Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 Skipuleggjum einnig námsferðir til Englands fyrir hópa og einstaklinga Enskunámskeið í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra komna Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum, langflest konur á aldrinum 35 ára og eldri. • 10 getustig með áherslu á tal • Öllu lesefni fylgja hljóðdiskar • Styrkt af starfsmenntasjóðum • Nýr byrjendahópur að fara af stað Skráning stendur yfir í síma 891 7576 og erlaara@enskafyriralla.is English for All - Let’s speak English Eskja á Eskifirði hefur fest kaup á einu stærsta fiskiskipi norska flot- ans, uppsjávarveiðiskipinu Libas frá Bergen. Skipið verður notað til að afla hráefnis fyrir nýtt upp- sjávarfrystihús sem Eskja er að koma upp. „Ég er mjög ánægður með það. Þetta er nútíminn, landfrysting en ekki sjófrysting,“ segir Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri og forstjóri Eskju. Frystiskip félagsins, Aðal- steinn Jónsson SU, er í söluferli. Libas er smíðað 2004, um 94 langt skip og nærri 18 metra breitt. Það getur borið 2.300 til 2.400 lestir og er vel búið til þess hlutverks sem því er ætlað, meðal annars með góðan kælibúnað. Skipið verður afhent 1. nóvember og verður fyrsta verkefnið að veiða síld fyrir nýju verksmiðjuna sem taka á í notkun um miðjan þann mánuð. Daði Kristjánsson, sonur Þor- steins, verður skipstjóri. helgi@mbl.is Eskja kaupir stórt uppsjávarveiðiskip  Aflar hráefnis fyrir nýja frystihúsið Libas Skipið hefur verið leigt til olíuiðnaðarins og hafrannsókna. FRÉTTASKÝRING Skúli Halldórsson sh@mbl.is Mörg sveitarfélög á landsbyggðinni hafa í áraraðir verið krafin um greiðslu löggæslukostnaðar vegna bæjarhátíða, jafnt lítilla sem stórra. Á sama tíma hefur Reykjanesbær ekkert þurft að greiða vegna Ljósa- nætur, og Reykjavíkurborg ekki heldur vegna Menningarnætur, fjöl- mennustu hátíðar landsins. Fjölmargir viðmælendur Morgun- blaðsins, jafnt sveitarstjórar sem og formenn ýmissa hátíðarnefnda, greina frá megnri óánægju sinni vegna þessa. Horfa þeir nú til ágreinings Fjallabyggðar og lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um löggæslu- kostnað vegna Síldarævintýris á Siglufirði, sem fram fór síðustu verslunarmannahelgi. Úrskurðar beðið víða um land Lögreglan hafði þá sett það skil- yrði fyrir jákvæðri umsögn til sýslu- manns, um útgáfu svokallaðs tæki- færisleyfis, að löggæslukostnaður yrði greiddur. Svo fór að sveitar- félagið samþykkti að hlíta úrskurði atvinnuvegaráðuneytisins, og er hans nú beðið víða um land. Hann þætti enda að líkindum for- dæmisgefandi, segir Guðjón Braga- son, sviðsstjóri lögfræði- og vel- ferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Það myndi maður ætla, og miðað við þau lögskýringargögn sem til staðar eru sé ég ekki hvernig komist verður að annarri niðurstöðu en þeirri að sveitarfélögin eigi ekki að þurfa að borga þetta.“ Guðjón vísar meðal annars til álits samgöngunefndar Alþingis um frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Áréttaði nefndin að ákvæði um tækifærisleyfi gilti einungis um skemmtanir og atburði sem færu fram utan veitinga- og gististaða í at- vinnuskyni. Segir svo í álitinu: „Undir ákvæðið falla því ekki at- burðir og skemmtanir á vegum sveit- arfélaga, t.d. bæjarhátíðir og æsku- lýðs- og íþróttahátíðir sem ekki eru haldnar í atvinnuskyni, en í slíkum tilvikum er aðgangur ekki seldur að skemmtun eða atburði.