Morgunblaðið - 09.07.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
„Ég hef búið hér á Íslandi í 19 ár og
sendi reglulega póst til og frá Póllandi
en þetta sem ég lendi í akkúrat núna
geri mig alveg vondan,“ segir Daniel
Bednarek, sem segir farir sínar ekki
sléttar eftir samskipti við Póstinn.
Daniel sendi tvö bréf í ábyrgðarpósti
til Póllands dagana 23. maí og 10. júní
sem innihéldu mikilvægar upplýsing-
ar fyrir eiginkonu hans. Bréfin týnd-
ust um tíma og skiluðu sér ekki í rétt-
ar hendur fyrr en í upphafi vikunnar,
annað rúmlega þremur og hitt um 6
vikum eftir að þau voru send. Áætl-
aður sendingartími slíkra bréfa er 8
dagar, samkvæmt skriflegu svari frá
Póstinum.
Miklir fjárhagslegir hagsmunir
Forsaga málsins er sú að eiginkona
Daniels lenti í bílslysi hér á landi þann
22. júní 2015 og lá í kjölfarið í viku á
Landspítalanum og hefur verið í end-
urhæfingu síðan. Núna er hún stödd í
Póllandi og hefur
þar ráðið sér lög-
mann til þess að
reka fyrir sig
skaðabótamál
vegna slyssins.
Vegna þess máls
þurfti hún ýmis
gögn frá Íslandi
sem Daniel sendi
til hennar með
ábyrgðarpósti
þann 23. maí. Daniel þurfti að greiða
löggiltum skjalaþýðanda rúmlega 80
þúsund krónur fyrir þýðingu
gagnanna. Í síðara bréfinu, sem sent
var þann 10. júní, voru myndir úr
sneiðmyndatöku sem eiginkona hans
fór í á Landspítalanum. Í framhaldinu
ákvað Daniel því að notast við DHL-
póstþjónustu, sem kostar meira, en
þá skilaði pakkinn sér aðeins nokkr-
um dögum síðar.
Teikning skoðuð í tollinum
Í tilraunaskyni ákvað eiginkona
Daniels að senda honum pakka frá
Varsjá og athuga hve langan tíma
tæki að senda pakka þaðan. Pakkinn
fór af stað þann 20. júní, en í honum
var súkkulaðistykki og teikning sem
sonur þeirra hjóna hafði teiknað.
„Súkkulaðið kostar um 500 krónur í
Póllandi en teikningin er ómetanleg,“
segir Daniel. Pakkinn kom til lands-
ins í vikunni en var stöðvaður í toll-
inum, líkt og allt það sem Daniel fær
sent að eigin sögn, og því fékk hann
ekki pakkann fyrr en nokkrum dög-
um síðar. „Ég skil alveg að það þarf
að vera á varðbergi því auðvitað send-
ir fólk ýmislegt með pósti, en ég hafði
hringt og látið vita nákvæmlega hvað
var í pakkanum. Ég er ósáttur með
þetta,“ segir Daniel.
Í skriflegu svari frá Póstinum segir
að pósturinn taki ekki ábyrgð á
óbeinu tjóni sem verði vegna seink-
unar á afhendingu. Á hinn bóginn er
ekki algengt að sendingar týnist, en
það kemur þó fyrir. Þegar slíkt gerist
er ábyrgðarpóstur tryggður fyrir allt
að 3.500 krónur en pakkasendingar
fyrir allt að 22.500 krónur.
Telur mikilvæg gögn
vera ótrygg í pósti
Ábyrgðarpóstur til Póllands var um 6 vikur á leiðinni
Morgunblaðið/Ófeigur
Pakki Daniel fékk súkkulaðiplötu og teikningu frá syni sínum í pakkanum sem tók tvær vikur að komast til Íslands.
Daniel
Bednarek
Elvar Ingimundarson
elvar@mbl.is
Píratar íhuga að halda eitt sameig-
inlegt prófkjör fyrir kjördæmin
Reykjavík norður, Reykjavík suður
og Suðvesturkjördæmi og liggur til-
laga þess efnis fyrir á vefsíðu þeirra
þar sem hægt er að greiða atkvæði
um hana.
Í prófkjörinu íhuga þeir að nota
dreifilista til að raða frambjóðendum
í sæti í kjördæmunum og verður
einnig kosið um það á vefsíðu þeirra
hvort dreifilistafyrirkomulagið verð-
ur notað í prófkjörinu á höfuðborgar-
svæðinu.
Nýtt fyrirkomulag í prófkjöri
„Þetta er alveg nýtt fyrirkomulag
svo félagsmennirnir þurfa að velja
hvort þeir vilja nota það eða ekki.
Þetta fyrirkomulag virkar þannig að
allir frambjóðendur í þessum þremur
kjördæmum eru saman og þú kýst
fólkið sem þér líst best á. Síðan rað-
ast fólk í efstu sætin. Þeir sem eru
þrír efstir á dreifilistanum geta allir
ákveðið að taka fyrsta sæti hver í sínu
kjördæmi. Þannig er þremur sætum
úthlutað í einu. Þrír í fyrsta sæti, þrír
í annað sæti og svo framvegis,“ segir
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Pírata.
