Morgunblaðið - 16.07.2016, Page 23

Morgunblaðið - 16.07.2016, Page 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2016 Stjórnarskrárnefnd sú sem skipuð var á haustdögum 2013 hef- ur nú skilað forsætis- ráðherra þremur frumvörpum til breyt- inga á stjórnskip- unarlögum. Í bók- unum nefndarmanna kemur fram að frum- vörpin séu afurð málamiðlunar þar sem sumir vildu ganga lengra en aðrir skemur. Því miður er þessi málamiðlun nefnd- armanna að miklu leyti smituð af tillögum sem samdar voru af svo- kölluðu stjórnlagaráði. Helstu lög- spekingar þjóðarinnar gáfu til- lögum stjórnlagaráðsins falleinkunn og töldu þær vart not- hæfar sem grundvöll að stjórnlög- um. Þær tillögur eru því best geymdar í glatkistunni ásamt þeim mörg hundruð milljónum króna sem gæluverkefnið kostaði skatt- greiðendur. Í fyrirliggjandi frum- varpi um þjóðareign á auðlindum sést best hversu vegur málamiðl- ana er vandrataður þegar verið er að vinna með grundvallarlög ís- lensku þjóðarinnar. Sé texti frum- varpsgreinarinnar lesinn saman við greinargerð með frumvarpinu er augljóst að farið er frjálslega með merkingu orða í skýringum nefndarinnar. Þó má hrósa nefnd- inni fyrir að í greinargerðinni er leiðrétt sú rökvilla stjórnlagaráðs- ins að eignarréttur ríkisins að auð- lindum falli undir skilgreiningu einkaeignarréttar. Vísar nefndin þar til skýringa orðabókar um merkingarmun á opinberri eign og einkaeign og einnig þess að sam- hljóða merking er jafnan notuð í lagamáli. Í upphafsmálsgrein frumvarpsins um auðlindir í þjóð- areign segir „Auðlindir náttúru Ís- lands tilheyra íslensku þjóðinni. Þær ber að nýta á sjálfbæran hátt og til hagsbóta landsmönnum öll- um.“. Í greinargerð með frum- varpinu er síðan í löngu máli leit- ast við að útskýra að ákvæðið sé aðeins almenns eðlis og vísi ekki til eignarréttar á auðlindunum. En hvað skyldi orðabókin segja um þýðingu orðsins að tilheyra ein- hverjum? Í orðabók Máls og menningar segir, að það að til- heyra e-m merki að vera í eigu einhvers. Fyrsti málsliðurinn í frumvarpinu hefur því þá merk- ingu, samkvæmt íslenskri mál- notkun, að auðlindir náttúru Ís- lands eru eign íslensku þjóðarinnar verði frumvarpið að stjórnlögum. Nefndinni hefur þó, af einhverjum lítt skiljanlegum ástæð- um, ekki þótt taka því að eyða plássi í frum- varpinu og und- anskilja þar auðlindir í náttúru landsins sem nú eru háðar eign- arrétti einstaklinga eða lögaðila svoköll- uðum þjóðareign- arrétti. Síðar í máls- greininni segir: „Ríkið hefur eftirlit og um- sjón með meðferð og nýtingu auðlindanna í umboði þjóðarinnar.