Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta verður stærsta leikár
Tjarnarbíós til þessa, en frumsýnd
verða 14 ný sviðslistaverk auk þess
sem fjögur verk frá fyrra leikári eru
tekin aftur til sýningar,“ segir Frið-
rik Friðriksson, framkvæmdastjóri
Tjarnarbíós, um komandi leikár sem
hefst 2. september með frumsýningu
á nýju íslensku leikriti sem nefnist
Stripp í uppfærslu Dance For Me.
„Ólíkt Þjóðleikhúsinu og Borgar-
leikhúsinu erum við ekki framleið-
endur að neinum sýningum. Allt fé
sem við fáum fer í að reka húsið,
þannig að hóparnir sem hér sýna
koma með sitt eigið fjármagn. Þegar
við í valnefnd Tjarnarbíós veljum
hér inn sýningar erum við því ekki
að búa til heildstæða dagskrá með
tilteknu þema. Við horfum hins veg-
ar til margra þátta, en eitt það mikil-
vægasta er að fagmennskan sé höfð
að leiðarljósi. Við metum líka hvort
verk eigi erindi, hafi eitthvað nýtt
fram að færa og hvort það geti staðið
undir sér fjárhagslega,“ segir Frið-
rik og bendir á að nær allar þær sýn-
ingar sem í upphafi árs hlutu styrk
frá Leiklistarráði hafi fengið inni í
Tjarnarbíói í vetur. „Það þýðir að
sýningar okkar hafa farið í gegnum
tvær valnefndir og fengið gæða-
stimpil frá Leiklistarráði.“
Fjalla um áríðandi málefni
Athygli vekur að mikill meirihluti
sviðsverkanna á komandi starfsári
er ný íslensk verk. „Í grasrótinni er
mikil þörf fyrir að segja sögur sem
sprottnar eru upp úr íslenskum
veruleika og samfélagi,“ segir Frið-
rik og tekur fram að hann hafi séð
mikla fjölgun á íslenskum verkum
með tilkomu sviðshöfundabrautar
Listaháskóla Íslands. „Með því námi
hefur fjölgað fólki sem hefur þörf
fyrir að segja eigin sögur og fengið
verkfærin í hendur til að útfæra
þær. Við erum afar stolt af því að
hlutfall nýrra íslenskra verka er um
90% hjá okkur,“ segir Friðrik og
bendir á að áhorfendur séu augljós-
lega áhugasamir um ný íslensk verk
því gestafjöldinn í Tjarnarbíói hafi á
sl. árum aukist um 15-20% á ári.
„Allar sýningar okkar eiga það
sameiginlegt að fjalla um áríðandi
málefni. Allir listamennirnir í hóp-
unum sem hér sýna standa 150% á
bak við sögurnar sem þeir vilja segja
og er annt um að vel sé gert og boð-
skapurinn komist til skila. Okkar
helsti styrkur felst í því að hér segir
fólk sögur sem því liggja á hjarta.“
Loftfimleikar og samtímadans
Sem fyrr segir hefst leikárið með
uppfærslu sviðslistahópsins Dance
For Me á leikritinu Stripp. „Þetta er
algjörlega frábært verk sem byggt
er á reynslu Olgu Sonju Thor-
arensen sem vann við að strippa í
Berlín þar sem hún bjó,“ segir Frið-
rik, en með Olgu vinna Pétur Ár-
mannsson og Brogan Davison.
„Verkið varpar fram alls kyns sið-
ferðislegum spurningum um nekt-
ardans og strippheiminn án þess að
móralísera.“
Sóley Rós ræstitæknir nefnist
heimildaverk eftir Sólveigu Guð-
mundsdóttur leikkonu og Maríu
Reyndal leikstjóra sem frumsýnt
verður 10. september. „Leikritið
byggja þær á sönnum atburðum og
það er samsett úr fjölda viðtala við
þrautseiga konu. Í forgrunni er fóst-
urmissir sem konan varð fyrir á
miðri meðgöngu,“ segir Friðrik og
viðurkennir að hann hafi fengið mik-
ið ryk í augun þegar hann hlustaði á
fyrsta samlestur í vor sem leið.
