Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 19

Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Vatnsleikur Vatnssopinn er alltaf svalandi. Þessum tveimur börnum þykir ekki leiðinlegt að leika sér að því að næla sér í vatnssopa og að sjálfsögðu skiptast þau bróðurlega á að súpa af bununni. Eggert Íslensk stjórnmál auðkennast af stað- festu og stöðugleika Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks annars vegar og stefnuleysi og sundr- ungu vinstri manna hins vegar. Þannig eru ríkisstjórnarflokkarnir einir núverandi flokka sem voru með við stofnun lýðveldisins 1944. Vinstri flokkar þess tíma hafa horfið og eftir það hefur umrót þeirra einkennst af kennitöluflakki og nafnauppfinningum: Alþýðu- eitthvað, jafnaðarmanna-hitt og þetta, samtök, fylkingar og flokkar, sósíalistar, kommúnistar, grænir o.s.frv. Þrátt fyrir að nöfnum sé sí- fellt breytt, gengið sé á forðabúr tungunnar og hæsta stig lýsingar- orða notað, þá skapast aldrei lang- varandi samstarfsgrundvöllur vinstri manna. Stjórnmálastefna þeirra er haldbær eins og froða í fjöruborði, efnisþættir hennar sam- eiginleg fyrirlitning á þjóðararfi Ís- lendinga, lýðræðisfyrirkomulagi Al- þingis, stjórnarskrá lýðveldisins, embætti forseta Íslands og Hæsta- rétti. Kenningar, fyrir- myndir og samstarf er sótt erlendis til niður- rifsstarfsemi innan- lands. Fyrir og eftir seinni heimsstyrjöldina til Sovétríkjanna og eftir fall þeirra til Evr- ópusambandsins. Stefnt er að eyðilegg- ingu sjálfstæðra þjóð- ríkja og afnámi ein- staklingsfrelsis, þar sem lýðræðiskjörnir embættismenn eru sviptir völdum með eða án hervalds og þjóðir beygðar undir alþjóðlegt vald. Þannig var það í upphafi alþjóðasamtaka kommún- ista, Komintern, en í dag hefur Brussel íklæðst Moskvufrakkanum skreyttum nýjum formerkjum. Ekk- ert er nýtt undir sólinni og alræðis- draumur vinstri manna í dag er sá sami og hingað til hefur kostað hundruð milljóna manna lífið. Boris Johnson, fv. borgarstjóri London, segir að markmið ESB sé ofurríkið – hið sama og Hitler, Napóleon og Rómarkeisurum mistókst að reisa. Slíkt endar alltaf með skelfingu. Líklega þarf að fara til tíma svartadauða 1402 til að gera sam- anburð við stærsta efnahagslega áfall í sögu þjóðarinnar. Umfang og afleiðingar stærsta bankaráns Ís- landssögunnar eru þyngsta áfall þjóðarinnar á lýðveldistímanum. Vegna snarræðis Sjálfstæðisflokks- ins, viðbragða forseta Íslands og andspyrnu þjóðarinnar gegn Ice- save tókst að afstýra gjaldþroti. Sem betur fer hafa margir efnahagsafbrotamenn hlotið dóm, þótt höfuðpaur stærsta gjaldþrota- búsins gangi enn laus. Sá maður reyndi ítrekað en árangurslaust að múta þáverandi seðlabankastjóra og fv. forsætisráðherra. Með aðstoð Evu Joly, saksóknara í Frakklandi og Noregi, tókst að skapa embætti sérstaks saksóknara. Hefur allt gengið eftir sem sagt var, að fjár- málahrunið væri skólabókardæmi í efnahagsafbrotum. Varað var við, að þýfi hlaðnir glæpamenn tækju yfir fjölmiðla til gegndarlausra árása á óvini sína og til að slá ryki í augu al- mennings. Með keyptum pennum er svörtu breytt í hvítt og venjuleg um- ræða eyðilögð með persónuárásum svo sannleikurinn nái ekki fram að ganga. Þessi skaði er víðtækur og lýðræðislega kjörnir embættismenn undir álagi að verja sig og stjórn- arskrá lýðveldisins. Jafnvel þótt menn afpláni dóma halda þeir áfram að ráðast á heiðarlega embættis- menn. Gerir það landsmönnum erfitt fyrir í uppgjöri við orsakir og afleið- ingar hrunsins. Er stjórnmálalegu uppgjöri þjóðarinnar enn ólokið eins og t.d. innilokuð skjöl á Alþingi sýna. Sálfræðilegt uppgjör er yfirstand- andi og forsetakosningarnar kjörið tækifæri til að vinna áfram í þeim málum. Efnahagslegu uppgjöri mið- ar vel vegna árangurs Icesave- baráttu þjóðarinnar. Þrátt fyrir að vinstri menn neiti nú hástöfum að þeir aðhyllist ESB eða hafi reynt að koma klyfjum Ice- save á komandi kynslóðir lands- manna, halda þeir uppteknum hætti undir nýjum felumerkjum. Fáir vilja lengur kannast við Samfylkinguna en vonin lifir áfram að geta selt þjóð- ina og fiskimiðin fyrir nokkrar evrur í eigin vasa og krækja í feitan bita í Brussel. Átökin á meginlandinu hafa harðnað og uppbygging ESB-hers hafin. Rætt er um ný nafnnúmer íbúa aðildarríkjanna fyrir skatt og sameiginlega fjármálastjórn. Stór- ríki ESB er í burðarliðnum og minni þjóðum mun áfram verða fórnað. Enginn kemst hjá átakalínunni um sjálfstæði eða uppgjöf þjóða. Það er döpur sýn að sjá landsölu- lið Íslendinga með dr. Guðna Th. Jó- hannesson um borð halda upptekn- um hætti. Beitir sagnfræðingurinn marxískri kenningu um „minnisleysi fjöldans“ (M. Halbwachs „La Mé- moire collective“ 1950) og þjóðhetju- formúlu Halldórs Laxness til að tala niður til þjóðarinnar og draga úr henni kjark. Ekki að undra að fv. innanríkis- ráðherra, Ögmundur Jónasson, hafi skrifað grein með fyrirsögninni „Lít- il fræði í sagnfræði Guðna“ þar sem hann segir sagnfræðinginn skrifa af vanþekkingu um Icesave. Í sama streng tekur Egill Helgason í grein- inni „Icesave og flokkslínurnar“ þar sem hann ásakar sagnfræðiprófess- orinn um að breiða yfir staðreyndir. Afstaða sagnfræðiprófessorsins til stjórnmálamanna er að þeir stundi sögufölsun og afvegaleiði fólk með „hetjusögum“ og „þjóðrembu“. Lýs- ir hann landsmönnum sem „fávísum lýð“. Í forsetakosningunum er það markmið landsöluliðsins að draga fána ESB að húni á Bessastöðum. Enn á ný þarf þjóðin að rísa upp. Í þetta skipti til að bjarga Bessastöð- um. Eftir Gústaf Adolf Skúlason »… en vonin lifir áfram að geta selt þjóðina og fiskimiðin fyrir nokkrar evrur í eigin vasa og krækja í feitan bita í Brussel Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fv. aðalritari Smáfyrirtækjabandalgs Evrópu. Samfyrirlitning landsöluliðsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.