“ Um þetta segir orðabókin. Að hafa umsjón með e-u merkir: stjórn. Máls- greinin þýðir því á mæltu máli að ríkið fer með eftirlit og stjórnar nýtingu auðlindanna í umboði þjóðarinnar. Sé frumvarpið lesið án greinargerðarinnar verður það því ekki skilið á annan veg en þann, að þjóðin á allar auðlindir í náttúru Íslands og ríkið stjórnar nýtingu þeirra í umboði eigandans til hagsbóta landsmönnum öllum. Þessi afurð málamiðlunar til stjórnskipunarlaga, svo gölluð sem hún er, getur varla orðið óbreytt að stjórnlögum, enda er þá hvoru tveggja misþyrmt, stjórnarskránni og íslensku máli. Afflutningur texta frumvarpsins í greinargerð er til vansa fyrir nefndarmenn og dregur dám af vanþroskaðri um- ræðu undangenginna ára um stjórnarskrármál. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að orðalag stjórnarskrárinnar sé ávallt skýrt og í fullu samræmi við inntakið. Það gengur því tæpast þegar breyta á stjórnarskrá að merking orða í frumvarpinu sjálfu sé óðara borin til baka í greinargerð með þeim lögskýringum að ekki sé mark takandi á því sem í frum- varpinu stendur. Skáldið Jóhannes úr Kötlum orti forðum: Sovét- Ísland, óskalandið, hvenær kemur þú? Það skyldi þó aldrei vera að skáldið hafi verið bænheyrt nú um síðir, og fyrirmyndina að frum- varpi um þjóðareign á auðlindum megi finna í stjórnarskrá Sov- étríkjanna sálugu. Eftir Óðin Sigþórsson » Fyrsti málsliðurinn í frumvarpinu hefur því þá merkingu sam- kvæmt íslenskri mál- notkun að auðlindir náttúru Íslands eru eign íslensku þjóðarinnar. Óðinn Sigþórsson Höfundur er fyrrverandi formaður Landssambands veiðifélaga. Afurð málamiðlunar Til sölu Sælureitur á Snæfellsnesi Einstök staðsetning - nálægð við sjóinn, jökulinn og þjóðgarðinn Lítið og snoturt 2-3ja herbergja einbýlishús við sjávarsíðuna á norðanverðu Snæfellsnesi, í jaðri Hellissands. Húsið er 53fm2, steinsteypt á einni hæð auk kjallara. Svefnpláss fyrir átta manns. Steypt verönd um 30 fm2 með skjólgerði. Lóðin er 1.778 fm2, grasi vaxin með möguleika á frekari uppbyggingu. Gott útsýni er út á Breiðafjörð, Snæfellsjökul og þjóðgarðinn. Ekkert er byggt í vestur við húsið og aðeins eru um 400m niður í fjöru. Stutt í alla þjónustu. Húsið hentar vel til útleigu ferðamanna. Verð kr. 12,0 milljónir Nánair upp., veitir Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali / 897 1212 / finnbogi@fron.is Ég er einn af þeim sem átt hafa sund- og líkamsræktarkort í Sund- laugar Kópavogs um árabil. Og nýtt mér það nánast daglega að fara í sundlaugina og ræktina. Gym Heilsa er fyrirtæki sem hefur starfrækt líkamsræktina í laugunum við góðan róm viðskiptavina. Þjón- usta þeirra hefur verið góð og gjaldið sem viðskiptavinir hafa greitt verið hóflegt. Skv. þeim upplýsingum sem ég hef, virðist sem Kópavogs- bær hafa nýtt sér grein í samningi sínum við fyr- irtækið sem segir til um endurnýjun tækja. Og samningnum verið sagt upp á þeim forsendum að fyrirtækið hafi ekki endurnýjað tækin eins og samningurinn sagði til um. Þó svo á sama tíma hafi verið almenn ánægja meðal við- skiptavina Gym Heilsu með störf þeirra í sund- laugunum. Nú hefur Gym Heilsa flutt út alla starfsemina og eftir stendur að engin líkamsrækt er nú starfrækt í sund- laugum Kópavogs. Viðskiptavinum Gym Heilsu hefur verið boðin aðstaða