Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 13

Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 13
Morgunblaðið/Styrmir Kári Íbyggnir á svip Það þarf að huga að mörgu þegar menn fljúgast á í Stjörnu- stríði. Arnar hugleiðir næsta leik, á meðan Hákon hreyfir skip sitt. allur ágóði mótsins renna óskiptur þangað. „Vinafólk okkar á langveikt barn og þau hafa notað Rjóðrið mjög mikið, þannig að við erum meðvit- aðir um það hvað það hefur auðgað líf þeirra mikið,“ segir Halldór. „Það er gott fyrir foreldra að hafa þarna athvarf,“ segir Andri. „Þessi þjónusta er ekki sjálfsögð og við viljum því aðstoða eins og við getum,“ segir Arnar. Í fjáröfluninni hefur víða verið leitað fanga. „Velviljuð fyrirtæki hafa lagt okkur lið, auk þess sem við höfðum samband við Fantasy Flight Games í Bandaríkjunum, sem gefur spilið út, og fengum þar mjög góðar móttökur,“ segir Hákon. Auk þess hafi sum fyrirtæki valið að gefa verðlaun til þess að auka þátttöku í mótinu, en þar á meðal eru spilabúð- irnar Nexus og Spilavinir, sem báð- ar hafa X-Wing til sölu, auk þess sem Sambíóin gefa bíómiða og Color Run aðgöngumiða. Þeir lýsa yfir þakklæti sínu til allra sem hafi valið að styðja þarna góðan málstað. Mótið hefst klukkan 11 á laugar- dag, 4. júní, og verður haldið í íþróttahúsinu Digranesi. Móts- gjaldið er 2.000 krónur og rennur það óskipt til Rjóðursins og er mótið opið öllum X-Wing-spilurum, en nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu mótsins: SHIELDS UP! X-Wing góðgerðarmót til styrktar Rjóðurs. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 MIÐNÆTUROPNUN 20% afsláttur af öllum vörum í dag Eitt af því sem virðist stundumfæla fólk frá því að stunda úti-legur og aðra útivist er sú hugmynd að nauðsynlegt sé að eiga mikið af hátæknilegum og rándýrum búnaði. Þeir sem eru komnir í mjög sérhæfða útivist enda reyndar yfirleitt á því að græja sig dálítið vel upp – stundum af því að það er nauðsynlegt, og stundum af því að það er svo gam- an. En fyrir almenna útivist, fjall- göngur og útilegur með fjölskyldunni er hægt að komast mjög langt á ein- földum búnaði sem er jafnvel til á flestum heimilum nú þegar. Dæmi um búnað sem er keyptur af fleirum en þurfa á honum að halda eru dýr þriggja laga hlífðarföt. Það hljóm- ar vissulega vel að eiga jakka og buxur sem anda, en sannleikurinn er sá að það skiptir ekki höfuðmáli nema fyrir þá sem eru í frekar krefjandi útivist, svo sem erfiðum fjallgöngum eða ís- klifri, þar sem svitauppgufun er mik- ilvæg til að forðast ofkælingu. Fyrir flesta aðra skiptir meira máli að hlífð- arfötin séu vatnsheld og þá næst jafn- vel betri árangur með ódýrum og létt- um „pollagalla“. Annað dæmi eru tjöld eða gistihýsi. Þó að það sé vissulega gott að geta far- ið inn í lokaðan kassa á kvöldin og kveikt bæði á gas- og rafkyndingu, þá gistir fólk líka í ódýrum kúlutjöldum um allt land, árið um kring. Og hefur það fínt. Meðal þess sem þarf að hafa í huga er hversu mikið pláss þú þarft (því minna pláss, því hlýrra) og hversu auðvelt er að tjalda tjaldinu eða reisa hýsið (því auðveldara sem það er, því líklegra er að þú nennir í útilegu). Í þriðja lagi má svo nefna almenn- an fatnað. Ef þú ert að byrja í útivist er ekki nauðsynlegt að vera í fínustu merkjunum, bara til að njóta þess að vera úti í náttúrunni. Það er góð regla að forðast bómullarföt því þau ein- angra mjög illa, sérstaklega ef þau svo mikið sem heyra minnst á raka, og gera því lítið gagn. Ef þú átt íþróttagalla úr gerviefnum, hlýja úlpu eða lopapeysu, pollagalla og ullar- sokka er það alveg nóg til að byrja. Loks hafa sumir þá tilhneigingu að safna að sér alls konar „sérhæfðum“ búnaði fyrir útilegur. Þá gleymist oft að lúxusinn í útilegum er ekki endi- lega að hafa allt við höndina, heldur að ferðast með lítinn farangur og nota það sem maður hefur. Að lokum er rétt að nefna að sá búnaður sem ég mæli helst með að vanda til í upphafi eru gönguskór og tjalddýnur. Í fjallgöngu er fátt verra en að vera í lélegum skóm sem passa illa og góður nætursvefn er lykillinn að allri vellíðan. Meira um það síðar. Útivist fyrir alla Starfsfólk á fjölskyldutjaldsvæðinu við Úlfljótsvatn gefur góð ráð fyrir útileguna Of mikið dót? Mikill útbúnaður er ekki forsenda þess að stunda útivist. Hvað er nauðsynlegt fyrir útivistina, og hvað ekki? Skátahornið Elín Esther Magnúsdóttir  Höfundur er útivistarskáti, björgunarsveit- arkona og starfsmaður Úlfljótsvatns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.