Morgunblaðið - 09.07.2016, Qupperneq 5
FRÉTTIR 5Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
En hvað er eiginlega í gangi?
„Mér var bent á að okkur hefði ein-
faldlega láðst að sækja um leyfi bæði
hjá huldufólki og framliðnum og
skakkaföllin við boranirnar að und-
anförnu helgast því jafnvel af því,“
segir Halldór Gunnlaugsson á Ríp í
samtali við Morgunblaðið.
Hjá fólki í Hegranesi hefur al-
mennt gilt sú regla að þegar farið er
í verklegar framkvæmdir af ýmsum
toga verði að fá samþykki þeirra
sem sjást ekki. Gildir þá að ganga að
fyrirhuguðu verksvæði og biðja
leyfis í hljóðri bæn.
„Nesbúar þekkja þetta vel af sög-
um fyrri ábúenda og yfirleitt er leyfi
úr annarri veröld auðfengið. Ef ekki
lætur huldufólkið þá af sér vita með
einhverju móti. Þetta hafa margir
reynt. Í ljósi þess hvernig gengið
hefur að undanförnu finnst mér
sennilegt að borað verði á nýjum
stað, en að undanförnu höfum við
verið alveg ansi nálægt kirkjugarðs-
veggnum,“ segir Halldór á Ríp.
Merkilegur vandræðagangur
eftir Morgunblaðsgrein
Að sögn Birgis Þórðarsonar,
bónda á Ríp, er hugsanlegt að bor-
staðurinn sé gamall kirkjugarður, en
þarna hefur verið kirkja í margrar
aldir. „Atburðarásin nú kemur mér
alls ekki á óvart,“ segir Birgir, sem í
síðasta mánuði var í viðtali við
Morgunblaðið og sagði frá álfa-
trúnni í Hegranesi. Greindi hann þar
frá skakkaföllum í búskap sínum
sem orðið hafa er faldir Hegranes-
ingar eru ekki með í ráðum. Þannig
missti Birgir eitt sinn fjölda lamba
sem fóru í skurð og drápust þegar
leyfi til túnræktar vantaði. Fleiri
dæmi frá Ríp sem illa verða útskýrð
svo vel má nefna.
„Það er alveg merkileg hending að
þessi vandræðagangur við bor-
anirnar nú komi upp svo skömmu
eftir Moggagreinina sem birtist um
daginn,“ segir Birgir.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það er ekki á hverjum degi sem
verða til ný götuheiti í Reykjavík,“
sagði Hjálmar Sveinsson, formaður
umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar, í stöðuupp-
færslu á Facebook-síðu sinni en ráð-
ið samþykkti nýlega tillögu nafna-
nefndar að götuheitum í nýja
Vogahverfinu sem rísa mun á næstu
árum austan Sæbrautar.
Samkvæmt deiliskipulags-
tillögu sem er í vinnslu hyggst
Reykjavíkurborg breyta svæðinu,
sem í dag er eingöngu atvinnusvæði,
í íbúða- og atvinnusvæði þar sem að-
eins fjórðungur húsnæðis verður
ætlaður atvinnustarfsemi. Gert er
ráð fyrir 1.100 íbúðum í hverfinu eft-
ir breytingarnar.
Nýtt skeið í byggingarsögu
„Þau eru öll tengd skipum.
Skektuvogur, Trilluvogur, Arkar-
vogur, Bátavogur, Kuggavogur og
Drómundarvogur. Einnig verða til
torgin: Skutulstorg, Vörputorg,
Sökkutorg og Öngulstorg,“ segir
Hjálmar ennfremur um hin nýju
götuheiti í stöðuuppfærslu sinni en
hverfið í heild afmarkast af Klepps-
mýrarvegi, Sæbraut og Súðarvogi.
