Morgunblaðið - 16.07.2016, Side 10

Morgunblaðið - 16.07.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016 Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin. Graflaxinn okkar hlaut 1. verðlaun! Grafinn með einstakri kryddblöndu hefur þú smakkað hann? 2 0 1 6 SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Við erum að verða álíka að stærð og ágætis þorp,“ segir Gísli Páll Páls- son, forstjóri á hjúkrunarheimilinu Mörk, en í gær var tekin skóflu- stunga að 74 þjónustuíbúðum við Suðurlandsbraut 68-70 á svæði heim- ilisins. Um er að ræða tvær húsa- lengjur á þremur og fjórum hæðum og stefnt er að því að þær verði til- búnar fyrri hluta árs 2018. Þá verða samtals 152 slíkar íbúðir reknar á vegum Markar. Í þeim 78 þjón- ustuíbúðum sem þegar eru þarna fyrir búa 110 manns og þegar þær nýju hafa verið teknar í notkun verða um 200 íbúar í þjónustuíbúðum Markar. Á hjúkrunarheimilinu búa 113, starfsmenn eru um 200 þannig að á svæðinu munu rúmlega 500 manns búa og starfa í framtíðinni. Mörk er hluti Grundar, sem samanstendur af sex fyrirtækjum. Í starfseminni felst, auk þjónustuíbúð- anna, m.a. rekstur dvalar- og hjúkr- unarheimilisins Grundar við Hring- braut, Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði og rekstur hjúkrunar- heimilisins Markar sem er staðsett á sama svæði og þjónustuíbúðirnar. Alls njóta 550 einstaklingar eldri en 60 ára þjónustu Grundar á einn eða annan hátt, þar af eru 400 á hjúkrunarheimilum. Íbúðirnar eru boðnar til leigu með svokölluðu íbúðarréttarfyrirkomu- lagi sem felst í því að greidd eru 30% af kaupverði og síðan greiða íbúar mánaðarlega leigu sem er mishá eftir stærð og staðsetningu íbúða. Öðlast nýtt líf á efri árum Þjónustuíbúðir Markar eru ætl- aðar fólki 60 ára og eldra, en reyndin hefur verið sú að oft er fólk talsvert eldra þegar það flytur inn. „Flestir flytja inn um 75 ára aldurinn, sumir eru orðnir eldri en 85 ára,“ segir Gísli Páll og bætir við að þetta fari fremur eftir líkamlegu ástandi en aldri. „Oft eru aðgengismál farin að hefta fólk í að lifa lífi sínu til fulls, t.d. hjá þeim sem búa í fjölbýlishúsum án lyftu. Við heyrum frá mörgum sem flytja í þjónustuíbúðirnar á Mörk að þeir hafi verið farnir að einangrast í íbúð- um sínum og hafi jafnvel ekki farið út úr húsi heilu veturna. Ég hef séð fólk öðlast hreinlega nýtt líf við það eitt að flytja í þjónustuíbúð. Félagslegi þátturinn er svo mikilvægur.“ Spurður hvort fólk úr þjónustu- íbúðunum eigi forgang á hjúkrunar- heimilin Mörk eða Grund þegar það hefur ekki lengur heilsu til að búa sjálfstætt segir Gísli Páll svo ekki vera að öllu jöfnu. „En stundum hef- ur Færni- og heilsumatsnefnd höfuð- borgarsvæðisins úthlutað plássi á hjúkrunarheimilinu Mörk þegar ann- að hjóna hefur misst heilsu og getur ekki búið lengur í þjónustuíbúðinni. Þá býr hitt þar áfram, þau eru þá áfram hvort nálægt öðru og geta t.d. borðað saman. Það er óskaplega fal- legt að upplifa það.“ Dagurinn var vel valinn Það er engin tilviljun að skóflu- stungan var tekin í gær, 15. júlí, en dagurinn var fæðingardagur Helgu Björnsdóttur, eiginkonu Gísla Sig- urbjörnssonar, Gísla á Grund, sem var forstjóri Grundar 1934-1994. Helga var fædd árið 1914 og hefði því orðið 102 ára í gær, hefði hún lifað, en þau hjón voru afi og amma Gísla Páls. „Hún vann við Grund alla sína ævi þó hún hafi, að ég held, nánast aldrei þegið laun fyrir. Hún var í þessu við hlið afa af lífi og sál. Sá um mikinn hluta útlitsmála, innkaup á fallegum munum, gerð jóla- og páskaskrauts og eflaust meira sem ég veit ekki um. Ég hef heyrt að hún hafi í raun rekið heimilið þegar afi var veikur. Mér finnst fallegt og viðeigandi að taka þessa skóflustungu á afmælisdeg- inum hennar ömmu,“ segir Gísli Páll sem er fjórði ættliður stjórnenda Grundar og bætir við að nú starfi margir úr fimmta ættlið á heim- ilunum. Hann er barnabarnabarn Sigur- björns Ástvaldar Gíslasonar sem stofnaði Grund ásamt öðrum árið 1922, sonur hans var áðurnefndur Gísli Sigurbjörnsson og dóttir þeirra Gísla og Helgu er Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri Grundar og móðir Gísla Páls. Guðrún Birna tók skóflustunguna