Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 55
147
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
talninga raðirnar (1977–2007) frá
Bíldsey og tveimur smáeyjaklösum
sem sama fjölskyldan nytjar,
Úteyjum (Þorvaldsey, Lónið og
Lónklettur) og Inneyjum (Hraun-
hólmi, Háhólmi, Skarði og
Hvíldarhólmi) við Hrappsey. Fjöldi
hreiðra í Inneyjum jókst 1980–
1990 en minnkaði 1990–1995 (4.
mynd). Fjöldi hreiðra í Úteyjum
hélst svipaður mestallt tímabilið en
hreiðrum fækkaði þó allra síðustu
árin. Í Bíldsey fjölgaði hreiðrum
1980–1990 en síðan stóð fjöldi
hreiðra að mestu í stað eftir 1990
(4. mynd), svipað og gerðist í
flestum Vestureyjavörpunum.
Talningar voru til frá 1994 í þremur
eyjum vestan og norðvestan
við Stykkishólm; Þormóðsey,
Höskuldsey og Elliðaey. Hreiðrum
fækkaði í Höskuldsey en fjölgaði
álíka mikið í Elliðaey 1994–
2009. Fjöldi hreiðra var svipaður
við upphaf og lok tímabilsins í
Þormóðsey eftir hámark í kringum
2000.
Arney (2001–2008), Hrappsey
(2005–2008) og Öxney (2001–2008)
eru eyjar yst í Hvammsfirði og
eru allar nytjaðar frá Stykkishólmi.
Hreiðrum fjölgaði nokkuð í Arney
og Öxney en fjöldi hreiðra hélst
svipaður í Hrappsey (1. viðauki).
II – Norðurland: Hrútafjörður,
Eyjafjörður og Þingeyjarsýsla
Á Norðurlandi höfðu talningar
staðið lengst í Hrísey (frá 1960)
og á Laxamýri (1968) (5. mynd).
Hægfara fjölgun var 1970–1979 en
hröð fjölgun 1980–1992, sem síðan
gekk til baka fram til ársins 2007.
Á suðurenda Hríseyjar er lítið
æðarvarp, Hrísey suður, sem
virðist sýna annan feril en stærra
Hrís eyjarvarpið (Hrísey norður),
(5. mynd). Þá voru hreiður talin í
tveimur vörpum fyrir botni Eyja-
fjarðar, í óshólmum Eyjafjarðarár og
við Akureyrarflugvöll. Hreiðrum
fækkaði alls staðar í Eyjafirði og
á Laxamýri eftir 199031 en lítil
breyting var á Heggstöðum við
Húnaflóa mestallt tímabilið.
5. mynd. Fjöldi æðarhreiðra á Norðurlandi. Talið var árlega í Hrísey á Eyjafirði og á Laxamýri
í Þingeyjarsýslu 1968–2007, stopult á Heggstaðanesi við Húnaflóa 1993–2008, við
Akureyrarflugvöll og í óshólmum Eyjarfjarðarár 1983–2010, en árlega í sunnanverðri Hrísey
1991–2008. Óbrotnar línur tákna æðarvörp með samfelldar, árlegar talningar en tákn án línu
sýna æðarvörp þar sem vantar viss ár eða árabil. – Nest counts for common eider in colonies in
North Iceland. Counts were annual in Hrísey, Eyjafjörður, and Laxamýri by Skjálfandi 1968–
2007 but sporadic in Heggstaðanes by Húnaflói 1993–2008, Akureyri Airport and by
Eyjafjarðará 1983–2010 but annual in Southern-Hrísey 1991–2008. Lines indicate colonies
with annual counts, whereas symbols indicate colonies with years missing from the data series.
6. mynd. Fjöldi æðarhreiðra á Vestfjörðum. Talið var í Dýrafirði 1960–2005, á fimm ára fresti,
og er vísitalan Dýrafjörður samanlögð tala fyrir æðarvörpin á Læk og á Mýrum. Mismunurinn
milli 2000 og 2005 gæti stafað af uppgangi æðarvarpa annars staðar í firðinum og því ekki
endilega víst að um fækkun hafi verið að ræða á þessu árabili. Talið var árlega á Auðkúlu í
Arnarfirði 1990–2008, í Holti í Önundarfirði 2001–2007, stopult í Innri-Hjarðardal í
Önundarfirði 1987–2005 og árlega í Þernuvík við Ísafjarðardjúp 1998–2006. Óbrotnar línur
tákna æðarvörp með samfelldar, árlegar talningar en tákn án línu sýna æðarvörp þar sem
vantar viss ár eða árabil. – Nest counts for common eider in colonies in the Westfjords, Iceland.
Counts from Dýrafjörður (1960–2005) were done every 5 years and is the sum for Lækur and
Mýrar. The difference between 2000 and 2005 could be explained by an increase in other,
undocumented eider colonies in Dýrafjörður. Counts were annual in Arnarfjörður 1990–2008
and at Holt in Önundarfjörður 2001–2007, sporadic in Innri-Hjarðardalur in Önundarfjörður
1987–2005 and annual in Þernuvík by Ísafjarðardjúp 1998–2006. Lines indicate colonies with
annual counts, whereas symbols indicate colonies with years missing from the data series.
NFr_3-4 2015_final.indd 147 30.11.2015 16:34