Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 64
Náttúrufræðingurinn
156
Borgin býður Perluna
undir náttúrusýningu
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt að breyta Perlunni í
þeim tilgangi að koma þar fyrir
náttúrusýningu. Hyggst borgin
auglýsa eftir einkaaðilum til að
fjármagna og reka slíka sýningu.
Perluvinir ehf., er nýstofnað
félag áhugamanna sem hyggst
taka þátt í þessu verkefni. Á
stofnfundi félagsins í Safnahúsinu
27. október s.l. kom fram að
hugmyndin að náttúrusýningu í
Öskjuhlíð er ekki ný af nálinni.
Fyrstur til að kynna hana var
Jóhannes Kjarval listmálari, ára-
tugum áður en Perlan var byggð.
Hugmyndin fékk byr undir báða
vængi á árunum eftir 2011 og í apríl
2013 sömdu ríki og borg um að ríkið
tæki Perluna á leigu undir sýningu
á vegum Náttúruminjasafns
Íslands. En eins og svo oft áður
í 126 ára sögu baráttunnar fyrir
Náttúruminjasafni varð ekkert úr
framkvæmdum og svo virtist sem
málið hefði gufað upp.
Nú er málið hins vegar aftur
komið á dagskrá hjá borginni, sem
hefur óskað eftir samvinnu við Hið
íslenska náttúrufræðifélag þar um.
Náttúrusýningu í Perlunni er
ætlað að stuðla að auknum
skilningi á náttúru Íslands og
dýpka upplifun af kynnum við
landið. Sýningunni er ætlað að
fjalla um náttúru landsins, sérkenni
hennar og þróun, náttúrusögu,
nýtingu náttúruauðlinda og
náttúru vernd.
Perluvinir ehf. er almennt hluta-
félag sem er öllum opið. Félagið
hefur ráðið sér framkvæmdastjóra,
Helgu Viðarsdóttur, viðskipta-
og markaðsfræðing, og hefur
hún þegar tekið til starfa.
Helga hefur m.a. starfað sem
framkvæmdastjóri markaðssviðs
66°N og Norræna hússins.
Þeim sem vilja gerast hluthafar
í félaginu er bent á að hafa
samband á netfanginu helga@
perluvinir.is
„Nú þegar Reykjavíkurborg býður fram Perluna í Öskjuhlíð í þessu skyni gefst tækifæri
sem beðið hefur verið eftir í 126 ár. Við getum ekki látið það fram hjá okkur fara, enda eru
flestir sammála um að þar sé einstök staðsetning og aðstaða fyrir slíkt sýningarhald,“
segir Finnbogi Jónsson, verkfræðingur, formaður Perluvina ehf. Aðal- og varastjórn
félagsins frá vinstri: Sveinbjörn Björnsson, varamaður, Hjörleifur Stefánsson, Siv
Friðleifsdóttir og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, meðstjórnendur, Finnbogi og Álfheiður
Ingadóttir, varamaður. Ljósm. Hjörleifur Guttormsson.
Árni Hjartarson, formaður HÍN rakti sögu félagsins og baráttuna fyrir náttúruminjasafni
í höfuðborginni. Fundarstjóri, Helgi Jóhannesson til vinstri.
Stofnfélagar í Safnahúsinu 27. október s.l. voru á sjöunda tug talsins.
NFr_3-4 2015_final.indd 156 30.11.2015 16:34