Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 20
Náttúrufræðingurinn
112
viðhaldi stofnsins en ekki virðist þó
ástæða til að auka þær frá því sem
nú er. Notkun hrútanna eins og nú
er, í tvö ár, eitt á hvorri stöð, virðist
fljótt á litið heppileg. Velja ber unga
hrúta til notkunar og að sjálfsögðu
eins fjarskylda undanförum sínum
og kostur er. Ekki má aftur eiga
sér stað slys við sæðisnotkun eins
og varð við ofnotkun Blesa fyrir
áratug og áður var rætt. Miklu
varðar að hin farsæla ræktun á
kjarnasvæðinu á norðausturhluta
landsins haldi áfram á líkan hátt
og undanfarna áratugi. Tryggja
þarf varðveislu sæðis í genabanka
sæðingastöðvanna. Slík varðveisla
er þegar hafin. Hið tiltölulega
langa ættliðabil á móðurhliðina í
stofninum er mjög jákvætt með
tilliti til skyldleikaræktar. Dreifing
stofnsins á mikinn fjölda fjárbúa
um allt land er einnig jákvæð og
skapar auk þess margfalt öryggi við
verndun stofnsins samanborið við
færri og stærri einingar. Varðveislan
sem hér er lýst er að öllum líkindum
nánast einsdæmi um prýðilega
verndun mjög lítils stofns.46
Bæta þarf skráningu ætternis-
upplýsinga um forystufé í landinu.
Margir bændur hafa haldið því
utan almenns skýrsluhalds vegna
takmarkaðra afurða. Bjóða ber
skráningu þess í skýrsluhaldinu
án þess að það sé reiknað með í
afurðauppgjöri búsins. Með því
að vinna áfram á þeim grunni sem
fenginn er með þessari rannsókn
ætti að vera mögulegt að koma
á fullkomnu ættarbókhaldi um
allt forystufé í landinu. Þetta er
nauðsynlegt til að hafa yfirsýn um
þróun stofnsins. Áhugavert er að
ætla nýstofnuðu Forystufjársetri
hlutverk í þessu sambandi (sjá kassa
á bls. 110).
Við teljum að forystuféð með
sína einstæðu eiginleika hafi verið
hér á landi allt frá landnámstíð.
Hafi það borist hingað með
landnámsmönnum var þetta fé að
finna í nálægum löndum þegar
þeir lögðu upp í ferð sína til
Íslands. Spurningunni um það
hvers vegna þetta fé hefur horfið í
öðrum löndum verður ekki svarað.
Líklegast er samt að skýringa
sé að leita í því að hér höfðu
eiginleikarnir hagnýta þýðingu í
fjárbúskap en hafa ef til vill verið
taldir neikvæðir í öðrum löndum
og þar valið gegn þeim.
Notagildi forystufjár er nú
takmarkað í samanburði við það
sem áður var (15. mynd). Ljóst er
þó af því sem hér hefur verið rakið
að um einstæða erfðaauðlind er
að ræða. Mikil ábyrgð liggur því
á herðum okkar að varðveita hana
og er sjálfsagt að nýta sér öfluga
erlenda þekkingu í því skyni.46
Reynsla síðustu áratuga, sem hér
hefur verið lýst, er um flest jákvæð
og traustur grunnur að styðjast
við. Jafnframt virðist ástæða til að
huga vel að öllum möguleikum
til aukinnar verðmætasköpunar.
Í því sambandi beinast augu að
möguleikum á útflutningi. Stofninn
og sumir eiginleikar hans eru
einstakir og líklegt er að finna megi
markað fyrir þetta sérstaka fé víða
um heim. Hugmyndir hafa komið
fram um að það geti haft hlutverk
við að draga úr tjóni af völdum
rándýra.8,47 Á næstu áratugum gæti
það fetað slóð íslenska hestsins í
útflutningi. Við slíkar ráðagerðir
skiptir máli að forystuféð teljist
sérstakt fjárkyn en ekki undirstofn
Íslensks fjár. Ljóst er að forystuféð
er frábrugðið öðru fé. Bæði í
atferli og útliti er sérstaða þess
svo mikil gagnvart öðru íslensku
fé, miklu meiri en oft er á milli
erlendra fjárkynja, að hún réttlætir
skráningu þess sem sérstaks kyns.
Tillaga höfunda er að eftirleiðis
verði það gert.
SUMMARY
Leadersheep in Iceland
In the first part of this article there is a
review of written information on the
Icelandic leadersheep which is consid-
ered to be a special strain within the
Iceland breed of sheep. These sources
are sporadic and do not represent a com-
plete picture of the development of the
population. The leadersheep strain has
been known to exist in Iceland ever
since the settlement of the country over
1100 years ago. There was a major bot-
tleneck in the population due to an ex-
tensive sheep disease eradication pro-
gramme in the middle of the 20th century.
The leadersheep of Iceland appear to be
unique on a world scale. The character-
istics of leadersheep are described.
15. mynd. Forystufé á Brúnastöðum í Flóa fer fyrir hjörðinni við innrekstur haustið 2012. –
Leadersheep at Brúnastaðir Farm in Flói, S-Iceland, leading the flock when driven to the
sheephouse in the autumn of 2012. Ljósm./Photo: Ágúst Ketilsson.
NFr_3-4 2015_final.indd 112 30.11.2015 16:34