Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 55
er starfsmanna-
þjónusta sem sér um að
finna starfsfólk
í fjölbreytt störf um
allt land, til lengri
eða skemmri tíma.
sér fjölbreyttum
atvinnugreinum fyrir
sérhæfðu og ófaglærðu
vinnuafli frá ríkjum
EES með skömmum
fyrirvara.
er íslenskt fyrirtæki
sem styður við upp-
byggingu íslensks
atvinnulífs og starfar
samkvæmt lögum og
reglugerðum.
sér um umsýslu
launa, launatengdra
gjalda og skatta
samkvæmt íslenskum
lögum og útvegar
starfsfólki húsnæði.
leggur kapp á
að starfa í sátt við
vinnumarkaðinn,
starfsgreinafélög,
verkalýðsfélög og
opinbera aðila.
Elja starfsmannaþjónusta Hátúni 2b 105 Reykjavík 415 0140 www.elja.is elja@elja.is
finnur rétta starfsmanninn fyrir þig.
UMRÆÐAN 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Ég tilkynnti fyrir
stuttu að ég hygðist
bjóða mig fram í 4. sæti
í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík.
Þrátt fyrir að ég hafi
verið virk í starfi
flokksins allt frá árinu
2008 urðu einhverjir til
að spyrja mig af hverju
ég vildi sækjast eftir
þingsæti fyrir þann
flokk. Raunar hef ég
verið spurð um slíkt allt frá því að ég
hóf að taka þátt í starfi Sjálfstæðis-
flokksins, strax eftir efnahagshrunið.
Eflaust stafar það meðal annars af
því ég hef allt frá því að ég var ung
sinnt málefnum á borð við jafningja-
fræðslu, flóttamannaaðstoð og for-
varnarstarfi gegn kynferðisofbeldi,
sem oft er frekar tengt við félags-
hyggjuflokka en Sjálfstæðisflokkinn.
Grunngildið einstaklingsfrelsi
Ég hef alltaf svarað því til að allt
gengur þetta starf út á að vernda
frelsi einstaklingsins frá ofríki og of-
beldi, sjálfstæði hans og reisn. Það er
einmitt í Sjálfstæðisflokknum sem
ég fann samhljóm við þá lífssýn
mína. Enginn flokkur stendur með
sama hætti vörð um það grunngildi
sem einstaklingsfrelsið er.
Sjálfstæðismenn tala oft um frelsi
til orðs og æðis. Þessi orð eru ekki
úrelt. Í samfélagi okkar í dag erum
við sífellt að kljást um hvað felst í at-
hafna- og tjáningarfrelsi. Mér finnst
mikilvægt að fólki sé ekki sagt fyrir
verkum um hvað það má gera, segja
og hugsa, svo lengi sem það meiðir
engan annan. Í starfi mínu sem borg-
arfulltrúi hef ég oftar
en ekki tekið fyrir mál
sem snerta grunngildin
okkar, eins og tjáning-
arfrelsi, eignar- og
sjálfsákvörðunarrétt.
Þessi gildi missa marks
ef við stöndum ekki
vörð um þau. Sú varð-
staða verður að eiga sér
stað alla daga og við
verðum að máta hvert
einasta mál sem kemur
á okkar borð við þessi
gildi og passa upp á
þau.
Valfrelsi og virðing
í velferðarþjónustu
Helstu viðfangsefni stjórnmálanna
taka breytingum eftir tíðaranda
hverju sinni. Ég vil beita mér fyrir
því að við varðveitum þann árangur
sem hefur náðst í fjármálum ríkisins,
um leið og ég vil forgangsraða þann-
ig að þau sem þurfa aðstoð okkar
hinna séu fremst í forgangsröðinni
þegar ríkissjóður fær aukið svigrúm.
Ég vil bjóða upp á meira valfrelsi og
virðingu fyrir mismunandi þörfum
þeirra sem þurfa á velferðarþjónustu
að halda. Ég vil að eldra fólk njóti
ávaxta erfiðis síns og lífeyrisgreiðsl-
ur skerði ekki ellilífeyri. Ég vil að
menntakerfið okkar miðist við að búa
yngri kynslóðir undir breytta fram-
tíð með nýjum áskorunum, þar sem
verðmætasköpun og framleiðni næg-
ir til að standa undir velferðarþjón-
ustu við þjóð sem eldist.
Ég vil ekki kollvarpa stjórnar-
skránni okkar heldur taka yfirveg-
aðar ákvarðanir um að breyta henni í
sem víðtækastri sátt. Sem formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Sjálfstæðisflokksins hef ég beitt mér
fyrir því að gerðar verði afmarkaðar
og tímabærar breytingar á stjórn-
arskránni. Nýja stjórnarskrá þurf-
um við hins vegar ekki.
