Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
bmvalla.is
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
163855
Nýttu þér ráðgjöf landslagsarkitekta okkar.
Þeir aðstoða þig við efnisval og hjálpa þér að
útfæra hugmyndir þínar um fallegan garð.
Frí ráðgjöf landslagsarkitekta
Bókaðu tíma
í síma 412 5050
Kláraðu
innkeyrsluna
fyrir haustið
Við aðstoðum þig að velja
rétta efnið í innkeyrsluna.
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Stórlaxaveislan heldur áfram í Laxá í
Aðaldal. Á fimmtudag settu veiði-
menn í, glímdu við og höfðu að lokum
hendur á tveimur lengstu löxum sem
veiðst hafa hér á landi í sumar. Við
svokallaða Breiðeyri á svæðum Lax-
árfélagsins landaði rússneski veiði-
maðurinn Stanislav Danelyan með að-
stoð feðganna Jóns Helga
Vigfússonar og Vigfúsar Jónssonar á
Laxamýri 112 cm löngum hæng. Lax-
inn tók fluguna Hairy Mary Gray
númer 6 og tók viðureignin skilj-
anlega drjúgan tíma.
Samkvæmt viðmiðunarkvarða
Veiðimálastofnunar telst lax af þess-
ari lengd vera nálægt 28 pundum.
Undir kvöld á fimmtudag landaði
Örn Kjartansson síðan 110 cm hæng á
Nesveiðum, í stórlaxastaðnum Höfða-
hyl. Lax Arnar tók fluguna Radium,
númer 12, og reyndist hann afar
þykkur eða 56 cm að ummáli.
Þessir tveir laxar slógu því við þeim
tveimur 108 cm sem veiðst höfðu í
sumar; annan fékk gítarhetjan Eric
Clapton í Vatnsdalsá en hinn landi
hans á Nessvæðinu.
Ofboðslegar skepnur
„Það er afskaplega gaman að þessir
fiskar séu að veiðast hjá okkur, þetta
eru ofboðslegar skepnur,“ segir Jón
Helgi Björnsson á Laxamýri, formað-
ur veiðifélags Laxár í Aðaldal og enn
fremur Landssambands veiðifélaga.
„Það er óhemjugaman að því hvað
hefur veiðst hér mikið af stórum og
fallegum fiskum. Ég man ekki eftir
stórlaxaveiði eins og í sumar. Vonin
um þessa stóru hefur haldið mönnum
við efnið,“ segir Jón Helgi en lítið varð
úr smálaxagöngum í Aðaldal, rétt eins
og í flestum öðrum ám.
„Hverjum fiski fylgir mynd svo
menn velkjast ekkert í vafa um stærð-
ina. Svo er gaman að menn sleppi
fiskinum aftur út í ána, að það sé orðið
viðurkennt og almennt. Það tryggir
viðgang stofnsins.“
Hvað telur hann að stórt hlutfall
laxanna sem sleppt er þrauki af vet-
urinn og gangi að nýju?
„Það er kannski ekki hátt hlutfall,
þegar þeir eru orðnir svona stórir, en
einstaka gera það og þar á meðal
mögulega þessir laxar sem við erum
að horfa á núna, þeir hafa náð því að
koma aftur og eru ómetanlegir.“
Jón Helgi segir laxveiðisumarið
einkennast af þessum góðu stórlaxa-
göngum, í ám um allt land, og frekar
litlum smálaxagöngum sem stafa af
því að vorið í fyrra var ansi kalt. „Hins
vegar má búast við því að næsta sum-
ar verði fullt af smálaxi en kannski
minna af stórum. En mér sýnist að
flest veiðisvæði verði nærri meðalári.
Veiðiaðstæður hafa einkum verið erf-
iðar á Vesturlandi og veiðin þar fyrir
vikið minni en efni stóðu til. En það
fylgir veiðiskap að aðstæður geta ver-
ið erfiðar.“
Stórir í öllum hyljum
Einar Sigfússon, annar eigenda
Haffjarðarár á Snæfellsnesi og sölu-
stjóri Norðurár, tekur undir þau orð.
Til að mynda veiddust rétt rúmlega
40 laxar í vikunni á 15 stangir í Norð-
urá. „Það er talsvert af laxi í ánni en
erfitt við hann að eiga,“ segir hann.
