Morgunblaðið - 02.06.2016, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 02.06.2016, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Horfur er nafn nýrrar sýningar sem opnuð verður í Skoti Ljós- myndasafns Reykjavíkur í dag, fimmtudaginn 2. júní. Myndirnar á sýningunni eru eftir Charlottu Maríu Hauksdóttur. „Verkið Horfur var unnið á Ís- landi haustið 2015 þar sem við fjöl- skyldan dvöldum tímabundið,“ læt- ur Charlotta hafa eftir sér. „Fyrir utan svefnherbergisgluggann var garður með miklum gróðri sem ég fékk strax áhuga á að mynda. Við hliðina á glugganum var segultafla sem á hékk lítil vatnslitamynd og fékk ég hugmynd um að hengja myndir á töfluna, bæði fréttamynd- ir og persónulegar myndir. Það sem vakti áhuga minn var samspilið milli þess sem var að gerast úti í heimi, fyrir utan gluggann og í lífi fjölskyldunnar. Á þessum fjórum mánuðum fylltist taflan smám sam- an, á meðan gróðurinn hopaði fyrir vetri. Yfir þennan tíma tók ég 80 myndir og er það því einungis sýnishorn af verkinu hér í Skotinu. Ég hafði gert áþekkt verk á ár- unum 2008-2009 sem ég setti fram í handgerðri bók sem sýnd var í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Þjóð- minjasafninu og nú síðast í Susan Eley Fine Art í New York,“ segir í fréttatilkynningu frá safninu. Charlotta er fædd í Reykjavík en býr og starfar í Palo Alto í Kali- forníu. Charlotta hefur haldið einkasýn- ingar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum. Myndir hennar má finna bæði í opinberri og einkaeigu um allan heim og hafa þær birst í fjölmörgum bókum og tímaritum. Ljós Samspil milli þess sem er að gerast utan gluggans og innan hans. Samspil andstæðna í Ljósmyndasafninu Í tengslum við Hátíð hafsins og sjó-mannadaginn verður opnuð listsýn- ing í Alliance française í dag, fimmtudaginn 2. júní, klukkan 17. Alliance française er í Tryggva- götu 8 í Reykjavík. Laugardaginn 4. júní kl. 13 er fólki boðið að koma með börn sín á námskeið í fiskiprenti í tilefni af Há- tíð hafsins 2016. Listakonan Josée Conan kennir. Húsnæðið verður líka opið 5. júní kl. 12-16 í tilefni af sjó- mannadeginum. Listaverkin á sýningunni eru eftir Josée Conan, sem beitir svokallaðri Gyotaku-tækni í sköpun sinni. Gyo- taku er japanska og þýðir fiskafar. Tæknin á uppruna sinn í fornri jap- anskri hefð sem ku hafa orðið til þegar japanskir sjómenn vildu sýna keisaranum sínum risafisk sem þeir veiddu en ferðin til hans tók of lang- an tíma. Þeir bjuggu því til eft- irmynd af fisknum með því að væta fiskinn með bleki úr kolkrabba og leggja hríspappír yfir. Eftirmynd fiska á sjó- mannadag Morgunblaðið/RAX Fiskalist Listviðburðir tengdir sjó- mannadeginum eru margir. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Listunnendum líkar ekki við íþrótt- ir og öfugt, sagði einn heimspeki- prófessora minna í tíma um frum- speki í forn-grísku samfélagi í háskólanum í gamla daga. En þótt hann hafi haft rétt fyrir sér um flest, þá hafði hann ekki rétt fyrir sér um þetta. Aristóteles og íslenska landsliðið Enginn Íslendingur þarf að hafa lesið ritið um skáldskaparlistina eft- ir Aristóteles til að átta sig á því að ævintýri ís- lenska landsliðs- ins í knattspyrnu smellpassar inní öll lögmál þeirrar listar. Þarna er glæsilegur inn- gangur, þarna eru óskaplegar hindranir og ómögulegir bardagar en samt sigr- ar liðið hið ómögulega. En svo er eftirmálinn þarna í Frakklandi óskrifuð saga, en það er í sjálfu sér aukaatriði. Þetta er búið að vera svo frábært fram að þessu. EM er mót þjóða sem telja 750 milljónir manns Hver hefði getað trúað því að 320 þúsund manna þjóð myndi komast á svona stórmót heimsins eins og 750 milljóna manna álfa Evrópu heldur í knattspyrnu. EM-mótið er eitt af stóru mót- unum í knattspyrnu í heiminum í dag og til þess að komast þangað þurfti íslenska liðið að sigra brons- hafa af síðasta heimsmeistara- mótinu í knattspyrnu, Hollendinga, stórþjóðir fótboltans eins og