Morgunblaðið - 16.07.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Kíkið á verðin eftir
tollalækkun
Æfingapeysa, hálfrennd
6.990 kr.
íþróttafatnaður
stærðir 36-46
Síðumúli 20 • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Verið
hjartan
lega
velkom
in
STORKURINN
er fluttur í Síðumúla 20
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Vinsældir skrafls hafa heldur betur
færst í aukana síðustu árin. Reynir
Hjálmarsson, formaður Skraflfélags
Íslands, segir Íslendinga þó alltaf
hafa haft gaman af skrafli.
„Það hefur oft verið skraflað
mikið þegar fjölskyldur koma sam-
an á hátíðum. Íslendingar eru nátt-
úrulega bókaþjóð auk þess sem við
erum hrifin af alls konar þrautum,
krossgátum og öðru,“ segir Reynir,
en félagið var stofnað fyrir aðeins
nokkrum árum eftir að fólk tók að
skrafla saman einu sinni í viku.
„Það var svo vel sótt og síðan
þá hefur bara bæst í,“ segir Reynir,
en spilarar hittast klukkan sjö að
kvöldi fyrsta miðvikudags hvers
mánaðar, á Café Haiti.
Netskraflið jók vinsældirnar
Reynir segir algjöra byltingu
hafa orðið í vinsældum skrafls eftir
að netskraflið svokallaða var sett á
laggirnar fyrir fáeinum árum, en
um fimmtán þúsund Íslendingar
spila það að jafnaði.
Því ákváðu Jóhannes
Benediktsson, sem situr í stjórn
Skraflfélagsins, og Reynir ásamt
fleirum, að skoða nánar gildi staf-
anna í hinu hefðbundna skrafli.
„Við smöluðum saman öllum
helstu stærðfræðingum, tölfræð-
ingum og tölvunördum Íslands og
létum ofurtölvu spila tíu milljón
leiki af netskrafli á móti sjálfri sér.“
Í ljós kom að fjöldi ákveðinna stafa
í spilinu var kolrangur og því var
Gefa út skrafl með
nýjum stafgildum
Hver kannast ekki við að hafa of mörg „e“ í skraflbríkinni sinni? Það vandamál
leysist vonandi með tilkomu nýs skrafls sem fyrirhugað er að gefa út fyrir komandi
jól. Landsmenn hafa mikinn áhuga á skrafli en hann jókst til muna eftir að hinu
svokallaða netskrafli var ýtt úr vör. Það spila að jafnaði um 15 þúsund Íslend-
ingar og langflestir velja að notast við þau stafgildi sem gefin eru í nýja skraflinu.
Morgunblaðið/Eva Björk
Spil Skraflkvöldin hafa notið mikilla vinsælda hjá gestum kaffihússins.
Víknaslóðir eru eitt allra best skipu-
lagaða göngusvæði á Íslandi í dag og
á vefsíðunni má fræðast nánar um
svæðið, þjónustu, leiðsögn, aðbúnað
og annað sem kann að koma sér vel
fyrir ferðalanga.
Ýmsir aðilar á Borgarfirði eystri
bjóða upp á leiðsögn um svæðið en
hún eykur til muna upplifunina af
svæðinu, auk þess sem henni fylgir
aukið öryggi á villugjörnu svæði, að
því er fram kemur á vefnum.
Heimamenn sem starfa við leið-
sögn á Víknaslóðum þekkja svæðið
fram og til baka, á svo marga vegu og
eru stútfullir af skemmtilegum og
fræðandi upplýsingum um sögu og
náttúru svæðisins, og kannski fara
þeir með þig á staði sem engir aðrir
fá að sjá og eru utan merktra leiða.
Þá má á vefnum finna fjölda skipu-
lagðra ferða á vegum Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs og Ferðafélags Ís-
lands á Víknaslóðum í sumar.
Á Borgarfirði er stutt í návígi við
náttúruna og því þarf ekki að leita
lengi til þess að finna eitthvað áhuga-
vert. Hafa Borgfirðingar lagt kapp á
að byggja upp aðstöðu fyrir áhuga-
menn um fuglalíf og náttúru.
