Morgunblaðið - 09.07.2016, Qupperneq 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
✝ Hildur Ein-arsdóttir fædd-
ist í Bolungarvík 3.
apríl 1927. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu í Bolungarvík
27. júní 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Elísabet
Hjaltadóttir, f. í
Bolungarvík 11.4.
1900, d. 1981, hús-
móðir, og Einar
Kristinn Guðfinnsson, f. á
Litlabæ í Skötufirði í Ísafjarð-
ardjúpi 17.5. 1898, d. 1985,
útgerðarmaður í Bolungarvík.
Systkini Hildar voru: Guðfinnur,
f. 17.10. 1922, d. 2000, kvæntur
Maríu Haraldsdóttur. Halldóra,
f. 13.6. 1924, d. 2007, gift Har-
aldi Ásgeirssyni, d. 2009. Hjalti,
f. 14.1. 1926, d. 2013, kvæntur
Halldóru Jónsdóttur. Jónatan, f.
1.7. 1928, d. 2015, fyrri eigin-
kona Halla Pálína Kristjáns-
dóttir, d. 1982, seinni eiginkona
Sigrún Óskarsdóttir. Guð-
mundur Páll, f. 21.12. 1929, d.
2013, kvæntur Kristínu Mars-
ellíusdóttur, d. 2016. Jón Frið-
geir, f. 16.7. 1931, d. 2015, fyrri
eiginkona Ásgerður Hauks-
dóttir, d. 1972, seinni eiginkona
býliskona Bjarna er Bjarnveig
Eiríksdóttir. 4) Ómar, f. 22.10.
1959, kvæntur Guðrúnu Mörtu
Þorvaldsdóttur. Börn þeirra
eru: Arnar, Katrín, Einar Bjarni
og Fannar Freyr, barnabarn
eitt.
Hildur ólst upp og bjó alla tíð í
Bolungarvík. Hún hóf nám við
Menntaskólann á Akureyri 1942,
en varð að hætta námi vegna
lömunarveiki. Hún náði sér að
mestu eftir þau veikindi og fór
19 ára til náms í húsmæðraskóla
í Danmörku, með áherslu á
hannyrðir og vefnað og eftir
hana liggur fjöldi verka á því
sviði. Hildur gekk í kirkjukór
Bolungarvíkur 15 ára gömul og
kvenfélagið Brautina 18 ára og
var virkur félagi í hvoru tveggja
vel á sjöunda áratug. Í Bolung-
arvík hefur lengst af verið mikið
söng- og leiklistarlíf og var Hild-
ur primus motor í því starfi, með
góða hæfileika á báðum sviðum,
einkar söng- og ljóðelsk og
kunni ógrynni söngtexta. Auk
þess var hún mjög virk í öllu fé-
lagsmálastarfi, ekki síst baráttu
fyrir jafnrétti kvenna. Hildur sat
um árabil í stjórn Sambands
vestfirskra kvenna og tók
snemma þátt í baráttu á vegum
Kvenréttindasambands Íslands.
Þá tók hún virkan þátt í starfi
Sjálfstæðisflokksins og sat um
tíma á Alþingi sem varamaður.
Útför Hildar fer fram frá
Hólskirkju í Bolungarvík í dag,
9. júlí 2016, klukkan 14.
Margrét Kristjáns-
dóttir. Pétur Guðni
f. 20.8. 1937, d.
2000, kvæntur
Helgu Aspelund.
Á jóladag 1949
giftist Hildur Bene-
dikt Bjarnasyni, f. í
Bolungarvík 9.5.
1925, d. 20.10. 2010.
Foreldrar hans
voru Halldóra
Benediktsdóttir, f.
6.11. 1892 á Brekkubæ, Nesja-
hreppi, og Bjarni Eiríksson, f.
20.3. 1888, á Hlíð í Lóni, Bæj-
arhreppi. Hildur og Benedikt
eignuðust fjögur börn: 1) Einar
f. 6.5. 1951, kvæntur Maríu Sal-
vöru Guðmundsdóttur. Börn
þeirra eru: Haukur, Hildur, Guð-
björg og Bryndís, barnabörn sjö.
2) Halldóra, gift Søren Ped-
ersen. Börn þeirra eru: Bjarne
Benedikt, Daniel og Stefan,
barnabörn fjögur. 3) Bjarni, f.
9.2. 1957, kvæntist Höllu Hregg-
viðsdóttur, þau skildu. Sonur
þeirra er Benedikt Örn. Fyrir
átti Bjarni dótturina Auðbjörgu
Brynju með Katrínu Gunn-
arsdóttur. Sonur Höllu og stjúp-
sonur Bjarna er Hreggviður
Ingason. Barnabörn sex. Sam-
Í dag kveð ég með söknuði
elskulega tengdamóður mína,
Hildi Einarsdóttur.