Tékk- land, Tyrkland og Kasakstan. Ok, Kasakar eru kannski ekki stórþjóð í fótbolta en hinar þjóð- irnar eru það. Bæði Tékkland og Holland hafa leikið til úrslita á stærstu mótum heimsins og Tyrk- land náði bronsi á HM á sínum tíma. Fjármögnun erfið við að filma eitt stærsta ævintýri Íslands Maður hefði haldið að fjár- mögnun á svona ævintýri væri nokk öruggt dæmi, en fjármögnunin gekk víst illa. Aðstandendur mynd- arinnar sóttu þrisvar um styrk til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands en fengu tvisvar nei, en í þriðja skiptið fengu þeir já. Þá fór boltinn að rúlla, það er hjá þeim. Hann rúllaði mjög vel allan tímann hjá landslið- inu. Á endanum komu einkaaðilar í verkefnið og þetta virðist vera að ganga upp hjá þeim svona fjárhags- lega. Tveggja ára vinna Aðstandendur myndarinnar, þeir fremstu eru Sævar Guðmundsson og Sölvi Tryggvason, eru sáttir. Margir lögðu þeim samt lið, mjög margir. Þeir hafa eytt tveimur ár- um í að koma þessari mynd í bíó- húsið og hún verður forsýnd í kvöld, fimmtudaginn 2. júní, en verður síðan sýnd okkur venjulega fólkinu, sem fær aldrei neina boðs- miða, í margar vikur í framhaldinu. Diljá Ámundadóttir er kynningarfulltrúi myndarinnar og aðspurð hvort hún sé mikill aðdá- andi knattspyrnu segir hún að svo sé ekki. „Þessi mynd er einmitt ekki aðeins fyrir fótboltaáhuga- menn,“ segir Diljá. „Myndin er um svo miklu meira en fótbolta. Hún er um mannleg samskipti og allt það mannlega í okkur. Ég hef heyrt í svo mörgum sem hafa séð myndina sem eru ekki aðdáendur leiksins en eru mjög ánægðir með myndina og það er svo gaman að heyra það.“ Aðspurður segir Sölvi Tryggva- son að þeir séu fyrst og fremst þakklátir. „Þetta verkefni hefði get- að klúðrast á svo mörgum stigum í vinnunni að þegar hún kemur nú loksins út að þá mun okkur létta mjög mikið,“ segir Sölvi. „Ég fékk þessa hugmynd að gera þessa mynd löngu áður en þetta ævintýri byrj- aði. Það var þessi veisla í kringum HM sem kveikti í manni, af því að við vorum svo nálægt því að komast á stórmót þá. Þá hugsaði maður með sér að það yrði einhver að filma þessa stráka. Við höfðum samband við KSÍ og þetta tók allt sinn tíma. Fyrst þurftum við sam- þykki þaðan. Síðan þegar við vorum búnir að sannfæra þá þurftum við samþykki frá þjálfurunum. Þegar við vorum búnir að sannfæra þá um ágæti verkefnisins þá fengum við að hitta landsliðsmennina sjálfa og þá tók við tímabil þar sem við þurftum að vinna traust þeirra. Því auðvitað er ekki sjálfgefið að vera einlægur og hreinskilinn gagnvart kvik- myndagerðarmönnum þegar þú ert í stöðu landsliðsmanns. En þegar þeir voru búnir að átta sig á því að við myndum ekki nota mismæli þeirra eða mistök í viðtölum til að skella í forsíðufrétt í blöðunum þá fór boltinn að rúlla og þeir treystu okkur.“ Íþróttaafrekinu breytt í list Morgunblaðið/Eggert Samtíminn Okkar Akkilesar og Hektorar eru nú á knattspyrnuleikvöngum. Þeir berast kannski ekki á banaspjót en þeir berjast engu að síður.  Ferðin til Frakklands filmuð og frumsýnd Diljá Ámundadóttir 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 4/6 kl. 19:30 78.sýn Lau 11/6 kl. 15:00 aukasýn Sun 12/6 kl. 19:30 aukasýn Sun 5/6 kl. 19:30 79.sýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn Sýningum lýkur í vor! Mugison (Kassinn) Fim 2/6 kl. 20:30 Fös 10/6 kl. 20:30 Sun 19/6 kl. 20:30 Fös 3/6 kl. 20:30 Sun 12/6 kl. 20:30 Fim 23/6 kl. 20:30 Lau 4/6 kl. 20:30 Fim 16/6 kl. 20:30 Fös 24/6 kl. 20:30 Sun 5/6 kl. 20:30 Fös 17/6 kl. 20:30 Lau 25/6 kl. 20:30 Fim 9/6 kl. 20:30 Lau 18/6 kl. 20:30 Sun 26/6 kl. 20:30 Miðasala á mugison.com Ekkert að óttast (Kassinn) Lau 4/6 kl. 19:30 Áhugaleiksýning ársins! DAVID FARR MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fim 2/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00 Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu. Njála (Stóra sviðið) Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.