Fréttablaðið - 18.01.2017, Síða 48

Fréttablaðið - 18.01.2017, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Kristínar Ólafsdóttur Bakþankar Undanfarin misseri hefur mér gengið afleitlega að sofna á kvöldin. Þetta er kannski eðlilegur fylgifiskur hækkandi aldurs. Eða bein afleiðing þess að í skólanum er ekki skyldumæting og ég skrönglast þ.a.l. fram úr um hádegisbil flesta virka daga. Þessi lífsstíll er auðvitað á skjön við fúnkerandi samfélag manna og ef það er til guð eða gáfaður dvergur eða fjörlegt hýbríð manns og geit- hafurs, sem menn tilbiðja í nafni stundvísi og sjálfsaga, þá er sá að refsa mér. Andvökunæturnar fylgja flestar ákveðinni uppskrift. Fyrst gerir líkamleg óværð vart við sig. Ég bylti mér og verð óþægilega meðvituð um eigin hjartslátt. Og þá, eins og sprett- hlaupari í rásblokk, tekur heilinn við sér. Hann byrjar að blaða kerfis- bundið í formsatriðunum, þessu sem liggur tiltölulega grunnt í skömm- ustuskúffunni. Að ég hafi skrópað í tannlæknatíma í þrjú ár. Að ég eigi enn eftir að taka bílpróf. Að ég sé enn ekki byrjuð á BA-ritgerð. Hjartslátturinn verður örari. Í takt við hann og þvert á vilja minn fletti ég í gegnum niðurbældustu minningarnar. Ég er 9 ára og stíg óvart í blauta steypu á leiðinni heim úr skólanum og múrararnir taka því sem aðför að öllum löggiltum iðngreinum. Ég renn niður stigann á Prikinu sumarið 2014 og finn hvernig mjöðmin flest út á hverri einustu tröppu og allir viðstaddir fylgjast með. Ég reyni að kyssa sætan strák og hann segir „nei, sorrí“. Þetta er lögmál. Þegar líkaminn þarfnast hvíldarinnar sárast tekur höfuðið upp á því að framleiða, leikstýra og sýna kvikmynd byggða á öllu sem maður þráir heitast að gleyma. Ég stend nú í örvænt- ingarfullri leit að úrræðum. Hugræn atferlismeðferð kemur til greina. Sem og skurðaðgerð. Eða kannski þarf ég bara að byrja að mæta í skólann. Andvökunætur OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA LYON f rá 12.999 kr. T í m a b i l : j ú n í Bonjour! *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS * Bókaðu flug með WOW air til Lyon, miðstöð matar og víngerðar í Frakklandi. Þessi magnaða miðaldaborg hefur eitthvað fyrir alla — og verðið er lyginni líkast. Bon voyage! MÍN AÐ SKRÁ SIG DAGAR FRÍTT3 2now.is 1 8 -0 1 -2 0 1 7 0 5 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B F A -5 A D 8 1 B F A -5 9 9 C 1 B F A -5 8 6 0 1 B F A -5 7 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.