Morgunblaðið - 09.07.2016, Side 13
Ljósmyndir/Kim S. Brockie
Tríó Jónas Ásgeir, Helga Kristbjörg og Jón Þorsteinn mynda harmonikutríóið íTríó sem spilar allt frá klassískri tónlist til dúndrandi klúbbatónlistar.
ákvað svo að fara í meira nám og
fór til Kaupmannahafnar.“ Helga
Kristbjörg lauk mastersnámi í vor
en ætlar að búa áfram í Kaup-
mannahöfn og spila sjálf og með
tríóinu.
Jón Þorsteinn ólst upp á mjög
tónlistarríku heimili, en móðir
hans er tónlistarkennari og org-
anisti. „Mamma keypti harmoniku
þegar ég var mjög lítill. Bróðir
minn sem er fimm árum eldri en
ég byrjaði að spila á þessa litlu
harmoniku og þegar hann fékk
stærri harmoniku þegar hann var
orðinn eldri fékk ég þessa litlu. Ég
leit upp til hans og fannst mjög
töff að hann væri að spila á harm-
oniku. Þegar ég var 8 ára fór ég
að læra á hljóðfærið, en þá var ég
aðeins búinn að læra á blokkflautu
og píanó.“ Jón Þorsteinn segir
kostinn við að búa í litlu samfélagi
vera falinn í því að hafa fengið
fjölmörg tækifæri til að koma
fram. „Ég hef til dæmis spilað
mikið á Vesturfarasetrinu á Hofs-
ósi og á alls konar jólaböllum með
bróður mínum. Ég fékk því
mörg tækifæri snemma til að
koma fram.“ Jón Þorsteinn
lauk framhaldsprófi á
harmonikuna í Tónlist-
arskóla Skagafjarðar og útskrif-
aðast á sama tíma úr Framhalds-
skólanum á Sauðárkróki. „Ég flutti
svo suður til Reykjavíkur og var
heilmikið að spila þar og söng
einnig í ýmsum kórum.“ Jón flutti
svo til Danmerkur fyrir fjórum ár-
um og hóf nám í Konunglega
danska tónlistarháskólanum.
Jónas Ásgeir byrjaði að læra
á harmoniku níu ára gamall í Tón-
listarskóla Eddu Borg, hjá Guð-
mundi Samúelssyni. „Ég vildi vera
aðeins öðruvísi en allir hinir
krakkarnir og kennarinn minn
hafði svo mikla ástríðu fyrir harm-
onikunni sem heillaði mig upp úr
skónum,“ segir Jónas Ásgeir.
Hann lauk framhaldsprófi árið
2013 og fór ári seinna til Kaup-
mannahafnar. „Svona til að elta
Jón og Helgu.“
Nútímalegt en fjölbreytt
tríó
Nafn tríósins, íTríó, á sér
skemmtilega sögu. „Við lesum öll
nótur af iPad og í kjölfarið byrjaði
kennarinn okkar og samnemendur
að kalla okkur iTrio í gríni. Við ís-
lenskuðum það í íTríó sem getur
staðið fyrir Ísland eða það að við
séum öll „í tríói“,“ segir Helga
Kristbjörg. Þó svo þau nýti sér
nýjustu tækni við spilamennskuna
vilja þau halda uppi fjölbreyttri
efnisskrá með verkum frá ólíkum
tímabilum og stílum til að höfða til
sem flestra áheyrenda, meðal ann-
ars með samtímatónlist, barokk-
tónlist, þjóðlögum, tangó og rytm-
ískum og mínímalískum verk.
Tónleikarnir á morgun verða engin
undantekning þar sem tónleika-
gestir munu upplifa tilfinningakalt
finnskt rifrildi, sjóðheitan sígauna-
gleðskap, blóðheitan argentískan
tangó, draumkennda geimferð
meðal stjarnanna og ef til vill
franska tóna og dúndrandi klúbba-
músik, að sögn tríósins.
Eitt af markmiðum tríósins er
einnig að vekja athygli á harm-
onikunni sem hljóðfæri og mögu-
leikum hennar. „Okkur langar að
kynna fyrir fólki hvað harmonikan
hefur upp á að bjóða og útvíkka þá
hugmynd sem fólk hefur um hljóð-
færið,“ segir Helga Kristbjörg.
„Maður er ennþá að reka sig á það
að fólk verður mjög hissa á tónlist-
inni sem hægt er að spila á harm-
onikuna og það er ljóst að það er
mikið verk fram undan að kynna
hljóðfærið,“ segir Jón Þorsteinn og
telur það vera spennandi tækifæri.
„Það er gaman að þó svo að það sé
árið 2016 er ennþá hægt að kynna
nýja hluti og möguleika fyrir
fólki.“
Keppa í helsta
harmonikubæ heims
Hópurinn undirbýr sig nú fyr-
ir harmonikukeppni á Ítalíu sem
fram fer í september. „Keppnin er
haldin á hverju ári í bænum Cas-
telfidardo, sem er mesti harm-
onikubær í heimi, en þar eru
margar harmonikuverksmiðjur
þannig að maður getur farið í
skoðunarferðir og það er mikil
harmonikustemning í bænum,“
segir Helga Kristbjörg. Flokkarnir
eru fjölmargir og ætlar tríóið að
taka þátt í kammerkeppni.
