Morgunblaðið - 02.06.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016
Glundroði var í lestasamgöngum í
Frakklandi í gær, aðeins níu dögum
áður en Evrópumótið í fótbolta hefst
þar. Um helmingi af öllum lestaferð-
um í landinu var aflýst vegna átt-
unda verkfalls starfsmanna lesta-
fyrirtækisins SNCF á þremur
mánuðum. Stéttarfélag þeirra segir
að í þetta sinn ljúki verkfallinu ekki
fyrr en fyrirtækið verði við kröfum
þeirra um launahækkanir og bætt
vinnuskilyrði.
Ástandið í samgöngumálum í
Frakklandi gæti versnað áður en
Evrópumótið hefst 10. júní. Starfs-
menn jarðlesta í París ætla að hefja
verkfall í dag og flugmenn Air
France hafa hótað langvinnu verk-
falli á næstu vikum, að sögn frétta-
veitunnar AFP.
Glundroði í lesta-
samgöngum Frakka
Ástandið gæti versnað fyrir EM
AFP
Verkfall Farþegi á brautarpalli á lestastöðinni Gare de Lyon í París eftir að starfsmenn lesta lögðu niður vinnu.
Brasilíska fótboltagoðið Pele
hyggst selja muni sem tengjast
glæstum ferli kappans á uppboði
sem fer fram dagana 7.-9. júní. Á
meðal hlutanna sem verða seldir
eru afsteypa af styttu sem hann tók
við árið 1970 eftir að hann varð
heimsmeistari í fótbolta með liði
Brasilíu í þriðja skipti.
Pele er markahæsti leikmaðurinn
í sögu brasilíska landsliðsins og eini
maðurinn sem hefur verið þrisvar í
sigurliði heimsmeistaramóts karla í
fótbolta.
Í beinni útsendingu á netinu
Pele segist hafa gefið Santos-
borg stóran hluta af safni sínu en
hafa ákveðið að gefa einnig aðdá-
endum sínum og söfnurum færi á að
eignast muni sem tengjast sögu
hans. Hann hyggst gefa stærsta
barnasjúkrahúsi Brasilíu hluta af
ágóðanum af uppboðinu, sem fer
fram á vegum Julien’s Auction
House í Lundúnum. Uppboðið verð-
ur sýnt í beinni útsendingu á netinu
til að fólk úti um allan heim geti tek-
ið þátt í því.
Alls verða seldir meira en 2.000
munir og varlega áætlað er talið að
þeir verði slegnir á alls 5,1 milljón
Bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 640
milljóna króna. Gert er ráð fyrir að
afsteypan af HM-styttunni verði
seld á 600.000 dollara, jafnvirði 75
milljóna króna. Á meðal annarra
muna sem verða til sölu eru gullpen-
ingar sem Pele fékk fyrir heims-
meistaratitilinn og talið er að hver
þeirra verði seldur á 200.000 doll-
ara, eða 25 milljónir króna.
Á meðal annarra hluta sem verða
seldir eru búningur sem Pele notaði
þegar hann lék með liði Santos og
skór sem hann notaði í kvikmynd-
inni Escape to Victory árið 1981.
bogi@mbl.is
AFP
Eftirsóttur gripur Pele kyssir HM-styttu á heimsmeistaramótinu í Þýska-
landi árið 2006. Með honum er þýski fótboltakappinn Franz Beckenbauer.
Pele-munir
seldir á uppboði
Metnir á alls 640 milljónir króna
Hræ fjörutíu tígrisdýrahvolpa
fundust í Búdda-hofi í Taílandi
þegar yfirvöld voru að flytja tugi
tígrisdýra af svæðinu. Munkarnir
sem reka hofið hafa lengi verið
sakaðir um dýraníð og var dóms-
úrskurður fenginn svo að flytja
mætti dýrin af svæðinu. Munk-
arnir hafa ætíð neitað ásökunun-
um.
Aðgerðin er gríðarlega um-
fangsmikil og tekur viku. Hofið er
vinsæll viðkomustaður ferða-
manna. Þar geta gestir fengið að
gefa dýrunum að éta og tekið af
þeim myndir. Hins vegar hafa
myndirnar oft sýnt illa meðferð
starfsmanna á dýrunum.
„Það hefur haft einhverja þýð-
ingu fyrir þá að geyma hræin,“
segir Adisorn Nuchdamrong hjá
þjóðgarðastofnun Taílands við
Reuters-fréttastofuna. „En ég get
ekki ímyndað mér hvers vegna
þeir gerðu það.“
Einnig fundust líkamsleifar
annarra dýra í frystigeymslum í
hofinu. Hundrað þrjátíu og sjö
tígrisdýr voru í hofinu og hafa 40
þeirra nú verið flutt frá því.
Taíland
Fundu 40 dauða tígrishvolpa
AFP
Dýrum bjargað Eitt tígrisdýranna
sem voru flutt af lóð Búdda-hofsins.
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
Úradagar 20% afsláttur af öllum úrum
28. maí - 4. júní
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - mán-föst 10-18 - lau 11-15
Mikið úrval af fallegum púðum