Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 11
103
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
lengur en aðrar ær. Það heyrir til
undantekninga hjá íslensku fé að ær
verði eldri en tíu vetra, en eins og 5.
mynd sýnir náði allnokkur hópur af
forystuánum hærri aldri.
Á 6. mynd er sýnt ættliðabil á
föður- og móðurhlið. Ættliðabil er
aldur foreldris þegar afkvæmið fæð-
ist. Á föðurhliðina er það tæp 3,3
ár að meðaltali. Þegar það er brotið
frekar niður er bilið rúm 3,5 ár frá
föður til sonar en rúm 3,2 ár frá
föður til dóttur. Á móðurhliðina er
ættliðabilið að jafnaði 5,7 ár. Þar er
bilið um 5,5 ár frá móður til sonar
en hins vegar rúm 5,8 ár frá móður
til dóttur. Vakin skal athygli á því að
í rannsókninni eru tvær kindur sem
móðir þeirra bar þegar hún var 17
vetra gömul.
Hjarðir með forystufé
Í rannsókninni voru hjarðir þar
sem forystufé var að finna alls 415.
Á 7. mynd er sýnd stærðardreifing
hjarðanna eftir fjölda forystufjár.
Þar kemur í ljós að í flestum hjarð-
anna eru ein eða tvær forystukindur
eða á nærri 60% búanna. Bú með
fleiri en sex einstaklinga voru fá
þó að nokkurn hluta stofnsins væri
að finna í þessum stærri hópum. Í
stærsta hópnum á búi voru 20 for-
ystukindur.
Útlitseinkenni forystufjárins
Í rannsókninni voru meginlitir
skráðir. Auk þess var hornafar
fjárins skráð (hyrnt/kollótt). Af
þessu fé voru 1379 kindur eðlilega
hyrndar eða 97% en 18 gripir voru
kollóttir og aðrir 18 hnýflóttir eða
sívalhyrndir. Einar 17 forystukindur
töldust ferhyrndar.
Í 3. töflu er gefið yfirlit um liti
fjárins í rannsókninni. Tölurnar tala
sínu máli en athygli vekur hátt hlut-
fall tvílitra kinda.
Skyldleikarækt og skyldleiki
innan stofnsins
Við útreikning á skyldleika-
ræktarstuðli, skyld leika gripa og
erfðaframlagi var útbúin ættarskrá
5. mynd. Aldursdreifing forystufjár eftir kyni. – Age distribution of leadersheep by sex.
3. tafla. Meginlitir forystufjár í rannsókninni, fjöldi. – Classifiction of leadersheep by main
colours, number.
Grunnlitur
Basic colour
Einlitt
Single
colour
Botnótt
Mouflon
Golsótt
Badgerface
Flekkótt
Broken colour
Piebald
Samtals
Total
Hvítt / White 16 16
Grátt / Gray 16 1 1 41 59
Svart / Black 112 17 10 848 987
Mórautt / Brown 51 11 6 288 356
Grámórautt / Graybrown 1 3 4
Samtals / Total 196 29 17 1180 1422
NFr_3-4 2015_final.indd 103 30.11.2015 16:34