Fréttablaðið - 18.01.2017, Blaðsíða 38
Mjúk og falleg
„satin striped“
Policotton sængurföt.
Sængurver 140x200 cm
Koddaver 50x70 cm
Fullt verð: 6.490 kr.
DORMA HOME
sængurföt
Aðeins 4.868 kr.
Svart eða brúnt
PU-leður.
Stærð: 80x90 H: 105 cm.
Fullt verð: 39.900 kr.
POLO
hægindastóll
ÚTSALA DORMA
NÚ Á FJÓRUM STÖÐUM
Nýttu tækifærið
ÚTSALAN
í fullu fjöri
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 12–16 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
25%
AFSLÁTTUR
Aðeins 19.950 kr.
50%
AFSLÁTTUR
NATURE’S REST
heilsurúm m/classic botni
Verðdæmi
120 x 200 cm
Fullt verð: 79.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
af 120x 200 cm á meðan
birgðir endast.
Svart PU
leður á botni.
Aðeins 59.920 kr.
OPIÐ Á SUNNUDÖGUM Í
DORMA SMÁRATORGI
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Myndefni sýn-ingarinnar má skipta í tvo hluta. Annars vegar myndir af sonum mínum
þremur. Þeir eru fulltrúar þess góða
og fallega í mínu lífi. En svo er það
hitt, sem betur má fara í heiminum.
Hér á ég við vandamál sem lífsnauð-
synlegt er að leysa til þess að tryggja
framtíð barna okkar. Allra barna.“
Segir Katrín Matthíasdóttir mynd-
listarkona en hún opnaði nýverið
málverkasýningu í anddyri Norræna
hússins. Katrín heldur áfram og segir
að fyrir henni sé það sem betur
mætti fara verkefni okkar allra. Það
sé margt aðkallandi sem þarfnist
tafarlausrar athygli og úrlausnar
með öllum tiltækum ráðum.
„Þarna er ég meðal annars að fjalla
um loftlagsbreytingar, ófrið og mis-
skiptingu í heiminum. Og með því
að sýna börnin við þessar aðstæður,
vil ég leggja áherslu á að við erum
öll eins og þráum öll það sama.
Varðandi styrjaldirnar þá vísa ég til
dæmis í nokkrum verkum til Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna sem
segir til um að okkur beri skylda til
þess að vernda börn en samt erum
við ekki að standa okkur nándar
nærri nógu vel hvað það varðar.
Eins er það þannig varðandi
loftslagsbreytingarnar – það er vís-
indaleg vissa fyrir því að þær eru
af mannavöldum, engu að síður
er hrópandi ósamræmi á milli
þess sem við vitum og þess sem
við gerum. Loftslagsbreytingarnar
ógna framtíð mannkyns og alls líf-
ríkis og ef ekkert róttækt er að gert,
þá munu heimsvár magnast. Við
höfum lausnirnar og vald til þess
að breyta þessari þróun en verðum
að bregðast við fljótt.“
Katrín segist ekki tengja saman
verkin með strákunum hennar og
þau sem snúa að alvarlegri málum
með beinum hætti. „Frá því að ég
byrjaði að mála, fyrir tæplega ára-
tug, hef ég verið að mála ástkæra
drenginga mína og þeirra uppvöxt.
Það er nærtækt þar sem þeir eru
hérna á heimilinu og standa mér
nærri. En engu að síður eru þarna
þrjár stórar myndir á sýningunni
þar sem ég læt þá standa í jakka-
fötum fullorðins manns, raunar
jakka föður þeirra. Þeir munu vaxa
úr grasi og erfa jörðina eins og börn
gera. Okkur, fullorðna fólkinu, ber
að vernda börnin og hlúa að æsku
þeirra. Það eru einu sinni misvitrir
menn í jakkafötum sem stjórna
heiminum – og þar vantar sárlega
kvenlegt innsæi – auk þess sem
hinir sömu mættu hugsa meira um
börnin og framtíð komandi kyn-
slóða.
Katrín segir aðspurð að henni
finnist listin vissulega vera góð leið
og önnur nálgun á annars flóknu
viðfangsefni. „Menning og listir geta
verið öflugur samherji í baráttunni
fyrir breyttum og bættum heimi.
Sumir eiga t.d. erfitt með að lesa ein-
hverjar vísindagreinar og reyna að
skilja þær og þetta er svona nálgun
sem kannski hentar þeim. Ég held
að það þurfi að fjalla um þessi mál
frá ýmsum sjónarhornum og með
sem fjölbreyttustum hætti.“
Katrín segir að hennar vendi-
punktur í þessum efnum hafi verið
þegar hún sá heimildarmynd Als
Gore um loftslagsbreytingarnar á
sínum tíma. „Þá var vandamálið
augljóst fannst mér og línuritið
fræga yfir magn koltvísýrings í and-
rúmslofti undirstrikaði aðkomu
mannsins frá iðnbyltingu og nauð-
syn þess að snúa þróuninni við. Ég
vinn m.a. með þetta línurit í nokkr-
um af mínum myndum.“
En er þá ekki tilvalið fyrir foreldra
og skólayfirvöld að koma á sýning-
una í Norræna húsinu og ræða svo
málin í kjölfarið? „Algjörlega. Það
er um að gera því það þarf að tala
um þetta. Þetta er óþægilegt mál en
við höfum bara þessa einu plánetu
og öll þurfum við að reyna að leggja
okkar af mörkum. Hver og einn þarf
að skoða hvað hann eða hún getur
gert og ég held að máttur einstakl-
ingsins sé mikill í þessum efnum.“
Það sem við vitum
og það sem við gerum
Katrín Matthíasdóttir opnaði nýverið sýningu í anddyri Nor
ræna hússins. Hún segir menningu og listir geta verið öflugan
samherja í baráttunni fyrir bættum og breyttum heimi.
Katrín Matthíasdóttir myndlistarkona fjallar um ýmis aðkallandi viðfangsefni í verkum sínum. Fréttablaðið/SteFán
eitt af verkum Katrínar á sýningunni í norræna húsinu. Fréttablaðið/SteFán
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 8 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r22 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
menning
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
A
-5
F
C
8
1
B
F
A
-5
E
8
C
1
B
F
A
-5
D
5
0
1
B
F
A
-5
C
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K