ásamt frænku sinni Guðrúnu Lárusdóttur sem er einn aðaleigenda Stálskips ehf. í Hafn- arfirði en hún er einnig barnabarn Sigurbjörns Ástvaldar. Stálskip lánar um þriðjung af kostnaði við byggingu nýju íbúðanna þannig að segja má að um sannkallað fjölskylduverkefni sé að ræða. Landsbankinn lánar síðan um tvo þriðju hluta fjármagnsins. Margvísleg þjónusta Spurður hvað felist í því að búa í þjónustuíbúð segir Gísli Páll að þar sé greiðara aðgengi að ýmiss konar þjónustu. „Til dæmis er innangengt í matsal hjúkrunarheimilisins þar sem kostur er á hádegismat, þarna er sjúkraþjálfun, hárgreiðsla, fótsnyrt- ing, læknisþjónusta og öryggisþjón- usta, svo nokkuð sé nefnt og þá er hægt að sækja í skemmtanir og messur. Ég segi alltaf við fólk sem kemur til okkar að það eigi ennþá rétt á niðurgreiddri heimilishjálp og heimilishjálp frá hinu opinbera þrátt fyrir að það sé flutt í þjónustuíbúð. Við getum ekki boðið upp á þessa þjónustu niðurgreidda og ég sé enga ástæðu til að fólk sé að kaupa hana af okkur á hærra verði.“ Nú þegar er púttvöllur á lóð Mark- ar, framkvæmdir eru hafnar við sundlaug á svæðinu og til stendur að hún verði tilbúin á svipuðum tíma og nýju húsin. Þar verða líka heitir pott- ar, gufuböð, líkamsrækt, nudd- og hvíldarherbergi. „Síðan munum við setja upp útileikfimitæki í garðinum við nýja húsið, þau eru sérstaklega hönnuð fyrir eldra fólk og þar verður m.a. hægt að gera teygjur, styrktar- og jafnvægisæfingar,“ segir Gísli Páll. Um 170 manns eru á biðlista eftir þjónustuíbúðum hjá Mörk. Nýju íbúðirnar munu væntanlega stytta þann biðlista að hluta, en eftirspurnin virðist vera talsvert meiri en fram- boðið. Gísli Páll segir þó engar fyr- irætlanir um frekari framkvæmdir að sinni. „Nei, við sjáum það ekki fyrir okkur eins og er. Við ætlum að ein- beita okkur að því að leysa þetta verkefni sem best.“ Enn bætist við þorpið í Mörkinni  74 þjónustuíbúðir verða byggðar við Suðurlandsbraut  Fyrsta skóflustungan tekin á fæðing- ardegi Helgu Björnsdóttur, eiginkonu „Gísla á Grund“  Fimmti ættliðurinn er kominn til starfa Morgunblaðið/Þórður Samhentar Frænkurnar Guðrún Lárusdóttir (til vinstri) og Guðrún Birna Gísladóttir tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum þjónustuíbúðum Markar í gær. Þær verða 74 talsins og verða væntanlega teknar í notkun árið 2018. Hjón Helga Björnsdóttir og Gísli Sigurbjörnsson, oft kenndur við Grund. Skóflustungan að nýjum þjónustuíbúðum var tekin á fæðingardegi Helgu. Teikning/Gláma-Kím Mörkin Fremst á myndinni eru þjónustuíbúðirnar að Suðurlandsbraut 58- 64, við hliðina er Hjúkrunarheimilið Mörk og gráu húsin með brúna þakinu eru nýju þjónustuíbúðirnar sem munu rísa við Suðurlandsbraut 68-70. Gísli Páll Pálsson Að mati Gísla Páls er brýnasta verkefnið í öldrunarmálunum að fjölga hjúkrunarrýmum. „Það er mikilvægast og að þeir sem reka þau fái meiri peninga til að gera það. Staðan eins og hún er núna er algerlega óásættanleg; á hjúkrunarheimilið Mörk eingöngu eru 99 á biðlista,“ segir hann en samkvæmt upplýsingum frá Emb- ætti landlæknis eru 400 manns á biðlista eftir hjúkrunarrými á land- inu öllu. Að sögn Gísla Páls hefur illa gengið í viðræðum Samtaka fyr- irtækja í velferðarþjónustu og Sjúkratrygginga Íslands um hlut hins opinbera í kostnaði við hjúkr- unarrými, en hann var um skeið í forsvari í þeim viðræðum. „Við höf- um verið án þjónustusamnings í 19 mánuði og það virðist vera erfitt að fá ríkið til að átta sig á kostnaðinum við þjónustuna. Eins og staðan er núna greiðir ríkið að jafnaði 95% af kostnaðinum, það er þó mismun- andi eftir heimilum. Þetta er eins og að fara út í búð, setja vörur fyrir 1.000 krónur í körfuna en segjast síðan ætla að borga 950 kr. fyrir.“ Annað sem hann segir brýnt að skoða í öldrunarmálum er hvort bjóða eigi öllum sem eru á sama aldri upp á sömu þjónustu. „Þarfir fólks eru ákaflega misjafnar og eru alls ekkert alltaf tengdar aldri.“ Brýn þörf á hjúkrunarrýmum Morgunblaðið/Ómar Grund 1. maí bjuggu rúmlega 2.400 einstaklingar á hjúkrunarheimilum landsins. Gísli Páll segir afar nauðsynlegt að fjölga hjúkrunarrýmum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.