Ferðamálahópur Borgarfjarðar
eystri hefur gefið út öflugt göngu-
leiðakort af svæðinu og er eindregið
mælt með því að allir þeir sem leggja
á Víknaslóðir hafi það meðferðis til
þess að auka öryggi göngufólks, en
kortið fæst hjá öllum ferðaþjón-
ustuaðilum á Borgarfirði.
Vefsíðan www.borgarfjordureystri.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Borgarfjörður eystri Sólin lýsir upp líparítshæðirnar á góðum sumardegi.
Eitt besta göngusvæði á Íslandi
Á morgun, sunnudag, verður boðið
upp á leiðsögn í fuglaskoðun og ljós-
myndun fugla í Viðey.
Yfir þrjátíu tegundir fugla verpa í
Viðey og því er þar margt spennandi
að sjá fyrir áhugasama fuglaskoðara.
Algengasti fuglinn er æður en sömu-
leiðis er mikið um mófugla, svartfugl,
kríur, fýla, grágæs, hrossagauka,
sendlinga og tjald. Eyjan er því
fuglaparadís en líflegastar eru tjarn-
irnar á Eiðinu.
Í tilkynningu frá Borgarsögusafni
eru gestir hvattir til að sýna fuglalíf-
inu tillitssemi á meðan á varptímabili
stendur, fara eftir gönguleiðum og
hrófla alls ekki við hreiðrum. Elma
Rún Benediktsdóttir, fuglaskoðari og
ljósmyndari, fer fyrir göngunni. Kær-
komið tækifæri til að njóta útiveru,
fuglalífs og fallegrar náttúru í tún-
fæti borgarinnar. Farmiði í ferjuna
fyrir fullorðna kostar 1.200 kr. fram
og til baka, 600 kr. fyrir 7-15 ára.
Endilega …
Morgunblaðið/Ómar
Viðey Baldursbrárnar vísa veginn
meðfram strandlengju Viðeyjar.
… njótið náttúrunnar í Viðey
Hin árlega Harmonikuhátíð Reykja-
víkur verður haldin á morgun, sunnu-
daginn 17. júlí.
Venju samkvæmt fer hátíðin fram í
Árbæjarsafni og hefst dagskráin
klukkan 13 samkvæmt upplýsingum
frá skipuleggjendum.
Á Harmonikuhátíðinni gefst ein-
stakt tækifæri til að kynnast og njóta
í návígi margra okkar bestu og þekkt-
ustu harmonikuleikara, í mögnuðu
umhverfi safnsins.
Hátíðin hefur síðustu ár notið sí-
vaxandi vinsælda og nú er svo komið
að hún er orðin einn af fjölsóttustu
viðburðum safnsins, enda felst í
henni ógleymanlegt tækifæri fyrir
alla aldurshópa til að rifja upp sögu
Íslendinga við undirleik ljúfrar harm-
onikutónlistar á fallegum sumardegi.
Skemmti safngestum um árabil
Á myndinni má sjá hinn lands-
þekkta Karl Jónatansson, harmoniku-
leikara og stofnanda Harm-
onikuhátíðar Reykjavíkur, leika á
hátíðinni þegar hún var haldin fyrir
nokkrum árum. Karl féll frá í byrjun
þessa árs, á sínu nítugasta og öðru
aldursári.
Skipuleggjendur segja hátíðina í
ár, og héðan í frá, verða haldna í
minningu Karls, því eins og margir
muni eflaust skemmti hann gestum
Árbæjarsafns með fágaðri spila-
mennsku alla sunnudaga yfir sum-
artímann um árabil.
Jónatan sonur Karls, sem skipu-
leggur hátíðina í samstarfi við safnið,
segir marga af fræknustu harm-
onikuleikurum landsins leika fyrir
gesti hátíðarinnar.
„Við fáum til okkar félaga frá
mörgum harmonikufélögum hvaðan-
æva af landinu en þetta eru margir
góðir einstaklingar og í raun erfitt að
telja þá upp.“
Þá segist hann búast við góðu
veðri þennan dag sem endranær.
„Við erum bjartsýnir á veðrið því
við höfum eiginlega alltaf haft sól.“
Heiðra minningu Karls Jónatanssonar harmonikuleikara
Harmonikuhátíðin sífellt vinsælli með hverju ári
Morgunblaðið/Ómar
Karl Jónatansson Frá hátíðinni árið 2009 hvar Karl lék við hvern sinn fingur.