Fyrir um 46 árum kom ég inn í
fjölskyldu þeirra Benedikts og var
mér strax frá upphafi tekið eins og
væri ég dóttir þeirra. Heimili
þeirra var einstaklega fallegt og
smekklegt, enda Hildur fagurkeri
mikill.
Systkini Hildar voru þá öll á lífi.
Bjuggu þau sex í Bolungarvík og
tvö fyrir sunnan, svo nærri má
geta að oft var glatt á hjalla þegar
öll þessi stóra, barnmarga og glað-
væra fjölskylda kom saman.
Söngelsk var Hildur með en-
demum og mikið sungið þegar
stórfjölskyldan kom saman. Aldr-
ei lauk veislum öðruvísi en með
söng. Hún var mikill gleðigjafi
hvar sem hún kom og var líflegt og
skemmtilegt að umgangast hana.
Var hún einstaklega barnelsk,
sem varð til þess að barnabörnin
vildu helst sem oftast fara vestur
til ömmu og afa, enda voru þau
alltaf velkomin. Og ekki var
spenningurinn minni þegar þau
komu suður. Þreyttist hún aldrei á
að leika við þau og kenndi hún
þeim ótalmargar vísur og lög, sem
þau búa að alla tíð.
Ekkert fannst Hildi skemmti-
legra en fara í leikhús og komu
þau hjón einatt suður í leikhús-
ferðir. Hringdi hún í miðasöluna
og kynnti sig sem Hildi Einars-
dóttur frá Bolungarvík, hún væri
að koma suður og oftast fékk hún
miða á besta stað.
Hildur var einstaklega smekk-
leg til fara og fannst henni mjög
skemmtilegt að kaupa sér föt og
punta sig. Fór ég iðulega með
henni í þá leiðangra og var það
ekki leiðinlegt, enda mjög árang-
ursríkt.
Hún elskaði sumarið og notaði
hún hverja stund sem gafst að
sitja í sólinni.
Síðustu árin dvaldi Hildur á
hjúkrunarheimilinu í Bolungar-
vík. Þar var hugsað vel um hana
og hvergi gat henni liðið betur.
Hvíl í friði, elsku Hildur, og
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín,
María.
Elsku amma mín.
Það kemur ekki á óvart að þú
hafir valið bjartasta tíma ársins til
að ferðast yfir á annað tilverustig
og ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið að fylgja þér síðasta spölinn
héðan. Þú og sólin voruð vinkonur.
Alls staðar þar sem var birta,
gleði, hlátur og leikur, þar varst
þú. Þú smitaðir aðra með lífsgleði
þinni og þú áttir auðvelt með að
hrífa fólk með þér. Þú varst ekki
eins mikið gefin fyrir myrkur og
erfið veður sem svo sannarlega
voru hluti af veruleikanum í vík-
inni. Þér fannst oft óþægilegt að
vita til þess að komast ekkert þeg-
ar Óshlíðin var lokuð. Kannski var
það hluti af frelsisþörfinni sem var
svo rík í þér. Þú fórst yfirleitt þín-
ar eigin leiðir og varst óhrædd við
að fara gegn ríkjandi straumum í
samfélaginu. Þetta vissi ég og
skildi fyrst þegar ég varð fullorð-
in. Þessir eiginleikar og þetta við-
horf endurspeglaðist í hvernig þú
hagaðir lífinu og hvernig þú um-
gekkst annað fólk, með opnum
huga og sönnum áhuga. Ég hef
aldrei upplifað annað en jákvætt
viðhorf frá þér gagnvart öllu því
sem ég hef tekið mér fyrir hendur,
sem barn, unglingur og fullorðin
manneskja, og ég veit að sömu
sögu segja svo ótal margir aðrir.
Þú barst virðingu fyrir sjálfri þér,
umhverfinu og öðru fólki. Þú
skrifaðir sjálf: „Varðveit hjartað
þitt framar öllu öðru, því þar eru
uppsprettur lífs þíns.“
Ég sit í víkinni ykkar afa og
man. Ég man þegar ég var hjá
ykkur á sumrin sem stelpa. Ég tók
þátt í öllu sem þið gerðuð og
fannst ég eiga fullt erindi í öll
verk, hvort sem það var að vinna í
búðinni, snattast með afa á rúg-
brauðinu eða syngja í kirkjukórn-
um.
