Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
á fallegum, notalegum stað á
5. hæð Perlunnar.
ERFIDRYKKJA
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
Þriðja Bombardier Q-400-flugvélin
í flota Flugfélags Íslands kom til
landsins á mánudagskvöld og verð-
ur komin í áætlunarferð um eða eft-
ir helgina. Þetta er síðasta vélin af
þremur þessarar gerðar sem FÍ
tekur inn í flota sinn en sú fyrsta
kom í febrúarlok. Vélin nýja fær
nafnið Hallgerður langbrók og hef-
ur einkennisstafina TF-FXB.
„Vélarnar koma vel út, bæði hvað
varðar eldsneytisnotkun og flug-
tíma. Þær eru sparneytnar og flug-
tíminn milli Reykjavíkur er gjarnan
um 35 mínútur, sem er 5-10
skemmri tími en við gert var ráð
fyrir í upphaflegum áætlun,“ segir
Árni Gunnarsson framkvæmda-
stjóri FÍ.
Nokkrar smávægilegar bilanir
komu upp á fyrstu vikunum við inn-
leiðingu flugvélanna. Árni Gunn-
arsson segir að hjá FÍ séu menn þó
búnir að mestu að ná tökum á þeim
vanda. Að sjálfsögðu geti komið
upp bilanir í þessum vélum eins og
öðrum og í öllum slíkum frávikum
sé öryggi haft að leiðarljósi.
Til Grænlands í sumar
Bombardier Q 400-vélarnar eru
notaðar í flugi til og frá Reykjavík
til Akureyrar og Egilsstaða – og
Aberdeen í Skotland í gegnum
Keflavík. Í sumar verður svo flogið
á Q400 til Kulusuk og Narsarsuaq á
Grænlandi og frá júlíbyrjun Kang-
erlussuaq, það er Syðri-Straum-
fjarðar, sem er nýr áfangastaður.
Fokker 50-flugvélarnar sem FÍ hef-
ur haft í notkun lengi eru komnar
úr daglegri áætlun og eru þær all-
ar, fjórar alls, á söluskrá.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Allar Bombardier Q400 sem FÍ fær eru komnar til landsins.
Þriðja Bombardier-
vél FÍ er komin
Hallgerður Langbrók er mætt
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Varðskipið Þór snýr heim til Íslands
á morgun, föstudag, og tekur þátt í
sérstökum leiðangri til að rannsaka
skipsflak Jóns Hákonar BA í djúpi
Aðalvíkur.
Þór hefur verið í Póllandi síðustu
tvo mánuði í hefðbundnu viðhaldi,
sem hann þarf að gangast undir á
fimm ára fresti. Þar hefur skipið
verið botnhreinsað, málað, öxul-
dregið og tækjabúnaður þess yfir-
farinn. Meðan á viðhaldinu stendur
hefur varðskipið Týr sinnt hefð-
bundnum eftirlitsstörfum Landhelg-
isgæslunnar. Við heimkomu mun
Þór fljótt leysa Tý af en fyrst mun
varðskipið koma að rannsókn á
fiskibátnum Jóni Hákoni BA í sam-
starfi við Rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa.
„Hann kemur heim núna á föstu-
daginn til Reykjavíkur og eftir sjó-
mannadagshelgina fer hann í sér-
stakt verkefni til að ná Jóni Hákoni
af hafsbotni,“ segir Ásgrímur Ás-
grímsson, framkvæmdastjóri að-
gerðasviðs Landhelgisgæslunnar.
Hann segir ekki útlit fyrir að Týr
eða Ægir fari í sambærilegt við-
haldsferli á næstunni.
Aðkoma Þórs er þannig að öflugt
spil skipsins er notað til að hífa flak-
ið á ákveðið dýpi. Þá er flakið dregið
á grynnra svæði þar sem kafarar
geta athafnað sig. Jón Arelíus Ing-
ólfsson, rannsóknastjóri sjóslysa-
sviðs hjá Rannsóknanefnd sam-
gönguslysa, segir að veðurfar og
aðstæður muni hafa áhrif á gang
mála.
„Það stendur til að senda Þór af
stað sem fyrst, vonandi í næstu
viku, en það fer eftir aðstæðum og
veðurspá. Svæðið er erfitt vegna
neðansjávarstrauma og yfirborðs-
öldu.“
Fiskibátnum Jóni Hákoni BA
hvolfdi fyrirvaralaust út af Aðalvík
að morgni þriðjudagsins 7. júlí 2015.
Í áhöfn bátsins voru fjórir menn,
þrír þeirra björguðust við harðan
leik en sá fjórði, Magnús Kristján
Björnsson, fórst í slysinu. Þegar
þeir höfðu verið á kili bátsins í tæpa
klukkustund kom smábáturinn Mar-
dís mönnunum til bjargar og var
síðan siglt með þá til Bolungarvíkur.
Úr viðhaldi í rann-
sóknarleiðangur
Þór snýr heim frá Póllandi Hefja rannsókn á sjóslysi
Morgunblaðið/Ómar
Togkraftur Öflugt spil Þórs hífir
flakið af hafsbotni Aðalvíkur.
Prófessorarnir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir og Steinunn Gestsdóttir hafa
verið ráðnar í störf aðstoðarrektora við Háskóla Íslands og Guðmundur
Ragnar Jónsson prófessor í stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslu skólans
frá 1. júlí næstkomandi.
Fram kemur í tilkynningu frá Háskóla Íslands í gær að þessar ráðningar
séu gerðar í framhaldi af breytingum á skipulagi sameiginlegrar stjórn-
sýslu skólans.
Aðstoðarrektorar og fram-
kvæmdastjóri ráðnir við HÍ
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Yfirmenn við HÍ Guðmundur Ragnar Jónsson, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir,
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Steinunn Gestsdóttir.