Auk þess ætlar Jónas Ásgeir
að taka þátt í einleikarakeppninni.
„Þetta er ein af stærstu keppn-
unum sem hægt er að taka þátt í,“
segir Jónas Ásgeir, sem ætlar lík-
lega að flytja klassíska eða nú-
tímatónlist í keppninni. „Í bache-
lor-náminu er maður aðallega að
reyna að þróa tæknina og í Kaup-
mannahöfn er mikið um nútíma-
tónlist og klassík í bland og ég er
að einbeita mér að því núna og
þróa stílinn. En svo kemur að því
að maður þarf að ákveða hvað
maður ætlar að gera, en núna
finnst mér ótrúlega gaman að spila
allt sem ég get fengið. Með tríóinu
er ég að spila meira popp og svo
er ég í tangósveit. Það er gaman
að þessu öllu.“ Jónas Ásgeir lýkur
grunnnáminu á næsta ári og stefn-
ir á masterinn líkt og Helga Krist-
björg og Jón Þorsteinn. „Svo lang-
ar mig í skiptinám til Peking í
Kína. Eftir það er aldrei að vita
hvað ég geri.“ Jón Þorsteinn á eitt
ár eftir af meistaranáminu og leit-
ar hugurinn heim fljótlega eftir
það, telur hann. „Þá tekur við að
spila og kenna hérna heima og
miðla þessari harmonikureynslu
áfram.“ Næsta verkefni á eftir
keppninni er komið á hreint, en
það er einnig á Ítalíu. „Við munum
koma fram á tónlistarhátíð á Suð-
ur-Ítalíu í október, í einum elsta
bæ í heimi, Matera og verðum
lokaatriðið þar,“ segir Helga Krist-
björg.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
ER MYNDAVÉLIN ÍÞYNGJANDI?
Lausnir frá Peak Design auðvelda að ferðast með myndavélina hvert sem er.
EVERYDAY MESSENGER TÖSKUR FRÁ PEAK DESIGN
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
Sumarhátíð UÍA og Síldarvinnslunnar
stendur nú sem hæst á Egilsstöðum.
Þriggja daga hátíðahöld hófust með
pomp og pragt í gær, en þeir sem
ekki komust þá ættu að geta bætt
sér það að einhverju leyti upp í dag
og á morgun, en hátíðinni lýkur á
sunnudaginn.
Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt
og sniðin að íþróttafólki á öllum aldri
sem og örgustu antisportistum. Af
ýmsu er að taka, kl. 9 í dag, laug-
ardag, geta þeir árrisulu til dæmis
fylgst með Eskjumóti í sundi í sund-
lauginni á Egilsstöðum eða frjáls-
íþróttamóti á Vilhjálmsvelli fyrir 11
ára og eldri kl. 11. Fornleikar verða
svo kl. 16 í Minjasafni Austurlands í
Tjarnargarði, kl. 17 er zumba og gleði
í Tjarnargarðinum og kl. 19 grill og
gaman í Bjarnadal, þar sem keppt
verður í ringó og strandblaki.
Þá er sunnudagurinn 10. júlí ekki
heldur viðburðasnauður; frjáls-
íþróttamót, botsíamót, rathlaups-
keppni, bogfimikynning, bardaga-
smiðja, fjölskylduathlaup og
fjallahjólakeppni svo fátt eitt sé talið.
Kl. 19 sýnir Leikhópurinn Lotta,
leikritið Litaland í Tjarnargarði. Að-
gangseyrir er þó ekki innifalið í þátt-
tökugjaldi sumarhátíðarinnar.
Sumarhátíð UÍA og Síldarvinnslunnar á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Litaland Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland í Tjarnardal á sumarhátíðinni.
Dagskráin sniðin að íþróttafólki
sem og örgustu antisportistum
Helga Kristbjörg er fyrsti Ís-
lendingurinn sem lýkur harm-
onikunámi á háskólastigi í mörg
ár, og er auk þess fyrsta ís-
lenska konan sem lýkur meist-
aranámi í harmonikuleik.
Hún heillaðist af hljóðfærinu
á hljóðfærasýningu í Tónlistar-
skólanum á Ísafirði, þar sem
hún ólst upp. Helga Kristbjörg
lærði hjá Messíönu Mars-
ellíusdóttur og síðar Vadim
Fjodorov. Hún er einnig fyrsti
harmonikunemandinn
við Listaháskóla Ís-
lands „Mig langar
að vera góð fyr-
irmynd fyrir unga
harmonikuleik-
ara og sýna þeim
að hljóðfærið er
góður valkostur.“
Harmoniku-
frumkvöðull
FYRSTI KVENKYNS MEIST-
ARINN Í HARMONIKULEIK
Tónleikar ítríó fara fram í Norð-
urljósasal Hörpu klukkan 14 á
morgun, sunnudag. Hægt er að
nálgast miða á vefsíðu Hörpu,
www.harpa.is.