Þá segir Hjálmar að nú sé hafið
nýtt skeið í byggingarsögu borg-
arinnar en í stað þess að byggja
borgina stöðugt út á við, eins og gert
hefur verið síðustu 60 árin, verði hún
byggð inn á við næstu árin og ára-
tugina, til að nýta betur takmarkað
byggingarland og dýra innviði. Það
sé í samræmi við nýtt aðalskipulag
Reykjavíkur fyrir árin 2010-2030.
Breytingin á Vogahverfinu kall-
ar á endurbyggingu á öllum inn-
viðum hverfisins og segir á vef
Reykjavíkurborgar að það eigi sér
ekki fordæmi í Reykjavík að endur-
byggja og breyta svo stóru svæði.
Ný götuheiti samþykkt fyrir Vogahverfi
Trilluvog og Drómundarvog má
finna í endurskipulögðu Vogahverfi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vogahverfi Borgarstjóri und-
irritaði samning um hverfið.
Kvikmyndafyrirtækið Pegasus af-
henti á dögunum samfélagsstyrki á
Reyðarfirði að andvirði einnar millj-
ónar króna. Fyrirtækið vildi með
þessu þakka fyrir velvild íbúa fjarð-
arins á meðan sjónvarpsserían
Fortitude var tekin upp á svæðinu.
Pegasus var meðframleiðandi sjón-
varpsseríunnar.
Styrkirnir voru tveir talsins og
hlaut Leikskólinn Lyngholt 500 þús-
und krónur til kaupa á þroskaleik-
föngum og Hollvinafélag utanspít-
alaþjónustu í Fjarðarbyggð hlaut
aðrar 500 þúsund krónur upp í kaup
á hjartahnoðtæki. Pegasus hafði
einnig veitt
Grunnskólanum á
Reyðarfirði eina
milljón króna í
styrk til kaupa á
spjaldtölvum
þegar tökum á
fyrri þáttaröð
Fortitude lauk.
Snorri Þóris-
son, aðaleigandi
Pegasus, segir fyrirtækið afar þakk-
látt fyrir velvild heimamanna meðan
á tökum stóð, í samtali við Austur-
frétt. Þá sé mikill áhugi á því að
halda þáttaröðinni áfram.
Vilja borga vel-
vildina til baka
Fortitude
Pegasus veitir styrk vegna Fortitude
Öryggisnefnd Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra hefur sent frá sér yf-
irlýsingu þar sem þeir fordæma við-
brögð ISAVIA við því ástandi sem
skapaðist á Keflavíkurflugvelli á
fimmtudaginn þegar einungis einn
flugumferðarstjóri í stað þriggja var
á vakt í átta klukkustundir.
Umferð um völlinn takmarkaðist
á þeim tíma þrisvar við neyðar- og
sjúkraflug, hálftíma í senn, svo flug-
umferðarstjórinn gæti fengið þann
lágmarkshvíldartíma sem kveðið er
á um í reglum.
„Að mati öryggisnefndar FÍF er
mikið ábyrgðarleysi fólgið í því að
draga úr alvarleika þeirrar for-
dæmalausu stöðu sem skapaðist
þennan dag. Ljóst er að ekkert svig-
rúm var fyrir hendi til að bregðast
við tilfallandi álagi og óvæntum að-
stæðum,“ segir í yfirlýsingu félags-
ins.
„Álag á flugumferðarstjóra hefur
aukist gífurlega á undanförnum ár-
um með síaukinni flugumferð um ís-
lenska flugvelli og íslenska flug-
stjórnarsvæðið. Á sama tíma
stendur fjöldi flugumferðarstjóra
sem starfa á Íslandi nánast í stað og
yfirvinna þeirra til þess að halda
flugumferðinni gangandi er löngu
orðin óhófleg. Viðbrögð Isavia hafa
sýnt sig vera ófullnægjandi til að
bregðast við ástandinu og engum
getur lengur dulist að flugöryggi er
ógnað. Þess vegna er tafarlausra úr-
bóta þörf,“ segir í yfirlýsingunni.
Grafalvarleg ógn
við flugöryggi