Morgunblaðið - 09.07.2016, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2016
Sumartilboð á úrum
1.- 10. júlí
Gott úrval - gott verð
25% afsláttur 30% afsláttur 25% afsláttur
30% afsláttur
Opið virka daga kl. 9 - 18, laugardaga kl. 10 - 18 og sunnudaga kl. 11 - 17
böndum á djúphússenuna íslensku
og koma skiki á sköpunina sem þar
þrífst ef við getum kallað það svo
(og mörg hljóðdæmi má finna á So-
undcloud-setri útgáfunnar).
Djúphús-senan er þó sann-
arlega lítil, og afmörkuð, og þeir
félagar segjast hafa mjög ákveðið,
tónlistarlegt viðmið sem þeir
gangi út frá. En tilgangurinn er og
að byggja upp merki, senu, hóp
sem gæti þá hugsanlega vakið ein-
hverja athygli úti fyrir land-
steinum. Að því markmiði vinna
þeir með aðstoð frá aðilum eins og
Labelworx og Beatport. Öll upp-
bygging og markaðssetning fer þá
í gegnum netið, í gegnum sam-
félagsmiðla o.s.frv. Þeir félagar
eru þó alveg niðri á jörðinni og
segja merkið vera kirfilega neð-
anjarðar. Bara á Beatport ryðjast
inn 200-300 nýjar útgáfur daglega
og þeir svamli því um í einhverju
flóði þar. Eða eins og Jónbjörn
segir í téðri ritgerð: „Maður er
bara að reyna að gera eitthvað
skapandi og að reyna að halda ut-
an um einhverja senu hérna. Þetta
verður líka svo gaman í framtíð-
inni, að eiga eitthvert safn af tón-
list.“
Taktvissir Þeir Jón-
björn Finnbogason og
Viktor Birgisson reka
Lagaffe Tales.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Það er eiginlega ekki hægt að kalla
mig listrænan stjórnanda, því ég hef
ekkert taumhald á þessum lista-
mönnum.
En ég bý til þennan ramma og
held utan um þetta verkefni,“ segir
Þorgerður Ólafsdóttir myndlist-
armaður og nokkurskonar umsjón-
armaður myndlistarsýningarinnar
Staðir/Places sem hefst í dag, laug-
ardaginn 9. júlí og mun verða opinn
frá klukkan 16:00 - 21:00.
Þvælst um Vesturbyggð
„Í ár sýna listamennirnir Ragna
Róbertsdóttir, Hekla Dögg Jóns-
dóttir og Eva Ísleifs.
Þau munu sýna verk sín í Vest-
urbyggð, í Skjaldborg á Patreks-
firði, við höfnina á Bíldudal og inn í
rúst í Bakkadal, Ketildölum.
Klukkan 16:00 hefst myndverk
Heklu Daggar, Dailies/Dagsverk, í
kvikmyndahúsinu á Patreksfirði.
Í verkinu notar Hekla umhverfið í
kringum Skjaldborg sem leiksvið og
aðalatriði í myndinni. Frekari sýn-
ingar á verki Heklu Daggar eru eftir
samkomulagi.
Klukkan 17:30 verður keyrt á
Bíldudal þar sem verk Evu Ísleifs
Hooked/Kræktur verður afhjúpað
við höfnina á Bíldudal og mun sam-
félaginu verða afhent það að gjöf.
Að sögn listamannsins mun lista-
verkið syngja óð til sagnahefðar
Bílddælinga.
Síðan verður keyrt út í Bakkadal
þar sem Ragna hefur unnið innsetn-
ingu í rúst við hús sitt í samvinnu við
Ásmund Hrafn Sturluson arkitekt.
Rústin eða Bakka Bíó einsog gamla
byggingin er kölluð í dag, hefur
staðið óhreyfð í áratugi þar til nú.
Samkvæmt tilkynningu frá að-
standendum sýningarinnar er stefnt
að því að slá upp fjörugrilli fyrir
gesti og bjóða uppá nýveiddan lax.
