náðst samningar við Austfar um
áframhaldandi samstarf og Austfar
sagt samningum upp hafi verið ákveð-
ið að íslenska dótturfélagið sem séð
hafi um flutningahlutann í nokkur ár
tæki við farþegaþjónustunni.
Skiptin gangi sem best
Ráðinn hefur verið starfsmaður til
að sjá um þjónustuna. Linda vonast til
að sá mannskapur sem unnið hafi við
afgreiðslu skipsins í viku hverri verði
áfram. Þá hafi náðst samningar við
Austfar um skipti á húsnæði. Smyril
Line taki neðri hæðina á leigu, þar
sem afgreiðsla Austfars hafi verið, og
þjóni þaðan vöruflutningunum og
ferðafólki. Austfar flytji starfsemi
sína á efri hæðina í húsi sínu og sinni
þaðan öðrum verkefnum sem fyrir-
tækið hafi með höndum. Hún getur
þess að yfirmaður innskráningar hjá
Smyril Line, sem hefur starfsaðstöðu
í höfuðstöðvunum í Færeyjum, verði
á Seyðisfirði í tvo mánuði til að hjálpa
til við yfirfærsluna.
Linda tekur fram að starfsmenn
Austfars aðstoði Smyril Line við að
láta þessi skipti ganga sem best fyrir
sig. Þessi fyrirtæki hafi unnið saman í
áratugi og Jónas Hallgrímsson, aðal-
eigandi Austfars, sé samofinn sögu
Smyril Line og eigi heiður skilinn fyr-
ir margt sem hann hafi barist fyrir.
Ekki flutt
Fyrir þremur árum kannaði stjórn
Smyril Line möguleika á því
að sigla ferjunni að
vetrinum til Reyðar-
fjarðar eða Eski-
fjarðar, vegna
erfiðleika með
akstur flutninga-
bíla yfir Fjarðar-
heiði. Það þótti
ekki henta og seg-
ir Linda að ekki
standi til að flytja
áfangastað ferj-
unnar frá Seyðis-
firði.
Ljósmynd/Smyril Line
Ferja Norræna siglir inn Seyðisfjörð til hafnar í botni fjarðarins eftir siglingu frá Danmörku og Færeyjum.
Ferjuútgerðin tekur
við farþegaþjónustu
Reynt að láta skiptin ekki hafa áhrif á þjónustu við farþega
Norræna flytur ekki aðeins bíla
og farþega. Vöruflutningar eru
vaxandi þáttur í starfseminni og
í raun nýr valkostur í flutning-
um til og frá landinu, eins og
Linda Gunnlaugsdóttir bendir á.
Fyrirtækið er með vöruhús á
Seyðisfirði og í Reykjavík. Fisk-
ur sem fer með Norrænu á mið-
vikudagskvöldi er afhentur alls-
staðar í Evrópu aðfaranótt
næsta mánudags.
Snjóþyngsli á Fjarðarheiði
hafa stundum valdið erfið-
leikum við flutninga til og frá
Seyðisfirði, þó ekki í vetur og
fyrravetur. Linda segir að
Vegagerðin hafi staðið sig vel
í að halda heiðinni opinni á
ferjudögum. Fyrirhuguð jarð-
göng undir Fjarðarheiði
muni bæta mjög aðstöð-
una.
Göng bæta
aðstöðuna
VAXANDI FLUTNINGAR
Linda Björk
Gunnlaugsdóttir
Ráðhús Reykjavíkur verður ekki lengur opið um helgar.
Tveir næturverðir sinntu gæslunni, annar þeirra hætti
um síðustu áramót vegna aldurs og hinum var sagt upp
næturvarðarstöðunni en boðið starf í staðinn sem hann
þáði ekki. Næturvörslu verður nú sinnt af Öryggismið-
stöðinni og eins er öryggiskerfi í húsinu sem er bein-
tengt við stjórnstöð.
„Húsverðir eru að störfum í húsinu frá kl. 8-18 og
einnig þegar viðburðir eru í húsinu utan dagvinnutíma.
Eðli málsins samkvæmt er erfitt að fara nákvæmar út í
tilhögun gæslu og innbrotavarna í Ráðhúsinu,“ segir
Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkur-
borgar.
Ráðhúsið verður nú með sama opnunartíma og aðrar
stjórnsýslubyggingar nema þegar viðburðir eru bókaðir
í húsinu. Töluverður fjöldi kemur í Ráðhúsið á hverjum
degi og um helgar er oft mikið líf í húsinu kringum lík-
anið stóra af Íslandi. „Það er mjög mismunandi hvernig
umferð í Ráðhúsinu hefur verið um helgar, við höfum
ekki teljara eða slíkt til að styðjast við. Ef viðburðir eru í
húsinu eykst umferðin, en það hefur að sjálfsögðu ekki
verið tekið fyrir viðburðahald um helgar í húsinu,“ segir
Bjarni.
Gæsla í húsinu á kjördag, þann 25. júní næstkomandi,
verður með sama móti og verið hefur undanfarin ár.
benedikt@mbl.is
Ráðhúsið lokað um helgar
Næturvörslu sinnt af Öryggismiðstöðinni Sami opnun-
artími og í öðrum stjórnsýslubyggingum Tveir hættu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skellt í lás Ráðhúsið er nú með sama opnunartíma og
aðrar stjórnsýslubyggingar og verður lokað um helgar.