Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS
Verð frá109.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í herbergi á Senator
Gran Via 70 með morgunmat.
Verð án Vildarpunkta: 119.900 kr.
12.–16. október
4 nætur
Madríd
Borg menningar og lista
Flogið með Icelandair
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Meðal þess sem felst í umfangsmikl-
um framkvæmdum sem nú standa yf-
ir á Keflavíkurflugvelli er að ljósa-
kerfi frá tímum Bandaríkjahers
verður skipt út og leggja á sem sam-
svarar 100 kílómetrum af malbiki.
Áætlað er að framkvæmdirnar muni
kosta um 20 milljarða króna, gert
verður hlé á þeim í október og þráð-
urinn síðan tekinn upp næsta vor. Það
eru Íslenskir aðalverktakar sem sjá
um framkvæmdirnar og við þær
starfa á milli 60 og 70 manns.
Á flugvellinum eru tvær flugbraut-
ir, austur-vesturbrautin og norður-
suðurbrautin. Sú braut, sem nú er
verið að endurnýja, er sú síðarnefnda
og á meðan framkvæmdir standa yfir
er flugumferð beint að hluta til yfir á
hina brautina. „Það var ákveðið að
endurnýja hana í sumar því þá er
minni hætta á hliðarvindi á AV-braut-
inni, en þegar hann er getur verið erf-
itt að lenda á henni,“ segir Guðni Sig-
urðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.
Hann segir að þrátt fyrir fram-
kvæmdir sé alltaf einhver hluti NS-
brautarinnar opinn. „Núna er t.d.
rúmur helmingur, 1.600 metrar af
henni, opinn, en hún er 3 kílómetrar á
lengd og 60 metrar á breidd,“ segir
Guðni.
Ljósakerfið á flugvellinum hefur
fram að þessu verið byggt á banda-
rísku rafkerfi, en það nýja er með
LED-ljósum eða díóðum. Að sögn
Guðna fylgir því talsverður orku-
sparnaður. Í nýja kerfinu verða lík-
lega um 6.000 ljós sem tengd verða
saman með 150 kílómetra löngum
kapli.
700.000 fermetra malbik
Guðni segir að samtals verði lögð
um 100.000 tonn af sérstyrktu mal-
biki á flugvöllinn á meira en 700 þús-
und fermetra. Í malbikið hafa verið
flutt inn 50.000 tonn af steinefni með
fjórum skipum. „Ef það væri lagt á
sjö metra breiðan veg væri hann um
100 kílómetra langur, eða frá flug-
vellinum til Selfoss,“ segir Guðni til
marks um umfang framkvæmdanna.
Skipta út vallarljósum
frá Bandaríkjaher
Stórframkvæmdum á Keflavíkurflugvelli miðar vel
Ljósmynd/Rúnar Jón Friðgeirsson
Flugbraut Norður-suðurbrautin sem nú er verið að malbika.
Flugbrautarframkvæmd
» Settur verður upp nýr flug-
leiðsögubúnaður.
» Tilboð Íslenskra aðal-
verktaka í verkið hljóðaði upp á
5,6 milljarða.
» Framkvæmdalok eru áætluð
í október 2017.
Alls bárust um 1.900 umsóknir um
sumarstörf flugfreyja og flugþjóna
hjá Icelandair fyrir sumarið 2017.
Hafa þær aldrei verið fleiri, en í
fyrra bárust um 1.500 umsóknir.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Icelandair, voru
langflestar umsóknir frá konum en
2-300 karlar sóttu um að þessu sinni.
Guðjón segir að undanfarin ár hafi
verið ráðnir um hundrað, eða á ann-
að hundrað, nýliðar til starfa árlega.
Alls hafa rúmlega 1.200 flugfreyjur/
flugþjónar starfað hjá fyrirtækinu í
sumar.
Störfin voru auglýst í byrjun
ágúst en umsóknarfrestur var til 18.
ágúst. Nú tekur við langt og strangt
ráðningarferli og því voru störfin
auglýst jafnsnemma og raun ber
vitni.
Í auglýsingunni var gerð krafa um
stúdentspróf eða sambærilega
menntun, góða kunnáttu í íslensku
og ensku og hæfni í mannlegum
samskiptum. „Við leitum að að fjöl-
hæfu, glaðlyndu og skemmtilegu
fólki sem hefur náð 23 ára aldri á
næsta ári,“ sagði m.a. í auglýsing-
unni. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsælt 1.900 vilja sumarstörf flug-
liða og flugfreyja hjá Icelandair.
1.900 um-
sóknir um
sumarstörf
Störf flugfreyja og
flugþjóna eftirsótt
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umhverfisráðherra mun skoða það
hvort unnt verður að leggja þings-
ályktunartillögu um 3. áfanga vernd-
ar- og orkunýtingaráætlunar fram á
Alþingi fyrir kosningar. Sigrún
Magnúsdóttir segist meta það að lok-
inni skoðun á tillögum verkefnis-
stjórnarinnar hvaða möguleikar séu í
stöðunni.
Engar breytingar eru á röðun
virkjunarkosta og náttúrusvæða í
lokaskýrslu verkefnisstjórnar 3.