“ „Miðað við vilja löggjafans, sem framkvæmdavaldið hlýtur að fara eftir, virðist mótuð sú stefna að þarna eigi ekki að taka gjald fyrir,“ segir Guðjón. Akranes náði samkomulagi Vakin er athygli á því að á með- fylgjandi korti eru aðeins tekin dæmi um innheimtu löggæslukostn- aðar síðustu ár. Akraneskaupstaður var til dæmis jafnan krafinn um milljón króna vegna Írskra daga þar til lögregluembættin voru sameinuð. „Við náðum samkomulagi við nýja lögreglustjórann um að við myndum ekki greiða þennan kostnað,“ sagði Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness, í Morgunblaðinu í júlí. Þá voru aðstandendur Mýrarbolt- ans iðulega krafðir um allt að 600 þúsund krónur, þar til þeir útvistuðu dansleikjunum til þeirra sem hafa staðbundin skemmtanaleyfi á Ísa- firði. „Við stóðum ekki fyrir neinum skemmtunum í ár, svo við sluppum vel,“ segir Jóhann Bæring Gunnars- son, einn stofnenda Mýrarboltans. ÍBV krafið um 4,5 milljónir Misjafnt er eftir því hvar drepið er niður fæti hvort verðið hækkar, lækkar eða stendur í stað á milli ára. Viðmælendum þykir mörgum lítil sem engin rök færð fyrir verðhækk- unum þegar svo ber undir. Íþróttabandalag Vestmannaeyja, sem stendur fyrir Þjóðhátíð meðal annars með styrkjum frá Vest- mannaeyjabæ, var krafið um greiðslu 4,5 milljóna króna fyrir lög- gæslukostnað í ár. Krafan hljóðaði upp á fjórar milljónir á síðasta ári. Þá var Seyðisfjarðarkaupstaður krafinn um 140 þúsund krónur á síð- asta ári vegna hátíðarinnar LungA, en sýnu minna í ár, kr. 124.000. Á Höfn í Hornafirði hefur lögregl- an krafist 600 þúsund króna, en síð- ustu skipti hefur upphæðin verið á bilinu 300 til 350 þúsund krónur. Krafðir um sömu upphæðina Við nánari athugun kemur einnig í ljós mögulegt misræmi innan sama lögregluumdæmis, þrátt fyrir að reglugerð kveði á um að gæta skuli „samræmis við ákvörðun löggæslu- kostnaðar innan lögregluumdæmis þannig að sambærileg mál hljóti sambærilega meðferð“. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mættu um 4-5.000 manns á Mærudaga en um 33.000 á Fiskidag- inn mikla. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra krafði þó að- standendur beggja hátíða um sömu upphæð, eða 600 þúsund krónur. Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu- þjónn hjá embættinu, segir að ákveðið hafi verið að innheimta jafnt fyrir hátíðirnar, þrátt fyrir stærðar- muninn. „Kannski verður þetta gert öðruvísi næsta sumar en í vor var ákveðið að gera þetta svona.“ Megn óánægja með innheimtu  Innheimta löggæslukostnað vegna Síldarævintýris, ekki vegna Menningarnætur  Misræmi jafnvel innan sama umdæmis  Lögfræðingur SÍS segir sveitarfélögin ekki eiga að þurfa að greiða kostnaðinn Dæmi um innheimtu kostnaðar síðustu ár 4.5m. 600 þ. 140 þ. 600 þ.600 þ. 600 þ. 600 þ. 1 m. Ve st ma nn ae yja r Reykjanesbær 0kr. Reykjavík 0kr. Hú sa vík Se yð isf jör ðu rD alv ík Ísa fjö rð ur Ak ur ey ri Hö fn Ak ra ne s Húsfyllir var í gær á samkomu Al- menna bókafélagsins og ræðis- manna Eystrasaltsríkjanna, í tilefni þess að Almenna bókafélagið endur- útgaf tvær bækur um Eystrasalts- löndin í ljósi þess að rétt 25 ár voru í gær liðin frá því að Ísland var fyrst ríkja til að endurnýja fyrri viður- kenningu sína á sjálfstæði Eystra- saltslandanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháens. Davíð Oddsson flutti ávarp á sam- komunni en hann var forsætisráð- herra þegar Eystrasaltsríkin voru viðurkennd á ný. Í ávarpi sínu sagði Davíð að helsta hlutverk Íslands og annarra Vesturríkja hafi verið að halda uppi neista frelsisins og að sýna ríkjunum, sem lentu undir stjórn Sovétríkjanna, að þau ættu bandamenn fyrir vestan. Tunne Kelam, einn af leiðtogum sjálfstæðisbaráttu Eistlands, flutti einnig kröftuga ræðu. Sagði hann að tími væri til kominn að takast á við drungalega sögu Sovétríkjanna. Morgunblaðið/Golli Í ræðustól Tunne Kelam sagði að tími væri til kominn að takast á við drungalega sögu Sovétríkjanna. Halda uppi neista frelsisins Húsfylli Þéttsetið var á hverju borði á samkomunni í gær. Samkoma Davíð Oddsson flutti ávarp og tók þátt í umræðum.  25 ár frá endur- nýjun viðurkenn- ingar Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.