Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 66
Náttúrufræðingurinn
158
Anthelia-Skorpen. Paa gruset, leret
eller stenet Bund findar man meget
hyppig í Fjeldene, i en Højde fra
300–790 M., tiltagende med Højden,
en graafarvet, pletvis udbredt
Skorpe. Den er udelukkende dannet
af Anthelia nivalis. Indblandet i
den traf jeg undertiden Grimmia
[Rhacomitrium] hypnoides, G.[R.]
ericoides og Salix herbacea. Dette
Anthelietum grænser ofte til Salix
Aereoffrt-Lavningerne.2
August Hesselbo lýsir mosagróðri
í „Anthelia flats“ á þessa leið í Botany
of Iceland 1918:
In damp parts of the rocky flat,
especially where the snow-
water from the melting snow-
flats spreads out over the ground,
extensive flats of greyish-black
or bluish-black colour are very
commonly met with, and these
are principially formed of Anthe-
lia Juratzkana. Interspersed in this
Anthelietum occur several other
Bryophyta, of which the most
frequent are Alicularia scalaris, A.
geoscypha and Lophozia alpestris,
with scattered plants of Polytrichum
sexangulare, Oligorichum hercynicum
and Pohlia gacilis protrude here and
there. Pleuroclada albescens is also
commonly met with.3
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum fór víða um miðhálendi
Íslands og kannaði gróður. Birtust
niðurstöður hans fyrst í ritgerð um
gróður á miðhálendinu í Botany of
Iceland 1945.4 Þar getur hann um
þetta gróðurlendi í norðurhlíðum
fjalla á Landmannaafrétti, „an
association rich in Anthelia, probably
a kind of snow-patch association, in
which, however, essentially the same
phanerogams as in the Grimmia-
heath [gamburmosaþembu] are
found.“
Í bókinni Gróður á Íslandi 1964
kallar Steindór þetta gróðurhverfi
snjómosadældir, og flokkar undir
gróðurlendið snjódældir, og lýsir
því svo:
Þegar gróður grasvíðidældarinnar
tekur að gerast ósamfelldur, er það
jafnan svo, að milli víðiblettanna
er flag, sem virðist allsnakið, en sé
betur að gætt, er yfirborðið þakið
hálfskorpukenndum hálfmosum,
sem oft eru hélugráir á litinn, og
ég hefi kallað snjómosa (Anthelia).
Þegar þessir snjómosablettir þekja
meiri hluta dældarinnar, er komið
í snjómosadældina. Mörkin milli
hennar og grasvíðidældarinnar
eru engan veginn skörp, því
að þær fræplöntur, sem vaxa í
snjómosadældinni, eru allar
hinar sömu og í grasvíðidældinni,
en einungis miklu strjálli, en
vitanlega vaxa ekki allar tegundir
grasvíðidældarinnar þar. Helstar
eru grasvíðir, grámulla, fjalladúnurt,
fjallapuntur og fjalladepla.
Venjulegast er snjómosadældin
einungis hátt til fjalla. Þó getur hún
einnig fundist neðar í hlíðum, þar
sem skaflar liggja óvenju lengi fram
eftir sumri, því að hún er hvarvetna
vitnisburður þess að snjór liggur
lengi sumars, og sprettutími
plantnanna er því mjög stuttur.5
Í ritgerð sinni Um hálendisgróður
Íslands í tímaritinu Flóru 1966,
kallar Steindór þetta gróðurfélag
(sem hann nefndi gróðurhverfi)
mosamold, og flokkar undir
„mosaheiði (Rhacomitrium heath)“.
Mosamoldin er þar sem jarðvegur
er rakur, og snjór liggur alllengi,
án þess þó að um svo langvarandi
snjólag sé að ræða, að hreinn
snjódældagróður komi fram. Oft
er mosamoldin forsælumegin
í fjöllum og hæðum, í líkri hæð
og brekkugróður eða mosaheiði er
sólarmegin. Hefi ég áður lýst því
lauslega. (Steindórsson 1945, p. 450
[sbr. tilvitnun að ofan]). Yfir að líta
er mosamoldin líkust ósléttu eða
hrjónóttu moldarlagi, því að allt
yfirborðið er með smáhrukkulaga
þúfum, fárra sm háum. Moldin
er þó ekki laus eða ber, heldur
bundin saman af mosum. Mest ber
þar á hálfmosum, einkum snjómosa
(Anthelia), en sennilega eru þar
fleiri tegundir, og ýmsir brúnmosar
eru þar, og stundum smáþófar af
gamburmosa (Rhacomitrium), en
aldrei svo að hann setji nokkurn
svip á landið eða nái verulegum
fleti... 6
Í athugasemd aftan við þennan
kafla, sem skrifaður var rúmum
áratug áður en greinin birtist, segist
Steindór nú hallast að því „að
mosamoldin nálgist snjódældir, og
eigi ef til vill best heima í því
gróðurlendi.“ Í ritgerð okkar Harðar
2. mynd. Mosaskorpa á grýttu landi á Gagnheiði, um 700 m hæð yfir sjó. Dæmigerð hrjón og
blágrár litur einkenna skorpuna, en í grænu reitunum eru ýmsir blaðmosar. Ljósm. höf., 1998.
NFr_3-4 2015_final.indd 158 30.11.2015 16:35