Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 25

Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Atvinnuauglýsingar Auglýst er eftir skólastjóra/kennara í Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi á Ströndum. Um er að ræða lítinn skóla í stórbrotnu umhverfi. Vegna smæðar samfélagsins eru kennarar með börn á skólaaldri hvattir til að sækja um. Starfið losnar haustið 2016 og er samkomulag- satriði hvenær nýr skólastjóri/kennari hefur störf. Húsnæði í boði og möguleikar á annari atvinnu. Nánari upplýsingar veitir Eva Sigur- björnsdóttir oddviti s. 451-4001 eða arneshreppur@arneshreppur.is Umsóknarfrestur er til 10.júní 2016. Deiliskipulag fyrir Tröllenda í Flatey Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 14.apríl 2016 að auglýsa sam- kvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrirTröllenda í Flatey. Á athafnasvæði við ferjuhöfn í Flatey er komið fyrir fjórum byggingarlóðum . Skilgreind er lóð fyrir gamlan geymsluskúr sem stendur vestan við fiskvinnsluhús, vatnstank, olíutank, fjarskiptamastur og lóð undir nýbyggingu norðaustast á svæðinu. Við gildistöku þessa deiliskipulags fellur úr gildi deiliskipulag fyrir olíubirgðarstöð og rafstöðvarhús í Flatey sem samþykkt var 20.10.2000. Skipulagsuppdráttur með greinargerð liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps frá 2.júní til 15.júli 2016. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.reykholar.is. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a eða á netfangið skrifstofa@reykholar.is fyrir 15.júlí merkt “Deiliskipulag fyrirTröllenda í Flatey”. Reykhólar 27,maí 2016 Bogi Kristinsson Magnusen Skipulags og byggingarfulltrúi Raðauglýsingar 569 1100 Tilkynningar Rangárþing eystra Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi deiliskipulagstillögu. Rauðsbakki – Deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti á fundi sínum 7. apríl 2016 deiliskipulagstillögu fyrir Rauðsbakka, Rangárþingi eystra. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið send umsögn sveitarstjórnar. Óverulegar breytingar á tillögunni voru gerðar eftir auglýsingu. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra. Tjaldhólar – Deiliskipulag Deiliskipulagstillagan tekur til tæplega 3 ha. svæðis úr landi Tjaldhóla. Tillagan tekur til tveggja byggingarreita, annars vegar fyrir stækkun útihúsa og hins vegar fyrir byggingu fjögurra gestahúsa. Káragerði – Deiliskipulag Deiliskipulagstillagan tekur til um 5 ha. svæðis úr jörðinni Káragerði, Rangárþingi eystra. Tillagan tekur til tveggja byggingarreita fyrir íbúðarhús, bílskúr og útihús. Einnig gerir tillagan ráð fyrir nýrri aðkomu að Káragerði frá Landeyjavegi nr. 252. Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst til kynningar eftirfarandi lýsing aðalskipulagsbreytingar í Rangárþingi eystra Hvolstún / Nýbýlavegur – Lýsing aðalskipulagsbreytingar Sveitarstjórn Rangárþing eystra samþykkti á fundi sínum 7. apríl 2016, lýsingu aðalskipulagsbreytingar vegna breyttrar landnotkunar á Hvolsvelli. Viðfangsefni aðalskipulagsáætlunarinnar er breyting landnotkunar á hluta svæðis sem áður var skilgreint sem opið svæði við Ölduna. Íbúðarbyggð (ÍB-111) er samkvæmt því stækkað til norðurs um 0,4 ha og opna svæðið (OP-123) minnkað að sama skapi. Skilgreindri reiðleið á svæðinu er breytt. Ekki er um að ræða aðrar breytingar. Markmiðið með breytingunni er að þétta byggð og gefa kost á hagkvæmri uppbyggingu nýrra íbúða á Hvolsvelli. Skortur er á smærri íbúðum, m.a. í lágreistu fjölbýli. Uppbygging íbúða á svæðinu stuðlar að góðri nýtingu núverandi vega/gatna og veitna. Í dag er svæðið opið grænt svæði sem ekki er nýtt sérstaklega til útivistar. Skipulagsvinna mun fara fram á tveimur skipulags- stigum. Annars vegar sem breyting á aðalskipulagi og hins vegar sem breyting á deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Hvolstúni. Ofangreindar tillögur að deiliskipulagi fyrir Tjaldhóla, Káragerði og lýsingu aðalskipulagsbreytingar fyrir Hvolstún / Nýbýlaveg er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 3. júní 2016. