Fréttablaðið - 18.01.2017, Page 18
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Deila um notkun og skráningu
á vörumerkinu Gamma verður
útkljáð fyrir dómstólum. Héraðs
dómur Reykjavíkur úrskurðar á
fimmtudag um frávísunarkröfu
fasteignafélagsins Gamma ehf. á
dómsmáli sem hófst með stefnu
fjármálafyrirtækisins Gamma Cap
ital Management hf. Eigendur fast
eignafélagsins hafa einnig stefnt
síðarnefnda félaginu.
„Þetta býður upp á rugling og
við viljum fá úr þessu skorið hvað
er rétt og hvað er rangt. Það eru
stefnur á báða bóga en engin ill
indi eða neikvæðni af okkar hálfu.
Gamma Capital Management rekur
sitt fyrirtæki og gerir það vel en von
andi kemst niðurstaða í málið og þá
munu menn væntanlega una henni
og lífið halda áfram,“ segir Magnús
Stephensen, stjórnarmaður og einn
eigenda Gamma ehf.
Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður
Gamma Capital Management í mál
inu, staðfestir í samtali við Markað
inn að forsvarsmenn fyrirtækisins
fari fram á að skráning Gamma
ehf. á vörumerki fasteignafélags
ins verði ógilt. Fyrrnefnda félagið
á og rekur Almenna leigufélagið,
annað stærsta leigufélag landsins á
almennum markaði. Gamma ehf. er
í eigu Magnúsar og Hannesar Hilm
arssonar, forstjóra flugfélagsins Atl
anta, og á og leigir út fasteignirnar
Skólavörðustíg 7, Bergstaðastræti 4
og Týsgötu 8 ásamt nokkrum öðrum
húsum í Reykjavík,
Firmaheiti Gamma ehf. var
skráð árið 2005 en Gamma Capital
Management, sem er öllu umsvifa
meira fjármálafyrirtæki með yfir
115 milljarða króna í stýringu fyrir
meðal annars lífeyrissjóði, fyrirtæki
og einstaklinga, var stofnað árið
2008. Magnús Stephensen segir að
nafnið sé honum mjög kært.
„Þetta er búið að vera í minni fjöl
skyldu síðan 1969. Faðir minn rak
fyrirtæki sem hét Gamma og sinnti
ýmissi þjónustu fyrir auglýsinga
stofur, eins og innheimtu. Svo var
nafnið sett á ís en við félagarnir
tókum það svo upp aftur árið 2005
og sitjum nú báðir í stjórn okkar
fasteignafélags sem heitir Gamma
ehf. og hefur starfað síðan þá,“ segir
Magnús. haraldur@frettabladid.is
Slást um vörumerkið
Gamma fyrir dómi
Gamma Capital Management og Gamma ehf. deila um vörumerkið Gamma.
Frávísunarkrafa tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag.„Þetta er
búið að vera í minni fjölskyldu síðan 1969,“ segir Magnús Stephensen.
Gísli Hauksson, forstjóri Gamma Management hf. og hluthafi í fjármálafyrirtækinu. Fréttablaðið/GVa
Faðir minn rak
fyrirtæki sem hét
Gamma og sinnti ýmissi
þjónustu fyrir auglýsinga-
stofur eins og
innheimtu.
Magnús Stephen-
sen, einn eigenda
Gamma ehf.
Einkahlutafélagið Jör var tekið til
gjaldþrotaskipta þann 11. janúar.
Þetta kemur fram í Lögbirtinga
blaðinu en félagið var stofnað utan
um hönnun á fatalínum Jör og versl
unarrekstur við Laugaveg 89.
Félagið var rekið með 25 milljóna
króna tapi árið 2015 og var eigið fé
þess þá neikvætt um rétt tæpar 53
milljónir króna. Það var stofnað
2012 af Guðmundi Jörundssyni og
Gunnari Erni Petersen. Guðmundur
sagði í samtali við Fréttablaðið í
lok nóvember að fyrirtækið væri
í endurskipulagningu og komið á
ákveðinn byrjunarreit. Ný verslun
Jör var í kjölfarið opnuð á horni
Týsgötu og Skólavörðustígs. Sam
kvæmt upplýsingum Markaðarins
er hún rekin af félaginu RE13 ehf.
sem var stofnað í fyrra. Ekki náðist
í Guðmund við vinnslu fréttarinnar.
Jör ehf. tekið til gjaldþrotaskipta
Guðmundur Jörundsson, stofnandi Jör. Fréttablaðið/Daníel
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Hótel við
heimskautsbaug
Frekari upplýsingar veita:
Gunnar Svavarsson, gunnar@kontakt.is
Guðni Halldórsson, gudni@kontakt.is
Nær 970 fm. eign, 15 herbergi með baði, veitingasalur, eldhús
og sér íbúð, auk 480 fm. óinnréttaðrar jarðhæðar.
Góð staðsetning við höfnina. Auðveld kaup.
Hentar vel einstaklingi eða hjónum sem vilja starfa
við ferðaþjónustu í litlu sveitarfélagi á landsbyggðinni
eða sem viðbót við annan sambærilegan rekstur.
Hótel Norðurljós á Raufarhöfn er til sölu.
H
au
ku
r 0
1.
17
Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ)
fékk rétt fyrir áramót tæpa þrjá millj
arða króna upp í kröfur sínar vegna
gjaldþrots Askar Capital hf. ESÍ var
langstærsti kröfuhafi félagsins en
skiptum þess lauk 30. desember.
Kröfur í búið námu 7,4 milljörðum
og fengust rétt rúmir þrír milljarðar
upp í þrotið eða 41 prósent.
Bú Askar Capital, sem var áður
fjárfestingarbanki sem lagði áherslu
á sérhæfðar fjárfestingar á nýmörk
uðum, var tekið til gjaldþrotaskipta
25. september 2015. Höfuðstöðvar
bank ans voru við Suður lands
braut í Reykja vík en óskað var eftir
slitameðferð á félaginu í júlí 2010.
Tryggvi Þór Her berts son var forstjóri
bankans í eitt ár eða frá stofnun hans
árið 2007. Ask ar Capital var hluti
af Milest oneveldi Stein gríms og
Karls Werners sona.
Eignasafn Seðlabankans
fékk nær þrjá milljarða
tryggvi Þór Herbertsson, var forstjóri askar Capital og Steingrímur Wernersson og
Karl Wernersson eigendur bankans.
1 8 . j a n Ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
A
-9
1
2
8
1
B
F
A
-8
F
E
C
1
B
F
A
-8
E
B
0
1
B
F
A
-8
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K