Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 10

Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 hafðu það notalegt Njóttu þess að gera baðherbergið að veruleika miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177 FINGERS 70x120 cm Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm Ryðfrítt stál Drekinn Haraldur hárfagri náði höfn í St. Anthony á Nýfundnalandi í gær, eftir fimm daga siglingu frá Grænlandi. Víkingaskipið, sem er það stærsta sem smíðað hefur verið frá því á söguöld, hóf siglinguna yfir Norður-Atlantshaf í Haugasundi í Noregi 26. apríl. „Ég er stoltur af áhöfninni og því sem við höfum áorkað á leiðinni. Þetta hefur ekki verið auðvelt, við höfum mætt ýmsum erfiðleikum í leiðangrinum, en góður andi hefur verið í hópnum sem hefur unnið vel alla leiðina,“ sagði Svíinn Björn Ahlander, skipstjóri Drekans. Áhöfnin mun heimsækja L’Anse aux Meadows á norðurodda Ný- fundnalands. Þar fundu norskir fornleifafræðingar um 1960 minjar um norræna byggð frá víkingatím- anum, þær einu sem þá staðfestu bú- setu Evrópumanna á Vínlandi. Skip- ið siglir næst inn St. Lawrence-flóa, til Quebec-borgar. helgi@mbl.is Drekinn kominn til „Vínlands“ Drekinn Siglingin frá Grænlandi var erfið vegna hafíss og þoku.  Erfiðri ferð yfir Atlantshaf lokið Bjarni Steinar Ottósson bso@mbl.is Leigusamningi forsætisráðuneyt- isins í Hverfisgötu 4-6 þar sem það hefur haft skrifstofur hefur verið sagt upp og mun það þurfa að finna sér annað húsnæði innan næstu fimm ára. Skrifstofurnar munu víkja fyrir hótelherbergjum. Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu- neytisstjóri forsætisráðuneytisins, segir skrifstofur ráðuneytisins óþægilega dreifðar á milli bygginga, sem aftur séu á forræði mismunandi leigusala. Þessu fylgi bæði óstöðug- leiki og talsvert óhagræði fyrir starfsemina og er nú til skoðunar að sameina hana í einu húsi. „Við erum að vinna undirbúnings- vinnu ásamt ýmsum fagaðilum og munum skoða mismunandi kosti, t.d. hvort það er fyrirliggjandi hæfilegt húsnæði þarna í nágrenninu eða hvort það er hagkvæmara að byggja nýtt,“ segir Ragnhildur. Samnýta skrifstofupláss Samtímis er það í skoðun að koma undir eitt þak fjármála- og forsætis- ráðuneyti auk velferðar- og utan- ríkisráðuneytis en þau tvö síðar- nefndu eru í nokkurri fjarlægð frá stjórnarráðsreitnum. „Það er verið að skoða húsakost fyrir nokkur ráðuneyti og það sem við viljum gera er að horfa á þetta heildstætt og leysa þetta með sem hagkvæmustum hætti. Æskilegast væri fyrir okkur að ráðuneytin gætu verið eins nálægt hvert öðru og kost- ur er svo þau gætu samnýtt ýmis miðlæg svæði eins og t.d. fundar- aðstöðu og afgreiðslu.“ Nokkur ár munu þó líða þar til slík lausn verður að veruleika. Allir kostir skoðaðir Stefán Thors, húsameistari ríkis- ins, segir vinnuna nú tvíþætta: Ann- ars vegar sé unnið að þarfagreiningu fyrir forsætisráðuneytið og í fram- haldi af því frumathugun þar sem bornir verða saman nokkrir kostir. „Þar kemur til greina m.a. nýbygg- ing á stjórnarráðsreit, við Stjórnar- ráðshúsið, og rykið hefur verið dust- að af gamalli hugmynd um að flytja starfsemina í Safnahúsið við Hverf- isgötu.