Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
Illugi Gunnarsson mennta-málaráðherra hefur kynnt
breytingar á námslánakerfi að nor-
rænni fyrirmynd. Frumvarp hans
gerir ráð fyrir að fara blandaða leið
við að styðja námsmenn, annars
vegar með styrkjum og hins vegar
með lánum á lágum vöxtum.
Með þessu er meðal annars ver-ið að gera styrkjakerfið í
námslánum gagnsærra, en hingað
til hefur það verið falið í formi
niðurgreiddra vaxta. Einstaka
námsmenn hafa fengið milljónir í
óbeina styrki og hafa því komið vel
út úr núverandi kerfi, en það er
ekki endilega sanngjarna leiðin, að
minnsta kosti ekki frá sjónarhorni
þeirra sem aðhyllast jöfnuð.
Kerfið sem menntamálaráð-herra leggur til skilar betri
niðurstöðu fyrir flesta námsmenn,
en hver eru þá viðbrögð þeirra sem
áður settu saman ríkisstjórn sem
þeir kenndu við norræna velferð?
Jú, þeir leggjast þvert fyrir máliðmeð hótun um málþóf og nýta
sér það að stjórnarliðar hafa talað
um að halda kosningar í haust.
En forystumenn vinstri flokk-anna gleyma því að for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar hafa
sett það skilyrði fyrir haustkosn-
ingum að hægt sé að afgreiða
stærri mál á eðlilegan hátt.
Nú er komið í ljós að það er ekkihægt og að stjórnarandstaðan
hyggst nýta sér meinta tímapressu.
Þá er aðeins eitt að gera; aflétta
þessari óþörfu pressu.
Á að láta undan
málþófshótuninni?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.6., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 11 léttskýjað
Akureyri 11 skýjað
Nuuk 7 alskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 28 heiðskírt
Kaupmannahöfn 25 heiðskírt
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 16 rigning
Brussel 15 skúrir
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 19 heiðskírt
London 12 súld
París 16 rigning
Amsterdam 23 rigning
Hamborg 22 rigning
Berlín 22 léttskýjað
Vín 19 léttskýjað
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 25 heiðskírt
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 20 skýjað
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 10 rigning
Montreal 20 léttskýjað
New York 26 skýjað
Chicago 19 rigning
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:19 23:34
ÍSAFJÖRÐUR 2:33 24:29
SIGLUFJÖRÐUR 2:14 24:15
DJÚPIVOGUR 2:38 23:14
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Haldinn verður opinn fundur á
Húsavík í dag, þar sem sérfræðingar
í rannsóknum og jarðváreftirliti
ræða við almenning, auk fulltrúa frá
Almannavörnum. Fundurinn er hluti
ráðstefnu um jarðskjálfta á Norður-
landi, en Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur stendur að henni
ásamt hópi vísindamanna.
„Við viljum með þessu koma því
áleiðis hvað við erum að rannsaka og
hvert við erum komin í þeim rann-
sóknum,“ segir Ragnar í samtali við
Morgunblaðið. Bendir hann á að sú
reynsla og þekking sem skapast hafi
um jarðskjálfta á Suðurlandi nýtist
nú við rannsóknir norðanlands.
Margar fjölbreyttar rannsóknir
hafa verið kynntar á ráðstefnunni.
„Meðal annars er verið að grafa
ofan í jörðina hér á Norðurlandi, til
að sjá hvar færslur hafa átt sér stað
á fyrri öldum og þannig reyna að
lengja þá sögu sem við höfum um
jarðskjálfta hér á þessu svæði. Hér
eru að koma fram ýmsir kubbar sem
saman hjálpa til við að mynda al-
mennan skilning á þessu belti,“ segir
Ragnar og bætir að lokum við, að
það teygi sig allt frá Öxarfirði og
vestur í mynni Skagafjarðar.
Opinn fundur um jarðvá á Húsavík
Sérfræðingar í jarðváreftirliti ræða
við almenning Stórt jarðskjálftabelti
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þeistareykir Ekki er langt að leita
jarðvirkni í grennd við Húsavík.
Einhugur ríkti á
fundi sóknar-
nefndar Lang-
holtskirkju um
ráðningu Árna
Heiðars Karls-
sonar í starf
organista við
kirkjuna. Árni
mun hefja störf
þann 1. ágúst og
mun feta í spor
Jóns Stefánssonar, sem féll nýverið
frá. Nefndin fór fram á svokallað
kantorspróf frá Tónskóla þjóðkirkj-
unnar. Árni hefur það ekki en
hyggst ljúka því námi á næstu
þremur árum. Björg Dan Róberts-
dóttir, formaður sóknarnefndar
Langholtskirkju, baðst undan við-
tali þegar eftir því var leitað.
Rúmlega 100 manns hafa skrifað
á undirskriftalista þar sem lýst er
yfir þungum áhyggjum vegna ráðn-
ingarinnar.
Árni Heiðar hefur undanfarin sjö
ár starfað sem organisti og kór-
stjóri við Óháða söfnuðinn í Reykja-
vík. Þá hefur hann verið kórstjóri
Graduale Nobili í Langholtskirkju á
vorönn og mun halda því áfram.
benedikt@mbl.is
Árni Heiðar
Karlsson
Einhugur
um Árna
Mun ljúka kantors-
prófi á næstu árum