Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 5

Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 5
97 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Inngangur Sögulegt yfirlit og dreifing forystufjár um landið Búfé barst hingað með landnáms- mönnum og er talið komið af heimaslóðum þeirra. Íslenska sauðféð er því á grundvelli sögulegra heimilda talið rekja uppruna sinn mest til Noregs.1 Í yfirliti um sauðfjárkyn er það flokkað til norður-evrópsku stutt- rófukynjanna og er nú stærsti fjárstofn af þeim meiði.2 Þó að talsvert hafi verið um innflutning á sauðfé til kynbóta, einkum á 19. og 20. öld, er talið að áhrif hans á sauðfjárstofninn í landinu nú séu hverfandi. Hins vegar bárust oft með þessu innflutta fé ýmsir sauðfjársjúkdómar sem ollu miklum búsifjum og leiddu til fjárfellis og fjárskipta á stórum landsvæðum.3 Undir lok síðustu aldar var unnin sameindaerfðafræðileg rann sókn á vegum Norræna genabankans og var þar gerður samanburður á skyldleika nokkurra tuga sauðfjárstofna í norðanverðri Evrópu og erfðabreytileika innan þeirra.4 Niðurstöður studdu fyrri kenningar um norrænan uppruna íslensks sauðfjár. Í rannsókn þessari voru skoðaðir tveir íslenskir sauðfjárstofnar, Íslenskt sauðfé (e. The Iceland Breed of Sheep) og Forystufé (e. The Iceland Breed of Leadersheep). Er þetta í fyrsta sinn sem forystuféð er skoðað sem sérstakt fjárkyn. Fjárkynin greindu sig að sem afmarkaðir hópar í rannsókninni en eins og vænta mátti var innbyrðis skyldleiki mun meiri en við önnur sauðfjárkyn. Við mat á stofnerfðafræðilegum eiginleikum komu ekki fram neinar sérstakar vísbendingar um erfðafræðilega veikleika hjá forystufénu sem rekja mætti til lítillar stofnstærðar hópsins. Forystuféð virðist búa yfir eiginleikum sem hvergi er að finna heimildir um meðal sauðfjárkynja annars staðar í veröldinni. Í yfirlitsriti Forystufé er þekkt hérlendis allt frá upphafi byggðar og eru eiginleikar þess einstakir á heimsvísu. Raktar eru heimildir um forystufé sem litið hefur verið á sem sérstakan stofn innan íslenska fjárins. Þessar heimildir eru strjálar og gefa enga mynd af þróun stofnsins. Fjárskiptin um miðja 20. öld voru stofninum veruleg blóðtaka. Í greininni er lýst einkennum for- ystufjár. Niðurstöður tilraunar til að mæla forystueiginleika fjárins staðfesta ótví- ræða hæfni þess við að fara fyrir fjárhópum. Stofninn var kortlagður eins nákvæmlega og hægt var (blendingum sleppt). Miðað var við ásett fé haustið 2008. Náðist til 1422 einstaklinga. Þar af voru 1190 ær, 107 hrútar og 125 sauðir. Í heildarstofninum er þó heldur fleira fé en þetta vegna þess að leitin verður aldrei tæmandi. Stofninn var að finna í samtals 415 hjörðum, 60% hjarðanna töldu einn eða tvo einstaklinga, en mest voru skráðir 20 einstaklingar í hjörð. Forystuær verða eldri en aðrar ær. Forystufé er mjög misdreift um landið. Vestur- Barðastrandarsýsla var eina sýslan þar sem forystufé í hreinrækt var ekki að finna. Féð er mjög strjált á Vestfjörðum, og einnig á landinu austanverðu frá Markarfljóti austur og norður að Jökulsá á Dal. Ræktunarkjarni stofnsins er á norðausturhluta landsins. Oftast eru grunnlitir hjá þessu fé svartur eða mórauður og virðist tíðni þeirra litaerfðavísa nánast jöfn í stofninum. Erfðavísir fyrir tvílit hefur tíðnina 0,92 í stofninum. Skyldleikaræktarstuðull gripa með nægar ætternisupplýsingar til að leyfa slíkan útreikning var að meðaltali 0,0274. Niðurstöður gefa til kynna að vel hafi tekist að hemja aukningu á skyldleikarækt í stofninum síðustu áratugi. Áhrif einstaklinga í stofninum eru rædd. Rætt er hvernig best megi standa að varðveislu erfðafjölbreytni í stofninum. Í heildina er forystuféð dæmi um stofn sem vel hefur tekist að varðveita. Lagt er til að forystuféð verði skilgreint sem sérstakt búfjárkyn. Jón Viðar Jónmundsson, Lárus G. Birgisson, Sigríður Jóhannesdóttir, Emma Eyþórsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson og Ólafur R. Dýrmundsson Forystufé á Íslandi Náttúrufræðingurinn 85 (3–4), bls. 97–114, 2015 Ritrýnd grein NFr_3-4 2015_final.indd 97 30.11.2015 16:34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.