„Þarna er fjallað um barnsmissi,
sambönd, ástina, væntingar og von-
brigði í lífinu.“
Nýtt verk sem blandar saman
loftfimleikum og samtímadansi verð-
ur frumsýnt 17. september. „Þar er
um að ræða Fjaðrafok úr smiðju
Tinnu Grétarsdóttur sem einnig
gerði Veru og vatnið sem hlaut
Grímuna 2016 sem besta barnasýn-
ing ársins. Fjaðrafok er ætlað börn-
um frá eins árs aldri, en fylgst er
með ungum frá því þeir klekjast út
úr eggjum sínum og þar til þeir ná
færni til að fljúga. Sýningin, sem
býður upp á óvenjulega og skemmti-
lega upplifun, er unnin í samstarfi
við írska sirkusflokkinn Fidget
Feet.“
Heimildaverkið Suss!! verður
frumsýnt 21. október. „Þetta er sýn-
ing úr smiðju leikhópsins RaTaTam
og í leikstjórn Charlotte Bøving,
sem leikstýrði sýningunni Lífið –
stórskemmtilegt drullumall sem
hlaut Grímuna 2015 sem besta
barnasýning ársins. Hópurinn tók
viðtöl við þolendur, aðstandendur og
gerandur heimilisofbeldis, en sögum
þeirra er blandað saman við tækni
og tól leikhússins. Þetta er krefj-
andi, erfitt og viðkvæmt viðfangs-
efni, en ánægjulegt að leikhúsið geti
gert þessu skil. Þau nálgast þetta
efni af mikilli virðingu og ást.“
Fórnarlömb barnauppeldis
Leikhópurinn Kriðpleir fjallar um
íslenska ævisagnahefð í leiksýning-
unni Ævisaga einhvers sem frum-
sýnd verður 12. nóvember. „Hóp-
urinn freistar þess að segja sögur
venjulegra Íslendinga, fólksins sem
ekki hefur tekist að skrifa bækur
um. Langflestir sinna bara hvunn-
dagslegu stússi, versla í Bónus,
vaska upp, hlusta á útvarpið, fara á
fund með skólasálfræðingnum, fá
lánaða kerru o.s.frv. Einhver verður
að segja þá sögu.“
Who’s Your Daddy? nefnist uppi-
standssýning úr smiðju Pörupilta
sem frumsýnt verður 14. október.
„Síðast voru þeir með kynfræðslu
fyrir unglinga og nú má sjá hvaða af-
leiðingar kynlíf hefur. Sólveig Guð-
mundsdóttir, María Pálsdóttir og
Alexía Björg Jóhannesdóttir bregða
sér í hlutverk Dóra Maack, Nonna
Bö og Hemma Gunn og hyggjast
fræða, ræða og svara þeim fjölda-
mörgu spurningum sem brenna á
öðrum fórnarlömbum barnauppeldis
– bæði einstæðum foreldrum og
stjúpforeldrum,“ segir Friðrik og
bendir á að sökum þess hversu um-
setið Tjarnarbíó sé verði boðið upp á
síðkvöldssýningar á uppistandi
Pörupilta sem byrji kl. 22 eftir að
fyrri sýningu kvöldsins er lokið, en
að jafnaði hefjist sýningar kl. 20.30.
„Það hentar vel þar sem margar
sýningar okkar eru í kringum 75
mínútur og leiknar án hlés.“
Katrín Gunnarsdóttir frumsýnir
nýtt sólódansverk sem nefnist
Shades of History 18. nóvember.
„Útgangspunktur verksins er höf-
undareinkenni 26 mismunandi dans-
höfunda sem hafa haft áhrif á Katr-
ínu í gegnum tíðina og mótað hana
sem dansara.“
Fyrsta frumsýningin á nýju ári
verður The Guide to the Perfect
Human úr smiðju danshöfundanna
Gígju Jónsdóttur, Guðrúnar Selmu
Sigurjónsdóttur, tónlistarmannsins
Loja Höskuldssonar og hönnuðarins
Eleni Podara. „Í sýningu sinni Drop
Dead Diet var hópurinn að taka fyrir
megrunarmenninguna, en núna er
komið að sjálfshjálparbókum. Sýn-
ingin fjallar um hvað þurfi til að
verða hin fullkomna manneskja.“
Sjálfsmyndarkrísa múslima
Þann 10. febrúar 2017 er komið að
frumsýningu á Þórbergi sem fjallar
um rithöfundinn Þórberg Þórðar-
son. „Verkið byggist á viðtalsbókinni
Í kompaníi við allífið sem Matthías
Johannessen skrifaði, auk þess sem
inn í leikritið eru tvinnuð m.a. brot
úr Bréfi til Sólu,“ segir Friðrik og
bendir á að Pétur Gunnarsson, sem
ritað hafi tvær bækur um Þórberg,
komi að handritavinnunni, en leik-
stjóri sýningarinnar er Edda Björg
Eyjólfsdóttir. „Upphaflega átti við-
talið aðeins að vera til birtingar í
Morgunblaðinu, en þetta vatt upp á
sig og varð að heilli bók, enda Þór-
bergur svo skemmtilegur. Sýningin
gerist í stofunni heima hjá Þórbergi
á Hringbraut og fjallar um ástina í
lífi Þórbergs,“ segir Friðrik sem
leikur Þórberg, en í hlutverki Matt-
híasar er Stefán Hallur Stefánsson.
„Ég fékk góðfúslegt leyfi stjórnar
Tjarnarbíós til að leika í þessari sýn-
ingu samhliða störfum mínum sem
framkvæmdastjóri,“ segir Friðrik
og áréttar að hann hafi vikið sæti í
valnefnd hússins þegar umsókn leik-
hópsins var tekin til meðferðar.
