Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Gerir sláttinn auðveldari Garðtraktorar fyrir þá kröfuhörðu ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Þ eir Hákon Davíð Hall- dórsson, Halldór Val- geirsson, Andri Bald- vinsson og Arnar Björnsson hittast reglu- lega á miðvikudögum ásamt fleirum til þess að spila borðspilið X-Wing, en þar er líkt eftir geimbardögunum í Stjörnustríðsmyndunum og getur gengið á ýmsu. „Við höfum þekkst svona allir saman síðan við vorum fjórtán ára, en þeir höfðu þekkst mun lengur, síðan í grunnskóla,“ segir Hákon Davíð, en vinirnir í hópnum bjuggu allir saman í norðurbæ Hafnar- fjarðar á þeim tíma. „Þetta er frá- bær leið til þess að halda hópinn,“ segir Arnar um spilakvöldin, en þeir hafa meðal annars farið reglulega í bústaðarferðir til þess að spila. Það var í einni slíkri sem einn vinur þeirra úr Hafnarfirðinum, Kári Kristinsson, kom með X-Wing- spilið sem hitti í mark. „Þetta höfðaði mjög til okkar,“ segir Halldór. „Spilið er mjög snúið, mjög strategískt, aldrei eins, en á sama tíma tiltölulega snöggt.“ Arnar segir að helst megi líkja spilinu við blöndu af skák og teningaspili í einu og sama borðspilinu. Það sé í raun og veru ekki tengingin við Stjörnu- stríð sem heilli sig við spilið. „Fyrir mig er þetta fyrst og fremst tæki- færi til þess að hitta strákana og spila skemmtilegt spil.“ Vildu láta gott af sér leiða En hvernig stóð á því að þeir ákváðu að halda góðgerðarmót? „Það vill þannig til að ég er að vinna með Óla, skipuleggjanda Tuddans, sem er stórt tölvuleikjamót, þar sem spilað er Counter-strike og League of Legends og þannig spil,“ segir Hákon. Hann hafði þá prófað X- Wing og verið spenntur fyrir því að halda mót í spilinu samhliða Tudd- anum. Eftir að hugmyndin hafði ver- ið rædd lauslega var ákveðið að kýla á þetta, og segir Hákon að ljóst hafi verið frá upphafi að mótið yrði að vera góðgerðarmót. Andri bætir við að fyrirmyndin sé sótt að utan, en þar sé algengt að haldin séu góð- gerðarmót í X-Wing-spilinu þar sem ágóðinn renni allur til góðs málefnis. Að þessu sinni var ákveðið að Rjóður, hvíldar- og endurhæfingar- heimili fyrir langveik og fötluð börn, myndi njóta góðs af mótinu og mun Stjörnustríð til styrktar Rjóðri Vinahópur úr Hafnarfirði ákvað að láta gott af sér leiða og efnir til borðspilamóts nk. laugardag til styrktar Rjóðri í Kópavogi, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik og fötluð börn. Hópurinn hefur hist reglulega um árabil til þess að spila hin ýmsu spil, en á síðustu árum hefur hann einkum lagt fyrir sig spilið X- Wing, sem byggist á Stjörnustríðsmyndunum sívinsælu. Spilað til góðs Þeir Arnar, Hákon Davíð, Halldór og Andri standa fyrir góðgerðarmóti í X-Wing á laugardaginn til stuðnings Rjóðri í Kópavogi. Stjörnustríð Halldór hreyfir skip eftir kúnstarinnar reglum. Oddaflug, morgunverðarfundur Odda kl. 9-11 á morgun, föstudaginn 3. júní, er öllum opinn meðan húsrúm leyfir í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Höfðabakka 7. Umræðuefnið er býsna fjölbreytt; hönnun, umbúðir, bjór, bændur, heimspeki og testofur. Fókusinn verður þó fyrst og fremst á hönnun og umbúðir, en með nokkrum eldhressum sjónarhornum, til dæmis á heimspeki og frumkvöðla. Fundurinn hentar jafnt atvinnu- mönnum sem áhugafólki um hönnun, framleiðslu og notkun umbúða. Á dagskránni eru fjórir snarpir og fróðlegir fyrirlestrar. Markaðsstjóri Odda flytur fyrirlesturinn Góðan og blessaðan daginn! 