til líkamsræktar í Sporthúsinu í Smáranum. Viðskiptavinir hafa fram að þessu getað notað kortin til þess að fara í sundlaugina eins og alltaf hefur verið frá því að þetta samstarf hófst seint á síðustu öld. Í síðustu viku sá ég tilkynningu í sundlauginni að lokað mundi verða á þessi árskort í laugarnar mánudaginn 11. júlí 2016 . Þetta er dapurleg niðurstaða hjá bæjarstjórn Kópavogs gagnvart við- skiptavinum sundlauganna. Það eru margir sem eiga árskort í laugunum sem að renna ekki út fyrr en á næsta ári, það er að segja 2017. Um kvöldið 11. júlí fór ég í Salalaug og var þá búið að loka fyrir að- gang þessara korta. Mikill fjöldi fólks kom þarna að lokuðum hlið- um og var vísað frá lauginni. Gremja og reiði viðskiptavina var mikil með þessa ákvörðun bæjaryf- irvalda. Starfsólk laug- arinnar stóð í ströngu og áttu fullt í fangi með að réttlæta þessa óréttlátu aðgerð bæjarins að loka lauginni fyrir fullgildum korthöfum sem allir höfðu greitt fyrir sín árskort og töldu sig í fullum rétti að koma í laugina. Það er ekki öfundsvert þetta nýja hlutverk starfsmanna sundlauga Kópavogs að reyna að róa fjölda óánægðra viðskiptavini sundlaug- anna sem ekki sætta sig við að vera beittir þessum órétti. Ekki verður horft framhjá því að þetta kemur viðskiptavinum laug- anna fyrir sjónir sem vörusvik af hálfu bæjaryfirvalda. Það hlýtur að teljast álitshnekkir og slök verkstjórn í bæjarstjórn Kópavogs að hafa ekki fundið þessu máli farsælli lausn. Heldur beita hreinlega ofbeldi og loka fyrir kort sem voru og eru í fullu gildi. Dómgreindarleysi bæjaryf- irvalda er algjört, að blanda við- skiptavinum sundlauganna í mál þetta með þessum hætti. Kópavogsbær hlýtur að bera ábyrgð í þessu máli þar sem þeir eru eigendur og rekstraraðilar. Starfs- menn sundlauganna (bæjarins) tóku við greiðslum viðskiptavina þegar þeir greiddu fyrir árskort sín í laug- ina og líkamsræktina. Kópavogsbær segir þessum samningi einhliða upp við Gym Heilsu og virðist þar af leið- andi vera stærsti gerandinn í málinu. Ég skora á bæjarstjóra og bæj- arstjórn Kópavogs að breyta afstöðu sinni í þessu tiltekna máli og hafa op- ið á þessi kort þar til þau renna út. „Allt annað virðist fásinna“. Gym Heilsa – Sundlaugar Kópa- vogs – Bæjarstjórn Kópavogs Eftir Einar Hjaltason Einar Hjaltason Höfundur er fyrrverandi stýrimaður og var í siglingum um árabil. Ógilt? Afsláttarkortið gildir til septemberloka. »Ekki verður horft framhjá því að þetta kemur viðskiptavinum lauganna fyrir sjónir sem vörusvik af hálfu bæjaryfirvalda. Skákunnendur sem bíða í of-væni eftir því að heims-meistaraeinvígi MagnúsarCarlsen og Sergei Karjakin hefjist áttu ekki von á því að sjá þá að tafli fyrir uppgjörið mikla í nóv- ember. Þeir voru báðir skráðir til leiks á „norska mótinu“ í vor en Kar- jakin sá sér ekki fært að vera með og bar við þreytu en þá blésu Baskar til ofurmóts í Bilbao þar sem sex skák- menn tefla tvöfalda