“ Hluti forsætis- ráðuneytis vík- ur fyrir hóteli  Leitað að framtíðarhúsnæðislausn fyrir skrifstofur ráðuneytisins Morgunblaðið/Kristinn Húsnæði Skrifstofurnar eru nú í bakhúsi við Stjórnarráðið. Heimilislaus » Skrifstofur ráðuneytanna hafa verið á nokkru flakki und- anfarin ár. Samnýting á hús- næði og stöðugt rekstrar- umhverfi gæti bætt talsvert starfsskilyrði þeirra. » Í skoðun er sameiginlegt húsnæði fjögurra ráðuneyta. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðarmenn og ferðaþjónustu- menn í Kerlingarfjöllum hafa lokið við að moka mesta snjónum af Kjal- vegi. Norðan- og sunnanmenn náðu saman rétt norðan við Fjórðungs- öldu í fyrrakvöld. Vegagerðin stefn- ir að því að opna Kjalveg að sunnan fyrir 17. júní og hugsanlega viku fyrr í Hveravelli, að norðan. „Við erum búnir að moka í gegn- um skaflana. Við vinnum þetta með Kerlingarfjallamönnum og mættum Páli Gíslasyni á traktorsgröfunni í gærkvöldi,“ sagði Guðmundur Sig- urðsson, yfirverkstjóri hjá Vega- gerðinni á Hvammstanga, í gær. Hann sagði að mikil bleyta væri á veginum en það þornaði fljótt ef tíð- in héldist góð næstu daga. Páll Halldórsson, rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni á Selfossi, sagði að vegurinn væri í ágætu ástandi og lít- ið um skemmdir. Hins vegar væri landið rennblautt. Þegar búið sé að losa um snjóinn þiðni skaflarnir fyrr. Það fari síðan eftir veðrinu hversu langan tíma það taki að þorna. Reiknar hann með að það takist fyrir 17. júní sem er heldur fyrr en í meðalári. Vorið 2015 var mikill snjór á Kili og ekki opnað fyrr en 2. júlí. Mokstursmenn sáu för eftir bíl sem farið hefur af stað norður Kjöl en lent í vandræðum í snjó og skilið eftir sig för utan vegar þegar hann var að snúa við og aka til baka. Hugað að Landmannalaugum Vegagerðarmenn eru að vinna á Lakavegi og reiknar Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri í Vík í Mýrdal, með því að hægt verði að opna inn að Fagrafossi í þessari viku. Búast megi við að leiðir að Eldgjá verði opnaðar á næstunni. Verið er að kanna leiðina inn í Landmannalaugar. Ágúst segir að vegurinn þangað sé ekki lokaður og geti menn farið hann á stórum jepp- um. Snjórinn þurfi að minnka áður en verktakar verði sendir til að moka skaflana. Hann reiknar með að fljótlega í næstu viku verði ákveðið hvenær rétt sé að senda verktaka til að opna leiðina frá Sig- öldu inn í Laugar. Það taki nokkra daga og svo verði reynt að taka Dómadalsleið í kjölfarið. Kjalvegur Traktorsgröfur voru notaðar til að moka í gegn eftir að jarðýta hafði ýtt út stærstu sköflunum. Mokað í gegnum skaflana á Kjalvegi  Hugað að fjallvegum  Kjölur opnaður um miðjan júní Vegagerðin á Húsavík opnaði í fyrradag Sprengisandsleið upp Bárðardal, að Hrafnabjarga- fossi. Gunnar Bóasson yfirverk- stjóri segist ekki hafa hugsað sér að fara lengra í bili. Syðri hluti Sprengisands, inn í Nýjadal, er í fyrsta lagi opn- aður upp úr miðjum júní. Leiðin þaðan í Bárðardal hefur í fyrsta lagi verið opnuð 3. júlí en það getur dregist fram í miðjan mánuð. Gunnar segir að enn sé töluverður snjór á veginum og „allt hundblautt og hryllilegt“. Hins vegar taki snjóinn hratt upp í hlýindunum. „Við látum þó hálfan mánuð líða áður en við förum að skoða aðstæður.“ Búast má við að Öskjuleið verði opnuð um 20. júní. Líta ekki á Sprengisand ALLT HUNDBLAUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.