70% umbúðir, 30 prentun. Hönnuður og einn stofn- enda Víkur Prjónsdóttur pælir í hönn- un og tilgangi hennar hverju sinni í fyrirlestrinum Innblástur: Þjóðsögur, arabískar testofur og önnur ævintýri og hönnunarstjóri PIPAR/TBWA verð- ur með óábyrgar pælingar um alls konar umbúðir í fyrirlestrinum Vöru- hönnun: Harðir pakkar og mjúkir. Því næst á stofnandi Spark Design Space stefnumót við hönnuði og bændur og veltir fyrir sér umbúðum, umhverfismálum og pakkningum og loks verður heimspekingur hjá Ís- landsstofu með hugleiðingar um bjór, hönnun og heimspeki í fyrirlestri með yfirskriftinni Tilvistin í tólf bjór- um. Aðgangur er ókeypis en vissara er að skrá sig á www.bit.ly/oddaflug. Oddaflug í morgunsárið – á morgun föstudag Í brennidepli Hönnun og umbúðir eru í brennidepli á morgunverðarfundi Odda. Hönnun, umbúðir, bjór og bændur Snillingarnir Ife Tolentino, Óskar Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson bjóða upp á brasilíska tónlistarveislu í Eyrarbakkakirkju í kvöld kl. 20. Í tilkynningu kemur fram að tón- listarmennirnir ætli að leika af fingr- um fram lög eftir Ife í bland við sígild bossa nova-lög eftir nokkra af helstu höfundum brasilískrar tónlistarsögu. Brasilíski gítarleikarinn og söng- varinn Ife Tolentino á að baki langan og litríkan feril í heimalandi sínu, þar sem hann hefur starfað með ýmsum frábærum listamönnum. Ife hefur verið tíður gestur á Íslandi undan- farin ár í boði Óskars Guðjónssonar, en þeir kynntust í London þegar Ósk- ar var búsettur þar. Árið 2013 kom út diskurinn Vocé Passou Aqui, sem þeir félagar hljóðrituðu hér á landi ásamt fleiri íslenskum tónlistarmönnum, og væntanlegur er nýr diskur með lög- um Ife, sem sami hópur hljóðritaði á nýliðnu ári. Eyþór Gunnarsson hefur komið að báðum diskunum og leikur því með þeim félögum í kvöld. Sannarlega má gera ráð fyrir ið- andi brasilískri sumarstemningu í í Eyrarbakkakirkju og vert að njóta hennar. Miðasala verður við innganginn. Þrír höfðingjar leika saman í Eyrarbakkakirkju í kvöld Tríó Eyþór Gunnarsson, Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson eru góðir saman. Brasilísk stemning á Bakkanum Sjómannadagshelgin er ein af stórhátíðum ársins í Vestmanna- eyjum. Að venju hefjast hátíðarhöldin þar í kvöld, fimmtudagskvöld, með tónlistardagskrá í Akóges klukkan 22. Þar verður blússandi stemning og sjómannalögin og Eyjalögin sungin og spiluð. Forsöngvari er Árni Johnsen sem einnig spilar á gítar. Með honum spila og syngja reyndir sjómenn og hljóð- færaleikarar. Þeirra á meðal Leó Snær Sveinsson sem spilar á gítar og syngur, Jarl Sigurgeirsson á bassa, Sigurmund G. Einarsson á saxófón og fleiri kunna að slást í hópinn. Fastlega má reikna með því að á milli laga verði sagðar margar skemmtilegar sögur af Eyjamönnum fyrr og nú. Allar eru þessar sögur sannar, reyndar svolítið misjafnlega mikið sannar. Fjörið heldur svo áfram alveg fram á sunnudag. gudni@mbl.is Sjómannadagshelgin í Eyjum hefst í kvöld Sjómannslíf, ástir og ævintýr Morgunblaðið/Sverrir Sjómannalög Fjör í Akóges í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.