Safna spurningum á netinu
Hún segir Pírata hafa sett upp hóp
á vefnum Betra Ísland þar sem óskað
er eftir aðstoð almennings við að
finna spurningar til að leggja fyrir
frambjóðendur Pírata í prófkjörum á
höfuðborgarsvæðinu en hún á von á
því að rúmlega hundrað manns gætu
boðið sig fram á lista í kjördæmunum
þremur.
„Ef dreifilistafyrirkomulagið verð-
ur samþykkt munum við safna spurn-
ingum á Betra Ísland og leggja þær
fyrir frambjóðendur í þessum þrem-
ur kjördæmum. Kjósendur munu síð-
an svara spurningunum og þá verður
hægt að tengja saman svör kjósenda
og frambjóðenda svo kjósendur geta
fundið þá frambjóðendur sem hafa
sömu skoðanir og þeir,“ segir Sigríð-
ur.
Einu prófkjöri lokið
Prófkjöri Pírata er lokið í Norð-
austurkjördæmi. Prófkjörið þar var
líkt og öll prófkjör Pírata fyrir næstu
kosningar lokað og tóku 78 manns
þátt í kosningunni. Samkvæmt
reglum Pírata hafa einungis þeir sem
skráðir hafa verið í flokkinn 30 dög-
um áður en kosningu lýkur kosninga-
rétt í prófkjörum flokksins.
Opið fyrir framboð
Opið er fyrir framboð í prófkjöri
Pírata í kjördæmunum Reykjavík
norður, Reykjavík suður, Suðvest-
urkjördæmi, Suðurkjördæmi og
Norðvesturkjördæmi og er fram-
boðsfrestur til 1. ágúst nema í Norð-
vesturkjördæmi þar sem hann er til
7. ágúst. Kjörgengir eru allir skráðir
Píratar.
Þeir sem vilja kjósa í þessum próf-
kjörum verða að hafa skráð sig í
flokkinn í síðasta lagi mánudaginn 11.
júlí nema í Norðvesturkjördæmi þar
sem fresturinn er til 15. ágúst.
Prófkjör Pírata í
fullum gangi
Listi klár í NA-kjördæmi Opið
fyrir framboð í öðrum kjördæmum
Lýðræði Fjöldi fólks hefur boðið sig
fram í prófkjör Pírata víða um land.
„Þetta eru fyrirmæli sem eru sett í
því skyni að tryggja það að háttsemi
af þessu tagi endurtaki sig ekki,“
segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, en Sam-
keppniseftirlitið (SE) sektaði Mjólk-
ursamsöluna (MS) á dögunum vegna
alvarlegra brota á
samkeppnislög-
um og kvað einn-
ig á um það í
ákvörðun sinni að
MS sætti eftirliti
óháðs eftirlits-
aðila um óákveð-
inn tíma sem
legði árlegt mat á
það hvort félagið
gætti jafnræðis,
hlutlægni og
gagnsæis í viðskiptum með hrámjólk
í samræmi við fyrirmæli ákvörðun-
arinnar.
MS er gert að tilkynna SE innan
tveggja mánaða frá dagsetningu
ákvörðunarinnar, þann 7. júlí, um til-
nefningu óháða aðilans. Segir í
ákvörðuninni að niðurstöður hins
óháða aðila skuli vera rökstuddar og
í skriflegu formi og aðgengilegar SE
ef það kalli eftir þeim.
„Þetta eru þær aðgerðir og sú
ákvörðun sem við teljum vera í sam-
ræmi við samkeppnislög,“ segir Páll
en fordæmi séu fyrir því að SE hafi
beitt fyrirmælum þar sem tilsjónar-
menn eru tilnefndir.
Nauðsynlegar aðgerðir
„Það er verið að draga lærdóm af
fortíðinni, það er að þetta fyrirtæki
hefur verið talið brjóta samkeppn-
islög með svipuðum hætti áður og þá
var ekki gripið til neinna aðgerða af
þessu tagi og raunar ekki heldur
sektað, árið 2006. En núna er það
metið svo að það sé nauðsynlegt,“
segir Páll en ákvörðuninni verður
eins og áður hefur komið fram áfrýj-
að til áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála af hálfu MS og þá kemur end-
anlega í ljós hvort ákvörðun SE
stenst skoðun.
Hinum óháða eftirlitsaðila er einn-
ig ætlað að fylgjast með aðskilnaði
MS á sölu hrámjólkur frá annarri
starfsemi fyrirtækisins.
Þá er MS aðeins heimilt að bjóða
mismunandi viðskiptakjör, t.d.
magnafslátt, tengd sölu á hrámjólk,
ef sannanlega málefnalegar og hlut-
lægar ástæður standa til þess. MS
þarf á hverjum tíma að geta sýnt
fram á þau rök sem liggja til grund-
vallar slíkum ákvörðunum.
laufey@mbl.is
Draga lærdóm
af fortíðinni
Óháður aðili hafi eftirlit með MS
Páll Gunnar
Pálsson