Leikhópurinn Lab Loki fagnar 25
ára starfsafmæli sínu með nýrri sýn-
ingu sem nefnist Endastöð – upphaf:
Sýning um fegurðina, ástina og eftir-
sjána í mars á næsta ári. „Það er við
hæfi að Lab Loki fagni starfsafmæli
sínu hér í Tjarnarbíói, en Lab Loki
er örugglega einn elsti starfandi
sjálfstæður atvinnuleikhópur í dag.
Þarna stilla saman strengi sína
reynsluboltarnir Rúnar Guðbrands-
son, Árni Pétur Guðjónsson, Filippía
Elísdóttur og Garðar Borgþórsson,
en þau unnu saman sýninguna Svik-
arinn sem Lab Loki sýndi í Tjarnar-
bíói 2011. Svipaðri aðferða- og hug-
myndafræði verður beitt, en fagur-
fræðin tekur stöðugt á sig nýjar
myndir,“ segir Friðrik og bendir á
að auk sýningarinnar muni Lab Loki
fagna afmæli sínu með ýmsum uppá-
komum í Tjarnarbíói.
Fyrirlestur um eitthvað fallegt
nefnist nýtt, íslenskt gamanleikrit
um kvíðakast aldarinnar eftir Söru
Marti Guðmundsdóttur í uppfærslu
leikhópsins Smartilab sem frumsýnt
verður í apríl, en Sara Marti leik-
stýrir einnig. „Baldur er að hefja
fyrirlestur um nýjasta listaverk sitt,
en þegar kastljósið kviknar yfir hon-
um frýs hann. Hann er að fá sitt
fyrsta kvíðakast. Áhorfendur fara
inn í heila Baldurs, þar sem hann
reynir að finna leið út úr kvíðakast-
inu,“ segir Friðrik og bendir á að
umfjöllunarefnið brenni á mörgum,
en rannsóknir sýni að á hverju ári
líði 12% Íslendinga af óeðlilegum og
sjúklegum kvíða.
„Við áætlum að frumsýna brúðu-
sýninguna Á eigin fótum á Barna-
menningarhátíð í apríl. Leikhóp-
urinn semur sýninguna í samvinnu
við Agnes Wilde sem einnig leik-
stýrir. Sýningin, sem ætluð er börn-
um frá tveggja ára aldri, fjallar um
Ninnu, uppátækjasama stelpu sem
býr í Reykjavík á millistríðsárunum
og er send alein í sveit heilt sumar.
Hún þarf að takast á við ýmsar
hættur, sigrast á ótta og læra að
standa á eigin fótum.“
Tvö erlend leikrit verða sýnd vor-
ið 2017. Fyrra verkið er Skömm eftir
Ayad Akhtar í leikstjórn Þorsteins
Bachmann, sem frumsýnt verður í
maí. „Verkið hlaut Pulitzer- og
OBIE-verðlaunin árið 2013. Það
fjallar um fordóma og sjálfsmyndar-
krísu múslima í Bandaríkjunum.
Fjórar manneskjur með ólíkan bak-
grunn mætast í kvöldverðarboði.
Þegar pólitík og trú ber á góma fer
allt á suðupunkt,“ segir Friðrik og
bendir á að leikarinn Jónmundur
Grétarsson, sem þekktastur sé fyrir
að hafa leikið sóparann í Bugsy Mal-
one í Loftkastalanum á sínum tíma,
hafi lengið gengið með þá hugmynd í
maganum að setja verkið upp hér-
lendis.
„Árni Kristjánsson leikstýrir eig-
in þýðingu á verkinu Í samhengi við
stjörnurnar eftir Nick Payne. Verk-
ið fjallar um litlu og stóru atvikin
sem umbreyta ástarsambandi. Tveir
eins atburðir geta haft gjörólíkar af-
leiðingar. Höfundurinn sækir inn-
blástur í lögmál skammtafræði og
afstæðiskenningar.“
Auk ofangreindra sýninga verða
aftur teknar til sýningar jólaleiksýn-
ingin Ævintýrið um Augastein,
heimildarverkið Þú kemst þinn veg,
ádeiluverkið Könnunarleiðangurinn
til Koi og barnasýningin Vera og
vatnið. „Tjarnarbíó hýsir auk þess
ýmsar hátíðir, s.s. Lókal og Reykja-
vík Dance Festival núna í ágúst og
aftur í nóvember, Reykjavík Film
Festival með haustinu og Barna-
menningarhátíð næsta vor.“
„Stærsta leikár til þessa“
14 ný sviðsverk frumsýnd í Tjarnarbíói Þar af eru 12 ný íslensk verk Kriðpleir frumsýnir
Ævisögu einhvers Edda Björg Eyjólfsdóttir leikstýrir Þórbergi Lab Loki fagnar 25 ára afmæli
Morgunblaðið/Ófeigur
» Okkar helsti styrkurfelst í því að hér segir
fólk sögur sem því liggja
á hjarta.
Frumsköpun „Við erum af-
ar stolt af því að hlutfall
nýrra íslenskra verka er um
90% hjá okkur,“ segir Frið-
rik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Tjarnarbíós.