Orð og tunga - 01.06.2007, Side 63

Orð og tunga - 01.06.2007, Side 63
Eiríkur Rögnvaldsson: Textasöfn og setningagerð: greining og leit 53 dómum málnotenda. Áhrif Chomskys voru mjög mikil og næstu ára- tugina þótti fæstum setningafræðingum ástæða til að leggjast í dæma- söfnun úr textum til að rökstyðja kenningar sínar, heldur bjuggu sjálfir til dæmi sín og dæmdu þau tæk eða ótæk. Þessi aðferð þykir vissulega enn góð og gild, en á seinni árum hafa menn aftur horfið til dæma- söfnunar úr textum og láta aðferðirnar vinna saman og bæta hvora aðra upp. í þessum kafla er drepið á nokkrar forsendur þess ágrein- ings sem hefur verið um gildi textadæma og rætt sérstaklega um það hvernig mismunandi fræðilegar forsendur geta leitt til mismunandi túlkunar þess vitnisburðar sem textarnir gefa. 2.1 Heimild um málhæfni eða málbeitingu? Ein meginröksemd Chomskys fyrir því að textasöfn væru gagnslaus í setningafræðilegri greiningu og röksemdafærslu var sú að þau væru ævinlega og óhjákvæmilega takmörkuð, endanleg, og tilviljanakennd (sjá t.d. Chomsky 1957:13-17). Auðvelt er t.d. að tilfæra ýmis dæmi um setningar og setningagerðir sem sjaldan eða aldrei finnast í texta- söfnum, jafnvel mjög stórum, en málhöfum ber þó saman um að séu tækar. Þetta hefur oft verið notað sem rök fyrir því að málhæfnin sé að verulegu leyti meðfædd; menn geti ekki hafa lært slíkar setningar af öðrum, heldur hljóti að hafa einhverja meðfædda þekkingu á þeim reglum sem um þær gilda. Skiptar skoðanir um þessi mál leiddu til hálfgerðs stríðs milli mál- kunnáttufræðinga (generatífista) og þeirra sem fengust við gagnamál- fræði (corpus linguistics). Chomsky talaði víða óvirðulega um gagna- málfræði, og í ritum gagnamálfræðinga er að finna mörg og beitt skot á Chomsky og fylgismenn hans (sjá um þetta t.d. McEnery og Wilson 1996:4-17,61-66 o.v.). Hér er þó rétt að halda því til haga að þarna er að verulegu leyti um sýndarágreining að ræða - meðvitað eða ómeðvit- að. Menn voru nefnilega ekki að tala um sama hlutinn. Chomsky var að tala um málhæfni (competence) en gagnamálfræðingar skoða mál- beitingu (performance) (sjá t.d. Chomsky 1965:4). Chomsky var sem sé að tala um málfræðina, málkerfið, en gagnamálfræðingar skoða af- urð kerfisins - málið sjálft. Þarna á milli er flókin víxlverkun sem ekki hefur verið kortlögð til fulls, en meginatriðið er að báðar aðferðirnar eiga fullan rétt á sér og eru nauðsynlegar - en þær svara mismunandi spurningum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.