Ég vil nýta reynslu mína úr borg-
armálum, meðal annars til að berjast
fyrir hagsmunum Reykvíkinga á
þingi. Ég tel mig hafa ýmislegt fram
að færa í umræðunni um hvernig við
getum sýnt fyrirhyggju við upp-
byggingu ferðaþjónustu, hlúð að því
góða í borgarsamfélaginu okkar og
verndað náttúru landsins okkar um
leið og við njótum ávaxtanna af gíf-
urlegri fjölgun ferðamanna. Ég vil
nýta reynslu mína úr borgar- og
skipulagsmálum til að stuðla að því
að hægt sé að tryggja gott og hag-
kvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og
alla aðra.
Ég býð fram krafta mína í þágu
þess að sjálfstæðisfólk í Reykjavík
geti kosið öflugan og breiðan lista
fólks sem getur staðið vörð um þann
efnahagslega árangur sem hefur
náðst á núverandi kjörtímabili og
staðið til framtíðar vörð um þau
grunngildi sem við vitum að eru
nauðsynleg til að skapa hér gott og
réttlátt samfélag þar sem allir eiga
tækifæri.
Varðstaða um grunngildi
Eftir Hildi
Sverrisdóttur » Í starfi mínu sem
borgarfulltrúi hef ég
oftar en ekki tekið fyrir
mál sem snerta grunn-
gildi eins og tjáning-
arfrelsi, eignar- og
sjálfsákvörðunarrétt.
Hildur
Sverrisdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins og býður sig fram í 4. sæti
í prófkjöri flokksins í Reykjavík.
Hálfsársuppgjör
Hafnarfjarðarbæjar
sýnir mikinn viðsnúning
í rekstri sveitarfélags-
ins. Niðurstaða fyrri
hluta ársins var jákvæð
um 483 milljónir króna
eða hátt í milljarði betri
en á sama tíma í fyrra,
en þá var hallinn tæpar
400 milljónir króna. Þá
hefur veltufé frá rekstri
aukist um 1.350 milljónir króna á milli
ára. Þær umbætur á heildarrekstri
sveitarfélagsins sem ráðist var í eru að
skila tilætluðum árangri.
Þegar núverandi meirihluti tók við
stjórnartaumunum, fyrir um tveimur
árum, var farið í ítarlega greiningu og
úttekt á öllum rekstri bæjarfélagsins
sem hafði, eins og kunnugt er, glímt við
erfiða fjárhagsstöðu um langt árabil. Í
kjölfarið var gripið til aðgerða sem
miðuðu að því að endurskipuleggja
reksturinn og forgangsröðun. Jafn-
framt var verkefnum breytt með það
að markmiði að efla þjónustuna og
auka samkeppnishæfni sveitarfé-
lagsins.
Ríkuleg uppskerara
viðsnúningur sem uppgjörið ber
með sér sýnir glögglega hve nauðsyn-
legar þær hagræðingaraðgerðir voru
og hve mikilvægt er að festa og ábyrgð
einkenni rekstur sveitarfélagsins. Nú
verður hægt að halda áfram að greiða
niður óhagstæð lán sem hafa sligað
bæjarsjóð. Samhliða því á að vera svig-
rúm til að lækka álögur á
bæjarbúa en um leið efla
grunnþjónustuna. Þá
mun einnig vera hægt að
auka viðhald á eignum
bæjarfélagsins og byggja
upp frekari innviði. Og
það allt fyrir eigið fé!
Engin ný lán í ár
Það sem af er ári hefur
bæjarsjóður ekki tekið
nein ný lán og einungis
framkvæmt fyrir eigið fé.
Dæmi um breytta stefnu og áherslur í
rekstri bæjarins er framkvæmd við
leikskóla sem nýverið var opnaður á
Völlum. Leikskólinn var eingöngu
byggður fyrir eigið fé sveitarfélagsins.
Ef svo fer fram sem horfir þá verður
það nú, árið 2016, í fyrsta sinn í a.m.k.
14 ár, eða frá árinu 2002, sem Hafnar-
fjarðarbær þarfnast engra nýrra lána.
Gert er ráð fyrir því að á miðju næsta
ári verði skuldaviðmið bæjarfélagsins
komið niður fyrir 150%. Sá árangur er
framar björtustu vonum þeirra sem
tóku við stjórnun bæjarsins fyrir um
tveimur árum en gefur tilefni til bjart-
sýni á framtíðina.
Tímamót í rekstri
Hafnarfjarðarbæjar
Eftir Rósu
Guðbjartsdóttur
Rósa Guðbjartsdóttir
»Nú verður hægt að
halda áfram að
greiða niður óhagstæð
lán sem hafa sligað bæj-
arsjóð.
Höfundur er formaður bæjarráðs
Hafnarfjarðar.