Morgunblaðið - 02.06.2016, Side 30

Morgunblaðið - 02.06.2016, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Sjálfsvíg, örvænting og rökvísi fjar- stæðunnar. Sjálfsvíg í ljósi heimspeki Kierkegaards um sjálfið og örvænt- ingu nefnist meistararitgerð Kristi- ans Guttesen í heimspeki við Háskóla Íslands sem hann skilaði nýverið. Markmið ritgerðarinnar er að greina ástandið sem er fyrir hendi þegar ákvörðun er tekin um sjálfsvíg í ljósi tilvistarspeki. Hugarástand manneskjunnar á því augnabliki þeg- ar hún sökum þunglyndis tekur ákvörðun um sjálfsvíg er skoðað út frá örvæntingarkenningu danska heimspekingsins Kierkegaards. Til að greina þetta ástand í fyrirbæra- fræðilegu ljósi voru notuð tvö bók- menntaverk, annars vegar 4.48 Geð- truflun eftir írska leikskáldið Söruh Kane og Útlendingurinn eftir nób- elsverðlaunahöfundinn Albert Camus. Velt efninu lengi fyrir sér „Nokkru áður en ég byrjaði í meistaranámi í heimspeki framdi ná- inn félagi minn sjálfsvíg. Þegar ég var kominn vel áleiðis í náminu og var beðinn um að huga að rannsóknarefni áttaði ég mig á því að frá því að hann fyrirfór sér hafði ég ómeðvitað velt þessu fyrirbæri fyrir mér stanslaust,“ segir Kristian spurður hvers vegna þetta efni hafi orðið fyrir valinu. Hann bendir á að þegar einhver ná- kominn styttir sér aldur fari ákveðið ferli af stað og óhjákvæmilega reyni fólk oft að leita að einhverri merkingu í þessum óskiljanlega atburði. Kristian mátaði ýmsar heimspeki- kenningar við efnið. „Ég datt niður á tilvistarstefnuna, en þar er unnið með tilgang og tilgangsleysi. Ég sá að hún gæti gefið manni innsýn í fyrstu per- sónu sjónarhorn. Sá sem tekur ákvörðun um sjálfsvíg er kannski að leita að tilgangi. Hann nær einhvern veginn að slíta sig frá einhverju óbærilegu ástandi með þessari gjörð,“ segir Kristian. Til þess að ná almennilega utan um efnið gerði hann fyrirbærifræðilega greiningu á augnablikinu þegar ein- staklingur sem þjáist af þunglyndi tekur ákvörðun um sjálfsvíg – hvaða hugarástand hann eða hún er í þá og þegar. „Ég kalla þetta tilvistarfyrirbæra- fræðilega greiningu. Þetta hugtak í heimspekinni gengur, eins og áður segir, út á að lýsa reynslu af fyrir- bærum í heiminum út frá fyrstu per- sónu sjónarhorni en reynslan birtist í vitundinni. Gallinn er samt sá að það er ekki hægt að gera það út frá þess- ari ákvörðun, því að ef ákvörðunin gengur eftir er reynslan ekki til stað- ar, eins og gefur að skilja. Í raun og veru er sjálfsvíg ekkert svar og ákvörðunin er handan við siðferðilega umræðu. Handan við venjulega heimspekilega umræðu,“ segir Kristian. Bókmenntir lýsandi fyrir hugarástand Þegar þarna er komið við sögu til að dýpka skilninginn þurfti að nota bókmenntatexta til að greina ástand- ið. Verkið 4.48 Geðtruflun eftir Söruh Kane fjallar nákvæmlega um ákvörð- unina um sjálfsvíg, en það var sett ný- lega á fjalir Þjóðleikhússins. Verkið er túlkað sem sjálfsmorðsbréf höf- undar, en hún framdi sjálfsvíg áður en það var sett á fjalirnar. Leikverkið er í raun og veru lýsing á örvænting- arástandi. Hitt verkið, Útlending- urinn eftir Camus, fjallar ekki á neinn hátt um sjálfsvíg heldur notar Kristi- an þann texta til að lýsa tilteknu