„Framan af sumri var veiðin hins veg-
ar glimrandi fín og við fengum tals-
vert af smálaxi seinni hlutann í júní.
En svo skiluðu smálaxagöngurnar sér
ekki í júlí. Þó er miklu meira af fiski í
ánum en sumarið 2014, það er miklu
meira af stórlaxi nú en þá. Og það eru
stórir fiskar í öllum hyljum í Norðurá.
Það er mikil breyting síðan fyrir
nokkrum árum þegar það voru tíðindi
að fá fimmtán punda fisk þar. Nú hafa
veiðst hátt í fjörutíu laxar yfir 90 cm
og upp í 97 cm langir. Að vita af þeim
stóru gerir veiðina skemmtilegri.“
Enn stærri
laxar veiðast
Lengstur Stanislav Danelyan með 112 cm hænginn sem hann landaði við
Breiðeyri á svæðum Laxárfélagsins í Aðaldal á Hairy Mary Gray-flugu.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
Ytri-Rangá & Hólsá (20)
Miðfjarðará (10)
Eystri-Rangá (18)
Blanda (14)
Þverá - Kjarrá (14)
Norðurá (15)
Haffjarðará (6)
Langá (12)
Laxá í Aðaldal (18)
Laxá í Dölum (6)
Haukadalsá (5)
Víðidalsá(8)
Selá í Vopnafirið (6)
Hítará (6)
Elliðaárnar (6)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í
fyrra
Á sama
tíma
2014
Staðan 17. ágúst 2016
4909
4445
2151
4303
1942
2624
1476
1909
1170
890
890
1170
918
1133
756
1718
1278
2039
1892
1056
842
702
443
480
123
123
480
812
344
415
5378
3287
2696
2244
1683
1171
1114
1033
904
902
851
810
731
636
643
Þykkur Örn Kjartansson veiddi 110
cm hæng í Höfðahyl á Nesveiðum.
Tveir stærstu sama daginn í Aðaldal
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Heimild ríkisins í fjárlögum til sölu á
landi í Skerjafirði við Reykjavíkur-
flugvöll var skýr um til hvaða land-
svæðis hún næði, að því er fram
kemur í minnisblaði sem Bjarni
Benediktsson, fjármála- og efna-
hagsráðherra, lagði fram á ríkis-
stjórnarfundi í gær.
Ennfremur segir þar að skilyrðið
um heimild í fjárlögum hafi verið
uppfyllt enda hefði skylda ríkisins til
að selja landið myndast árið 2013
þegar samkomulag um hana var
undirritað milli Reykjavíkurborgar
og þáverandi fjármála- og efnahags-
ráðherra. Þurfti því ekki að afla
nýrrar heimildar í fjárlögum vegna
sölu landsins í síðustu viku.
Fyrr í vikunni bentu forsvars-
menn samtakanna Hjartans í Vatns-
mýri á að ekki hefði verið heimild til
sölunnar í fjárlögum árið 2016 og að
fjárlagaheimild árið 2013 næði að-
eins til „lands utan flugvallargirð-
ingar,“ sem væri aðeins lítill hluti
landsins sem til stæði að selja.
Í minnisblaðinu segir að sam-
kvæmt nýlegum hæstaréttardómi
um lokun neyðarbrautarinnar svo-
nefndu hafi hin eiginlega skuldbind-
ing stofnast árið 2013. Skilyrði til að
standa við skuldbindinguna hefðu
svo raknað við þegar neyðarbraut-
inni var lokað í sumar.
Einnig segir að fram komi í at-
hugasemdum við söluheimildina í
fjárlögum að hún taki mið af fyrir-
hugaðri færslu girðingarinnar, eftir
lokun neyðarbrautarinnar.
Morgunblaðið/Þórður
Sala Landið sem um ræðir er við suðvesturenda neyðarbrautarinnar.
Höfðu heimild til
að selja landið
Salan heimil
» Sala landsins var heimil
hvað varðar heimild í fjárlögum
og útfærslu hennar.
» Skylda til sölu landsins
stofnaðist til handa ríkinu árið
2013 og raknaði við við lokun
neyðarbrautarinnar.
» Orðalagið „land utan flug-
vallargirðingar“ miðaði við fyr-
irhugaða tilfærslu flugvallar-
girðingarinnar.