áfanga verndar- og orkunýtingar-
áætlunar, frá skýrsludrögum sem
verið hafa til kynningar hjá almenn-
ingi og hagsmunaaðilum í sumar.
Stjórnin skilaði tillögunum til ráð-
herra við sérstaka athöfn í gær.
Átta nýir virkjunarkostir
Lagt er til að átta nýir virkjunar-
kostir bætist við þá tíu kosti sem fyrir
voru í orkunýtingarflokki. Nýju kost-
irnir eru Skrokkölduvirkjun, Holta-
virkjun, Urriðafossvirkjun, Austur-
gilsvirkjun, Austurengjar, Hverahlíð
II, Þverárdalur og Blöndulundur.
Þeir fela í sér uppsett afl í vatnsafls-
virkjunum upp á alls 277 MW, 280
MW í jarðvarmavirkjunum og 100
MW í vindmyllugarði.
Í verndarflokk bætast fjögur land-
svæði með tíu virkjunarkostum, það
eru Héraðsvötn, Skjálfandafljót,
Skaftá og Kjalölduveita í Þjórsá. Fyr-
ir eru sextán virkjunarkostir á land-
svæðum í verndarflokki.
Hörð gagnrýni kom á tillögur verk-
efnisstjórnar frá því í vor í umsagn-
arferlinu, meðal annars frá Orku-
stofnun og Landsvirkjun.
Verkefnisstjórnin dregur gagnrýnina
saman í nýju skýrslunni og svarar.
Semur tillögu til Alþingis
Þessi verkefnisstjórn er sú fyrsta
sem vinnur samkvæmt heildstæðum
lögum um rammaáætlun. Sigrún tek-
ur fram að hún telji að gott starf hafi
verið unnið. Þá sé það einstakt í viða-
miklu verkefni að allar tímaáætlanir
sem hún hafi lagt upp með formanni
verkefnisstjórnar hafi staðist.
Ráðherra mun í samvinnu við iðn-
aðarráðherra flytja málið til Alþingis
með þingsályktunartillögu. Þeir geta
gert breytingar en þær þurfa þá að
fara í nýtt umsagnarferli. Alþingi
tekur endanlega ákvörðun.
Metur hvort tillaga verður
lögð fyrir Alþingi á haustþingi
Engar breytingar í lokatillögum verkefnisstjórnar 3. áfanga rammaáætlunar
Morgunblaðið/RAX
Aldeyjarfoss Lagt er til að vatnasvæði Skjálfandafljóts fari í verndarflokk rammaáætlunar. Hugmyndir hafa verið
um virkjun fljótsins í Bárðardal, ofan Aldeyjarfoss. Sú virkjun myndi aðallega hafa áhrif á Hrafnabjargafoss.
Tveir fulltrúar í verkefnastjórn 3.
áfanga rammaáætlunar skila sér-
áliti og leggja til að virkjunarkost-
urinn Hólmsárvirkjun við Atley
verði færður úr biðflokki í nýting-
arflokk. Fulltrúarnir eru Elín R.
Líndal frá Sambandi íslenska
sveitarfélaga og Helga Barðadóttir
sem tilnefnd er af iðnaðarráð-
herra.
Í sérálitinu segja fulltrúarnir að
gerðar hafi verið ítarlegar rann-
sóknir á virkjunarkostum í
Hólmsá. Kosturinn við Atley hafi
verið niðurstaðan. Ítarlegt samráð
hafi verið haft við heimamenn og
útfærslan hafi verið sett inn í að-
alskipulag Skaftárhrepps. Telja
þeir að umhverfisáhrif virkjunar-
innar og áhrifasvæði hennar yrðu
fremur lítil, í samanburði við aðra
virkjunarkosti sem fjallað er um.
Hólmsárvirkjun í nýtingu
TVEIR FULLTRÚAR SKILA SÉRÁLITI
Formannafundur Landssamtaka
sauðfjárbænda (LS), sem haldinn
var á Barðaströnd í gær, krefst
þess að stjórnir og stjórnendur af-
urðastöðva dragi boðaðar afurða-
verðlækkanir til bænda til baka,
áður en „óafturkræf áhrif koma
fram í íslenskri sauðfjárrækt og
sveitum landsins“. Jafnframt
skorar fundurinn á þá sláturleyf-
ishafa sem ekki hafa enn gefið út
verðskrár að virða „lögmætt og
hófstillt“ viðmiðunarverð LS.
Viðmiðunarverð LS gerði ráð
fyrir 12,5% hækkun afurðaverðs
til bænda frá síðasta ári. Norð-
lenska, Sláturfélag Vopnfirðinga
og SAH afurðir á Blönduósi hafa
aftur á móti tilkynnt 10-12%
lækkun á dilkaverði. Stórir slát-
urleyfishafar, svo sem kjötafurða-
stöð KS á Sauðárkróki, Sláturhús
KVH á Hvammstanga og SS á
Suðurlandi, hafa enn ekki auglýst
verðskrár sínar. Sláturtíð hefst
hjá Norðlenska 5. september en
um miðjan mánuðinn hjá mörgum
öðrum.
Lækkanir á afurðaverði verði dregnar til
baka og sláturhús virði viðmiðunarverð