Svona létuð þið okkur börnun-
um líða, eins og jafningjar ykkar
sem voruð eldri og vitrari. Ég dá-
ist líka að því hvað þú varst
óþreytandi að leika við okkur
krakkana, kenna okkur nýja leiki,
lög, þulur og gátur. Það eru ótelj-
andi söngtextar sem ég kann eftir
að hafa hlustað á þig syngja dag-
inn út og daginn inn. Börnin mín
náðu að kynnast þessari hlið á þér
og það er mér mjög dýrmætt. Þau
eru líka búin að kynnast því hvað
er gott að vera í Bolungarvík og
vilja helst vera hérna allt sumarið,
alveg eins og ég á þeirra aldri.
Elsku amma, ég er stolt af að
vera nafna þín og mun alltaf vera
það.
Sjáumst síðar.
Þín,
Hildur.
Í þessu lífi eigum við
aðeins einu að safna
minningum og brosatíð
allt annað mun svo dafna
Amma var svo hress og kát
alltaf til í fjörið
söngelsk var hún og dansaði
við stjórnvölinn á sínum bát
Hildur amma er svo fræg
stjarna í eigin lífi
læra má af þeirri mær
og af hennar glæsta lýði
Dansaði við dauðann oft
sem barn og brenndist illa
slæma mænuveiki fékk
stóð upp og áfram gekk
Í gegnum lífið hún amma fór
ávallt eigin leiðir
öllum mönnum var hún góð
sama af hvaða meiði
Benedikt heitinn mætir henni
með englasöng við hliðið
„Sæl vertu ástin ég hef saknað þín,
hérna, heilsaðu upp á gamla liðið“
Við munum ætíð minnast þín
með hlýju og gleði í hjarta
þú varst ávallt sæt og fín
amman okkar smarta
Hvíldu í friði.
Þín barnabörn,
Arnar, Katrín, Einar
Bjarni, Fannar Freyr.
Hidda frænka var öllum minn-
isstæð sem henni kynntust. Hún
var lífsglöð, jákvæð og ung í anda.
Hún var kvenréttindakona, fé-
lagsmálakona, sjálfstæðiskona og
var oft á undan sinni samtíð. And-
lát hennar kom ekki á óvart, ævi-
dagurinn var fyrir nokkru að
kveldi kominn.
Fyrir 60 árum byggðu foreldr-
ar mínir ásamt Hildi og Benedikt
tvö samskonar hús við Völusteins-
stræti. Einungis eru góðar minn-
ingar frá nábýlinu enda vinátta
mikil á milli fjölskyldnanna. Við
krakkarnir vorum á líku reki og
bæði húsin stóðu öllum opin. Á
þessum árum var lagður grunnur
að traustri vináttu á milli okkar
systkinanna og fjölskyldunnar
„fyrir handan“. Sú vinátta hefur
haldið alla tíð.
Hildur var mikil félagsmála-
kona og gekk ung í kvenfélagið
Brautina. Hún var í forystusveit
vestfirskra kvenna og var jafn-
framt fulltrúi á landsþingum. Þá
tók hún virkan þátt í pólitísku
starfi. Um árabil var hún vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
og settist á Alþingi sem slíkur.
Kvenfélagið stóð fyrir upp-
færslu á leikritum í Bolungarvík
um langt árabil. Hidda frænka var
fæddur leikari og lék mörg aðal-
hlutverkin á löngum leikferli.
Minnisstæður er samleikur henn-
ar og Karvels Pálmasonar í Apa-
kettinum á sjöunda áratug síðustu
aldar.
Það var einkennandi fyrir
frænku mína, að hún naut þess að
vera á meðal fólks. Hún átti auð-
velt með að gleðjast með ungum
sem öldnum og fór ekki í mann-
greinarálit. Hún gat verið stríðin
og naut þess að taka þátt í
græskulausu gamni. Hidda vílaði
aldrei fyrir sér að standa upp í
fjölmenni og flytja mál sitt. Hún
flutti ótal góðar tækifærisræður
við mörg og ólík tilefni. Það var
einkennandi fyrir Hiddu og
reyndar systkinin öll að þau blót-
uðu ekki og hölluðu ekki illu orði
til nokkurs manns. Við andlát
Hildar eru þau tímamót að öll
börn Elísabetar og Einars Guð-
finnssonar eru nú horfin á vit
feðra sinna.
Hildur var afar söngvin og
kunni ógrynni söngtexta. Það var
oft að hennar frumkvæði að menn
brustu í söng á ólíkustu manna-
mótum. Hidda kunni oft fleiri er-
indi en flestir aðrir, sem reyndu þá
gjarnan að lesa af vörum hennar.