hug- arástandinu, hvernig einstaklingur fyllist af vonleysi. Hann bendir á að þegar vonleysið er algjört, eins og í Útlendingnum, fæst betri skilningur á söguröddinni í 4.48 Geðtruflun, sér- staklega þegar hún er komin á þann stað að hana langar ekki að lifa en hana langar heldur ekki að deyja. „Þegar maður skoðar þetta út frá þessu fyrirbærafræðilega sjónar- horni skilur maður einstaklinginn, sem er fangi þessa vonleysis, betur. Eins og þetta gerist í Útlendingnum er hann í lok skáldsögunnar í þeim aðstæðum að hann getur ekki sótt styrk úr minningunum í fortíðinni og getur ekki búið til von inn í framtíð- ina, út frá stöðu sinni. Hann er tekinn til fanga vegna morðs af gáleysi. Hann býr hvorki yfir eftirsjá né þess- um sammannlega þætti um viljann til að uppfylla eigin þarfir og blómstra. Hann stendur utan við sjálfan sig og upplifir sig eins og útlending í eigin lífi. Þannig er hann uppfullur af von- leysi. Þegar hann bíður eftir aftöku langar hann að böðullinn komi inn og sæki sig. Í ritgerðinni segi ég að þetta hugarástand upplifi sjálfsvegandinn á þessu augnabliki. Þarna gæti ég sagt að þessi ákvörðun persónunnar væri rökvís. Hann er fastur í fjarstæðu eigin tilveru og þá verður svona ákvörðun útgönguleið. Hún er hvorki góð né slæm í siðferðilegum skilningi. Á þessari ögurstundu þegar þessi ákvörðun liggur fyrir, í krafti þessa vonleysis, getur manneskja sem þjá- ist af þunglyndi séð að þetta er rök- rétt í nokkurs konar tilvistarlegum skilning,“ segir Kristian, sem tekur þó skýrt fram að sjálfsvíg sé engin lausn. Mikilvæg reynsla „Mér fannst þetta dýpka skilning minn á þessu fyrirbæri og vandamáli sem slík ákvörðun snýr að út frá ein- staklingi sem glímir við þunglyndi. Ég hef sjálfur tekist á við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Og við þessi ritgerðarskrif hef ég fengið dýpri skilning og annað sjónarhorn á fyrir- bærið en ég myndi ekki segja að það hafi fyrirbyggt eitthvað hjá mér að fjalla um efnið. Engu að síður lít ég á þetta sem mikilvæga reynslu. Ef maður er þunglyndur er maður þung- lyndur og þarf fyrst og fremst að horfast í augu við hvað maður er að fást við. Þegar svona svartnætti hellist yfir mann kemst ekkert annað að,“ segir Kristian um eigin reynslu. Sambandsslit og sjálfsvíghugsanir Englablóð, væntanleg ljóðabók Kristians, fjallar um þunglyndi og sjálfsvígshugsanir, sama þema og rit- gerðin. Hann safnar fyrir útgáfu á henni og einnig annarri ljóðabók, Hendur morðingjans, á Karolina fund. Englablóð inniheldur ljóð og prósa, bæði stutta og langa, og er nokkuð persónuleg að eigin sögn. Hin, Hendur morðingjans, er stakur ljóðabálkur en þema hennar fjallar um samband, sambandsslit. Söfnunarsíðuna er að finna á eftir- farandi slóð: www.karolinafund.- com/project/view/1386 Sjálfsvíg í heimspekilegu ljósi  Kristian Guttesen greindi ástandið sem er fyrir hendi þegar ákvörðun er tekin um sjálfsvíg í meist- araritgerð í heimspeki  Mikilvæg reynsla og öðlaðist dýpri skilning á eigin ástandi, segir hann Morgunblaðið/Golli Svartnætti „Þegar svona svartnætti hellist yfir mann kemst ekkert annað að,“ segir Kristian Guttesen um reynslu sína af þunglyndi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.