umferð – og þeir eru báðir með Carlsen og Karjakin! Aðrir þátttakendur eru Nakamura, So, Hollendingurinn Giri og Kínverj- inn Wei Yi. Í Bilbao kemur aftur á daginn að norski heimsmeistarinn er aldrei í meiri taphættu en í fyrstu umferð hvers móts. Í þetta sinn tapaði hann fyrir Bandaríkjamanninum Hikaru Nakamura og mun það vera í fyrsta sinn sem Nakamura vinnur Magnús í kappskák; þeir hafa teflt 30 slíkar og Magnús unnið 12 sinnum með 27 jafnteflum. Þrátt fyrir þetta óvænta tap eiga flestir von á Magnúsi sterk- um þegar líða tekur á keppnina. Hvað Bandaríkjamenn varðar liggur fyrir að þeir stefna á ólympíu- gull. Liðið sem teflir í Baku er ekki árennilegt með Nakamura, Caruana og Wesley So í broddi fylkingar. Nú eru 40 ár síðan Bandaríkin unnu Ól- ympíumót síðast en austurblokkin sat heima. Nakamura er á mikilli siglingu þessa dagana og sýndi það í eftirfarandi skák: Magnús Carlsen – Hikaru Na- kamura Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Re2 Keres átti það til að leika ridd- aranum þangað. Fljótlega beinist taflið yfir í þekkta stöðu. 2. … d6 3. Rbc3 a6 4. g3 g6 5. Bg2 Bg7 6. d4 cxd4 7. Rxd4 Rf6 8. 0-0 0-0 9. b3 Rc6 10. Rxc6 bxc6 11. Bb2 Da5 12. Ra4 Bg4 13. De1 Dh5 14. f3 Bh3 15. g4 Dh6 16. Hd1 Hann gat teygt sig eftir peði með 16. Bc1 g5 en eftir 17. Bxg5 Dxg5 18. Bxh3 Rh5! og – Rf4 er svarta staðan betri og 17. Bxh3 Dxh3 18. Bxg5 er svarað með 18. … Rxg4! o.s.frv. 16. … g5 17. Bc1 Bxg2 18. Kxg2 Dg6 19. h4 gxh4 20. Dxh4 d5 Eftir fremur óhefðbundna byrjun er einfaldast og best að leika 21. exd5 cxd5 (eða 21. … Rxd5 22. c4) 22. c3 og hvíta staðan er eilítið betri. En Magnús velur aðra leið og lakari. 21. g5? dxe4 22. f4 e6! ( Stöðvar f-peðið. ) 23. c4 Hfd8 24. Hde1 Re8 25. Rc5 Rd6 26. Df2 f5! Nakamura vill alls ekki láta peðið af hendi. Og brátt segir liðsmun- urinn til sín. 27. Bb2 Rf7 28. Bxg7 Kxg7 29. Dg3 Hd6 30. Hd1 Had8 31. Hxd6 Hxd6 32. Dc3 Kg8 33. Hf2 Dh5! Svartur stendur vel til varnar og sóknar. Það er ekki nokkur leið fyrir hvítan að verja þessa stöðu. 34. Dh3 Dd1 35. De3 e5! 36. Dg3 Hg6 37. Kh2 exf4 38. Dxf4 Dh5+ 39. Kg1 Dd1+ 40. Kh2 Dh5+ 41. Kg1 Rxg5 42. Db8+ Kg7 43. De5+ Kh6 44. Df4 Dd1 45. Kh2 Dd4 46. b4 Kg7 47. Dc7 Kh8 48. Dc8 Hg8 49. Dxf5 Rf3 50. Kh3 Enn er smá von: 50. … Dxf2 51. Df6+ Hg7 52. Df8+ og hvítur þrá- skákar. 50. … Dd6! Hótar 51. .. Dg3 mát og 51. … Dh6+. Það er engin vörn. Magnús gafst upp. Hjörvar Steinn vann opna mót- ið í Suður-Wales Hjörvar Steinn Grétarsson vann öruggan sigur á opna skákmótinu sem lauk í Cardiff í Suður-Wales sl. miðvikudag. Hjörvar hlaut 8 vinn- inga af tíu mögulegum og var ½ vinningi fyrir búlgörsku stórmeist- arana Boris Chatalbashev og Mari- an Petrov en Hjörvar vann þá báða í sjöundu og áttundu umferð svo sig- urinn var sanngjarn og jákvætt skref fram á við eftir Skákþing Ís- lands á dögunum. Í mestri taphættu í fyrstu umferð Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.