Þetta er tvíæringur sem við erum
með.
Annaðhvert ár erum við með sýn-
ingu.
Árið á undan eru listamennirnir
að störfum en ári seinna sýna þeir
afraksturinn.
Við leggjum áherslu á að lista-
mennirnir nýti og njóti reynslunnar
af dvölinni sem mest og hafi unun af
því að vera hérna og skapa.
Best tekst upp þegar þeir fara
fram úr sjálfum sér.
Þegar tímaramminn er svona op-
inn þá er hægt að hugsa lengi um
verkið.
Það er mikið frelsi í þessu verk-
efni og listamennirnir njóta þess.“
Hugmyndin að vera stórtækari
en á vinnustofunni í bænum
Þorgerður sem byrjaði á þessu
verkefni ásamt Evu Ísleifs fyrir
nokkrum árum síðan segir að þær
hafi viljað búa til myndlist og vera
jafnvel stórtækari en venjan er á
vinnustofunni í Reykjavík.
„Árið 2014 var fyrsta sýningin,“
segir Þorgerður. „Þá sýndu Hrafn-
kell Sigurðsson, Bjarki Bragason og
Karlotta Blöndal.
Bjarki var með sýningu í Minja-
safni Egils Ólafssonar á Hnjóti í Ör-
lygshöfn á Patreksfirði.
Bjarki vann með sýningargripi
safnsins sem sumir eru frá Gísla frá
Uppsölum.
Karlotta var með innsetningu í
Tálknafirði í dalmynni þar. Hún
setti upp þrettán álstangir og
hengdi allt að þrjú hundruð blöð á
stangirnar, svo fuku blöðin af stöng-
unum og svo tíndi hún blöðin upp
eða prentin sem höfðu tekið mót og
lit af umhverfi sínu.
Hrafnkell setti upp sýningu sína í
kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldu-
dal.
Allt skilar þetta sér suður
Allt það sem listamennirnir gera
hérna fyrir vestan kemur með ein-
um eða öðrum hætti fram fyrir
sunnan. Það var gaman að sjá verk-
in sett upp í Reykjavík, eins og
hressileg vestanátt til borgarinnar.
Að sjá sterk vestfirsk kennileiti í
myndlistarlandslaginu fyrir sunnan,
eins og ljósmyndaverk Hrafnkels af
kalkþörungum eða þekkta muni
Gísla frá Uppsölum, var mjög gam-
an.“
Fiskurinn og lífæð þorpsins
En að sýningunum sem eru nú að
byrja, um hvað fjalla þær?
„Verkið hennar Evu fjallar meðal
annars um aðallífæðina fiskinn og
breytta tíma, hvernig saga fisksins
hefur þróast og öngullinn stendur
eftir eins og ummerki ævintýrs.
Verk Rögnu bendir einfaldlega á
landslagið en gamla byggingin sjálf
sem er jafnframt sýningarrýmið og
útsýnispallur, var gerð úr nær-
umhverfinu.“
Þú ert ekki frá Vestfjörðum, af
hverju valdir þú þennan stað sem
vettvang fyrir listsköpun?
„Af því að Vestfirðir eru svo ynd-
islegir, náttúran svo sérstök og ork-
an svo mikil. Það eru svo áhuga-
verðir staðir hérna. Hvort sem eru
söfn, menningarstaðir eða sagan,“
segir Þorgerður.
Vestfirðir, þar er lífæðin fiskur
Klukkan 16:00 í
dag, laugardag,
hefst listasýning
Staðir Stilla úr verki Heklu Daggar, Dagsverk, sem verður sýnt á Patreksfirði í dag, laugardag, í Skjaldborg.
Tíminn Rústirnar heilluðu listamanninn Rögnu Róberts-
dóttur og vinnur hún með einar slíkar í Bakkadal.
Hafið Fegurðin fyrir vestan er eitthvað sem listamenn-
irnir hafa verið að stúdera í langan, langan tíma.