Eftir að við Guðrún fluttumst í
hús foreldra minna urðu Benedikt
og Hildur næstu nágrannar okk-
ar. Í meira en 30 ár vorum við
samferða þeim í kirkjukór Bol-
ungarvíkur þar sem Hildur var
virkur félagi í rúm 60 ár. Sam-
skiptin voru náin síðustu árin.
Benedikt bar Hildi sína á höndum
sér.
Þau nutu lífsins, ferðuðust mik-
ið og voru virk í menningar- og
mannlífi á meðan heilsan entist.
Allan sinn búskap bjuggu þau í
Bolungarvík. Þau voru samstiga í
áhuga sínum á vexti og viðgangi
Bolungarvíkur og lögðu á mörg-
um sviðum hönd á plóg. Hér er
sérstaklega þakkað óeigingjarnt
starf þeirra fyrir Hólskirkju í ára-
tugi.
Þótt Hildur og Benedikt hafi á
margan hátt verið ólík kunnu þau
lífstangóinn sem þau stigu í takt
og áttu gott og viðburðaríkt líf. Að
leiðarlokum minnumst við Guðrún
einstakrar vináttu og velvildar
Hildar og Benedikts í okkar garð
og geymum með okkur ótal góðar
minningar.
Frændfólki og vinum okkar
vottum við samúð okkar.
Guðrún Bjarnveig og
Einar Jónatansson.
Við fórum um allt fallega húsið
og þau stríddu hvort öðru systk-
inin. Um leið og dóttir mín settist
við píanóið hófu þau pabbi minn og
Hildur föðursystir mín að syngja
með. Við mæðgurnar höfðum
skroppið heim til Bolungarvíkur
um hvítasunnuna fyrir þremur ár-
um og farið með þeim á heimili
Hiddu frænku að Völusteinsstræti
34. Þau voru 85 og 86 ára og bæði
orðin merkt af sjúkdómi sínum.
Eflaust höfðu þau oft sungið af
meiri krafti, en gleðin í söngnum
var fölskvalaus. Þetta var ógleym-
anleg stund og í síðasta skiptið
Hildur
Einarsdóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT BJÖRG
ÞORSTEINSDÓTTIR,
áður Gilsárstekk 5, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk síðastliðinn
miðvikudag.
.
Steen Magnús Friðriksson, Helene Westrin,
Hanna Katrín Friðriksson, Ragnhildur Sverrisdóttir,
Knútur Þór Friðriksson, Hanna Kristín Pétursdóttir
og ömmubörn.
Eiginmaður minn, ástvinur og faðir okkar,
FRIÐRIK KRISTJÁNSSON,
fv. framkvæmdastjóri,
Sunnuvegi 29, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 4. júlí.
.
Bergljót Ingólfsdóttir,
Vala Friðriksdóttir,
Friðrik Friðriksson,
Kristján Friðriksson,
Kolbrún Friðriksdóttir,
Bergljót Friðriksdóttir.
Útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
DANÍELS ÞÓRS EMILSSONAR
húsasmíðameistara,
Safamýri 93, Reykjavík,
fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
13. júlí klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Minningarsjóð líknardeildar og heimahlynningar.
.
Erna Helga Þórarinsdóttir,
Hafsteinn Daníelsson, Marta Árnadóttir,
Þór Daníelsson, Siv H. Franksdóttir,
Helga Daníelsdóttir, Sævar Jónsson,
afa- og langafabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA HANSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eyri,
Ísafirði,
lést 3. júlí. Útförin fer fram frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 16. júlí klukkan 10.30. Sérstakar
þakkir til starfsfólks öldrunardeildar FSÍ og hjúkrunarheimilisins
Eyrar fyrir góða umönnun.
.
Guðný R. Hólmgeirsdóttir, Sigurður Mar Óskarsson,
Elvar Már Sigurðsson,
Vilborg G. Sigurðardóttir, Hjalti Einarsson,
Helga Lind Mar,
Jóhann Mar Sigurðsson, Klara Dís Gunnarsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARÍA LILJA HALLDÓRSDÓTTIR,
Lindasíðu 4, Akureyri,
lést þriðjudaginn 5. júlí. Útför hennar fer
fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 12.
júlí klukkan 13.30.
.
Eyrún Magnúsdóttir, Magnús H. Baldursson,
Særún Magnúsdóttir,
Oddbjörn Magnússon, Ásdís Ármannsdóttir,
Arna Rún Magnúsdóttir, Friðrik V.
og ömmubörn.