Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 12
Náttúrufræðingurinn 104 með ætternisupplýsingum fyrir rúmlega tíu þúsund gripi. Þéttleiki upplýsinga í þessum ættargrunni er mældur með svonefndum þéttleikastuðlia (PEC-gildi)36 sem 7. mynd. Dreifing í stærð forystufjárhjarðanna haustið 2008. – The distribution of flocks by numbers of winterfed leadersheep in 2008. 8. mynd. Meðaltal þéttleikastuðuls (PEC-gildis) forystufjárins flokkað eftir fæðingarári. – Mean PEC-coefficients in leadersheep pedigrees by year of birth. 6. mynd. Dreifing ættliðabils hjá forystufé. – Distribution of generation interval of leadersheep. 9. mynd. Þróun reiknaðs skyldleikaræktarstuðuls (F) fyrir forystufé 1990–2008. Bláa línan sýnir alla einstaklinga (allt) en sú efri fé sem reiknast með einhverja skyldleikarækt (reiknað). – Development of inbreeding in leadersheep by year of birth. The blue line shows all sheep (all), the other only individuals inbred according to calculation. og þétt hjá yngstu árgöngunum í gögnunum í takt við það að upplýsingar verða meiri. Á 9. mynd er sýnt hvernig skyldleikaræktarstuðull einstakl- inga í einstökum árgöngum hefur breyst á árabilinu 1990–2008. Ná þessir útreikningar til allra þeirra einstaklinga í ætternisgrunninum sem fæddust frá 1990 til 2008 og uppfylla skilyrði um þéttleikastuðul 0,24 að lágmarki. Efri línan sýnir þróun hjá gripum sem reiknast með skyldleikaræktarstuðul hærri en 0 en sú neðri sýnir meðaltalið þegar einnig eru teknir með gripir sem uppfylla skilyrði um þéttleika ætternisgagna en fá reiknaðan skyldleikaræktarstuðul 0. Þegar hækkun á línum er metin með aðhvarfsstuðli er hún 0,0003 á ári fyrir neðri línuna en 0,0012 fyrir þá efri. Í 4. töflu er gefið yfirlit um skyldleikarækt þeirra gripa í rannsókninni sem uppfylla a. Þéttleikastuðull (e. Coefficient for pedigree completeness) (PEC-gildi) mælir þéttni upplýsinga í ættartré einstaklings. Þennan stuðul má reikna fyrir misstór ættartré, hér 5 ættliði, sem er algengast. Meðal-þéttleikastuðull (e. Mean PEC) er meðaltal fyrir einstaklingana í þeim erfðahópi sem er til umfjöllunar. Þéttleikastuðull verður hæst 1,0. b. Skyldleikaræktarstuðull (e. Inbreeding coefficient) (F) sýnir líkur á því að báðir erfðavísar í sama erfðavísasæti séu afritun frá einu og sama geni hjá sameiginlegum forföður. Skyldleikaræktarstuðullinn er þannig t.d. mælikvarði á hve dregið hefur úr erfðabreytileika og verður grunnstærð við mat á erfðafræðilegum fjölbreytileika. þarf að ná gildinu 0,24 til þess að mögulegt sé að tala um marktækan útreikning á skyldleikaræktarstuðli (F).b Á 8. mynd gefur að líta hvernig þéttleikastuðullinn hækkar jafnt NFr_3-4 2015_final.indd 104 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.