Fréttablaðið - 18.01.2017, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Vetrarþjónusta
mokstur, salt & sandur
554 1989
gardlist.is
Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík
gardlist@gardlist.is
Það þarf líka að huga að garðinum á veturna og erum við hjá
Garðlist ávallt til þjónustu reiðubúin. Við leggjum áherslu á að svara
öllum fyrirspurnum og pöntunum samdægurs og höfum samband
eftir að fagmenn okkar hafa lokið verki til að tryggja að allt sé eins
og það á að vera. Söltun, söndun og snjómokstur á bílastæðum,
gangstéttum ofl.
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
Úr einu fræi varð bylting.
Moroccanoil hárvörumerkið er
innblásið af ferskum vindum,
bláma sjávarins og landslagsins
í kringum Miðjarðarhafið.
Upphafið er sjálf Moroccanoil
Treatment olían sem er góður
grunnur fyrir hvaða hárgerð sem
er. Einnig góð í krakka og skegg.
Til að fá sem bestu næringarefnin
er gott að setja hana alltaf í blautt
hárið og blása það eða leyfa því að
þorna eðlilega.
Olíurnar eru þrjár og nýjust er Blow Dry Concentrate sem hönnuð er fyrir gróft og erfitt hár.
Moroccanoil Treatment hentar öllum hárgerðum og LIGHT fyrir fíngert og mikið ljóst hár.
Regalo ehf Iceland
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Allar gerðir af Arctic Cat vélsleðum, sport, touring
og fjallasleðar. Kíktu við og skoðaðu úrvalið.
Ég er búinn að fá fullt af viðbrögðum frá fólki sem ég þekki í Finn-landi sem hefur séð fólk vera að deila þessu. Mér finnst þetta mjög
skemmtilegt, þetta er nú tveggja
ára gamalt og hefur greinilega farið
á eitthvert flakk allt í einu.
Það er rosa gaman að lesa kom-
mentin – það er enginn að pæla í
mér. Fólk er bara að spá í það sem
ég er að tala um. Ég er lítið að upp-
lifa þetta eins og ég sjálfur sé farinn
á flakk. Það eru þvílíkar umræður
byrjaðar þar sem fólk er bara: „Af
hverju talar hann ekki um eist-
nesku? Það er euro-proto mál,“
eða eitthvað, það eru einhverjir
málfræðingar komnir þarna sem
ég veit ekki neitt hvað eru að tala
um,“ segir grínistinn Ari Eldjárn,
en myndband með honum að segja
brandara hefur farið á töluvert flug
á Facebook-síðunni Very Finnish
Problems og er þar komið með hátt
í eina og hálfa milljón áhorfa.
„Ég er búinn að vera svolítið í
Finnlandi að skemmta, hef farið
þangað svona tólf sinnum í þeim til-
gangi. Ég hef tvisvar farið á frábæra
grínhátíð sem heitir Turku og ég var
einmitt bara að fá skilaboð frá þeim
þar sem ég er beðinn um að koma í
þriðja sinn – þannig að þetta er að
tryggja mér endurráðningu, í það
minnsta,“ segir Ari.
En hvers vegna ætli akkúrat þetta
myndband hafi farið á svona mikið
flug?
„Það er að ég held rosalega sjald-
gæft að það sé búið til grín um Finn-
land á ensku, ég held að þetta séu
yfirleitt Finnar að tala um Finna,
þeir eru svo einangraðir eitthvað.
En já, ég meina, ég heiti Ari og er
náfölur, þannig að ég er eiginlega
hálfur Finni nú þegar. Síðan kann
ég að segja finnskt „errr“. Ég á líka
finnska vini sem hafa hjálpað mér
að semja mikið af þessu gríni,
brandarar sem ég hef samið með
mönnum eins og Berg Ebba, Ismo
Leikola og André Wickström, þann-
ig að þetta er fríður hópur grínista
þvert yfir Atlantshafið.
Til dæmis kom flugubrandarinn
þegar við Ismo vorum að slá þessar
flugur af okkur og hann sagði mér
hvað þær heita og eitt leiddi af öðru.
Það er auðvitað líka eitthvert grín
um Dani þarna í myndbandinu og
eitthvað af viðbrögðunum virðist
vera komið frá fólki sem hefur búið
í Danmörku og talar ekki dönsku en
hefur talað ensku við Dani og virðist
tengja mjög mikið við það.“
Hvað er annars það helsta sem er
á döfinni hjá þér?
„Það er Mið-Ísland í marga mán-
uði, tónleikar með Sinfó og svo ætla
ég að fara til Edinborgar í ágúst.“
Ætlarðu ekki að verða viral þar
líka?
„Ég hef aldrei pælt í að verða viral
– það eina sem ég hef séð eru mjög
margir að reyna að verða viral, en
ég held að það sé eitthvað sem
maður ræður ekki hvort gerist. Ég er
stundum beðinn að koma fram og
gera eitthvert viral myndband fyrir
einhvern en það er svolítið eins og
að vera beðinn um að gera vinsælt
lag. Ég veit ekkert hvort það verður
það.“
Mið-Ísland hefur hafið sýningar á
ný, en um síðustu helgi kom 50 þús-
undasti gesturinn á sýningu þeirra
og var leystur út með fullt fang af
verðlaunum. stefanthor@frettabladid.is
Ari slær í gegn
á Facebook
Myndband af Ara Eldjárn þar sem hann grínast með finnska og
danska tungu fer eins og eldur í sinu um Facebook, en það er með
um eina og hálfa milljón áhorfa og um sextán þúsund deilingar.
Ari Eldjárn hefur mörg járn í eldinum um þessar mundir og um helgina kom 50 þúsundasti gesturinn á sýningu Mið-Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN
ÞAð er Að ég held
rosAlegA sjAld-
gæFt Að ÞAð sé búið til grín
um FinnlAnd á ensku, ég
held Að ÞettA séu yFirleitt
FinnAr Að tAlA um FinnA.
1 8 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r30 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
1
8
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
A
-6
E
9
8
1
B
F
A
-6
D
5
C
1
B
F
A
-6
C
2
0
1
B
F
A
-6
A
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K