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum við deiliskipulags- tillögur fyrir Tjaldhóla og Káragerði til 15. júlí 2016. Ábendingum varðandi lýsingu aðalskipulagsbreytingar fyrir Hvolstún / Nýbýlaveg má koma til skipulagsfulltrúa á netfangið bygg@hvolsvollur.is fyrir 17. júní 2016. F.h. Rangárþings eystra Anton Kári Halldórsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir hér með eftirtaldar skipulagstillögur: Tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hafnarsvæði á Dalvík, breyting á þéttbýlisuppdrætti Dalvíkur. Breyting á hafnarsvæði á Dalvík er gerð til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða. Þar er m.a. gert ráð fyrir fjórum landfyllingum, samtals um 5 ha að flatarmáli, og færslu á núverandi viðlegukanti. Einnig eru gerðar breytingar á aðliggjandi athafnasvæðum. Vegtenging yfir Brimnesá, breyting á þéttbýlisuppdrætti Dalvíkur. Gert er ráð fyrir framlengingu Böggvisbrautar til norðurs og brú yfir Brimnesá. Breytingin er til samræmis við samþykkt deiliskipulag og fyrri breytingar á sveitarfélagsupp- drætti aðalskipulagsins. Tillaga að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið afmarkast af tengibrautunum Hafnarbraut og Gunnarsbraut í vestri, Flæðavegi í suðri, Brimnesá í norðri og sjávarborði í austri. Ekki liggur fyrir deiliskipulag nema af hluta skipulagssvæðisins og eru skipulagsákvæði nú sameinuð í eina áætlun. M.a. er gert ráð fyrir fjórum landfyllingum, samtals um 5 ha að flatarmáli, færslu á núverandi viðlegukanti og nýjum og breyttum byggingarlóðum. Einnig eru gerðar breytingar á aðliggjandi athafnasvæðum og gert ráð fyrir göngustíg eftir nýjum sjóvarnar- garði á Sandskeiði. - - - - Ofantaldar skipulagstillögur og umhverfisskýrsla verða til sýnis í ráðhúsi Dalvíkurbyggðar frá og með fimmtudeginum 2. júní nk. til fimmtudagsins 14. júlí 2016 og á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is. Aðalskipulagsbreytingarnar liggja einnig frammi hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík á sama tíma. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar til fimmtudagsins 14. júlí 2016. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal þeim skilað á skrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í tölvupósti til skipulags- og byggingarfulltrúa, borkur@dalvikurbyggd.is Börkur Þór Ottósson Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs Auglýsing um skipulagsmál í Dalvíkurbyggð Nánari upplýsingar veitir Kristján Óskarsson, kro@nmi.is Sótt er um á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, www.nmi.is Aðilar að VSSÍ geta sótt um styrk í menntasjóð VSSÍ og SA fyrir allt að 80% af námskeiðsgjaldi. Umsóknareyðublöð eru áwww.vssi.is Starfsmenntasjóður SA og VSSÍ Viltu verða góður stjórnandi? Verk- og stjórnendanám er fjarnám fyrir starfandi og verðandi millistjórnendur í framleiðslu- og þjónustufyrirtækjum. Markmiðið er að gefa þátttakendum tækifæri á að stunda stjórnendanám á sínum forsendum, auka faglega og hagnýta þekkingu á mannauðs- stjórnun með því að efla þekkingu, leikni og hæfni. Ég – Verkstjórinn /millistjórnandinn (Lota 1) hefst 22. september 2016. Þjónustuauglýsingar Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í síma569 1390 eða á augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.