Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 65
MINNINGAR 65 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 ✝ JóhannaBjörnsdóttir fæddist 27. janúar 1919 á Kollufossi í Vesturárdal í V-Húnavatnssýslu. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Norðurlands vestra á Hvammstanga 16. ágúst 2016. Hún var dóttir hjónanna Ingi- bjargar Jónsdóttur húsmóður, f. 9. desember 1891, d. 4. júní 1974, og Björns Guðmundssonar bónda, f. 23. febrúar 1985, d. 24. mars 1985. Jóhanna var næst- elst sjö systkina, elst var Þor- björg Hólmfríður, látin, Guð- mundur Reyndal, látinn, Jón Björgvin, látinn, Ólöf, f. 14. des- ember 1926, Jóhannes Ingvar, f. 1. janúar 1930, og Jón Elís, lát- inn. Jóhanna giftist hinn 1. sept- ember 1945 Jóni Kristni Péturs- fimm og komust þrjú upp: 1) Kristín Dóra Margrét, f. 19. september 1943, gift Haraldi Holta Líndal, f. 20. nóvember 1939, d. 27. maí 2013. Synir þeirra eru: a) Jón Pétur, f. 6. mars 1964, sambýliskona Sig- urbjörg Jónsdóttir, f. 1. júní 1963, fyrri sambýliskona Sól- veig Valgerður Stefánsdóttir, f. 3. júní 1965; börn þeirra eru: i) Soffía Kristín, f. 21. ágúst 1989; ii) Sólveig Jóhanna, f. 21. ágúst 1989; iii) Kolbrún Védís, f. 11. september 2000. b) Jónatan Elv- ar, f. 13. maí 1965. c) Júlíus Bjarki, f. 24. nóvember 1968, sambýliskona Aðalheiður Lilja Magnúsdóttir, f. 17. júlí 1969. Börn þeirra eru: i) Haraldur Holti, f. 4. september 2003, ii) Vilborg Jóhanna, f. 27. janúar 2005, iii) Friðbjörg Margrét, f. 9. apríl 2007. d) Jóhann Haukur Kristinn, f. 21. júní 1978, maki Birna Aldís Fernández, f. 21. apríl 1981. Börn: i) Júlía Karen, f. 23. janúar 2009, ii) Davíð Ari, f. 28. nóvember 2010. 2) Jón Ívar Jónsson, f. 3. maí 1946. 3) Magn- ús Ari, f. 5. nóvember 1955. Útför Jóhönnu fer fram frá Melstaðarkirkju í dag, 27. ágúst 2016, klukkan 14. syni frá Tungukoti á Vatnsnesi, f. 20. apríl 1918, d. 25. ágúst 1978. Þau hófu búskap á Hvammstanga í september 1941 en hugur þeirra stóð til búskapar í sveit og leigðu þau jörð- ina Tjörn í Þver- árhreppi á Vatns- nesi og bjuggu þar til 1945 að þau keyptu Skarfshól í Miðfirði. Þar hófu þau mikið starf í ræktun lands og bygg- ingu húsa á jörðinni og ráku þar myndarbúskap. Það var henni mikið áfall er Jón lést, rétt sex- tugur að aldri, en hún hélt ótrauð áfram búskap með son- um sínum til dauðadags. Hún hélt andlegu atgervi til síðasta dags, fylgdist vel með ættingj- um sínum og þjóðmálum í hví- vetna. Börn Jóhönnu og Jóns voru Ég var þeirrar gæfu njótandi að upplifa það að vera send í sveit á sumrin. Fékk að hjálpa til á Skarfshóli í Miðfirði hjá Hönnu frænku. Raka meðfram, sækja beljurnar og gefa kálfun- um en líka leika mér í móanum og lesa bækur. Hönnu frænku var ætíð umhugað um heilsu mína og eitt af því sem hún setti sem skilyrði, þegar ég var hjá henni á sumrin, var að ég drykki mjólk sem var og er eitthvað það alversta sem ég veit svo við gerðum með okkur samkomulag. Maggi-súputeningarnir komu í þá daga í glösum, stórum og litlum og eitt slíkt lítið glas skyldi ég drekka á hverjum degi og hún gaf sig ekkert með það. Hanna frænka innrætti mér nægjusemi, að leggja alúð við öll verk og aldrei að takast á við neitt af hálfum hug. Minningin um hana er í mínum huga minn- ing um sterka konu, ákveðna, fíngerða og hlýlega. Hanna frænka var ekki bara frænka, hún var mér eins og amma og börnum mínum langamma, bæk- ur og smá gotterí á jólunum frá Hönnu frænku var stóri hluti hefðarinnar og minninganna. Hvað er fallegra en heilbrigð ferðalok? Hanna frænka á Skarfshóli hefur lokið langri ævi. Hún var iðin kona og allt hennar fas var hógvært og rólynt en nú er hennar dagsverk að lokum komið. Við kveðjum Hönnu frænku með virðingu og þökk fyrir allt. Sendum þeim Stínu, Nonna og Ara sem og öðrum ættingjum samúðarkveðjur. Ef til vill er ekkert fegurra í lífinu en að kynnast fegurð eldri konu, sem alltaf er að vaxa að þolinmæði mildi og manngæsku. Hugsar til allra gjafa síns liðna lífs, með þakklæti og varpar aftanskini af friði í kringum sig. (Sigurður Nordal) Magnea Steinunn og börn. Þvílík kona, þvílíkur skörung- ur. Já, það er af mörgu að taka þegar skrifuð eru minningarorð um Jóhönnu frá Skarfshóli. Jó- hanna, eða Hanna systir eins og mamma kallaði hana, var ekki há í loftinu en stór kona var hún engu að síður, hún var stór kona á svo margan hátt. Jóhanna var hörkudugleg, bráðgreind, ákveð- in, ósérhlífin og höfðingi heim að sækja. Borðið í eldhúskróknum á Skarfshóli svignaði undan kræsingunum hvort sem maður kom óvænt í heimsókn eða ekki. Rætt var um það nýjasta í þjóð- málunum en Jóhanna fylgdist vel með öllu sem gerðist, mynd- aði sér skoðanir og rökræddi þær. Jóhanna var ekki allra og vissi það, henni líkaði heldur ekki við alla og fór ekki í feluleik með það, heldur kom hreint og beint fram. Minnið hennar var óbrigðult og það var einstaklega gaman að sitja og rifja upp gamla tíma með henni, í rauninni mundi hún allt. Þá var oft hlegið hjartnæmum hlátri og það sem hún gat hrist hausinn yfir því sem hún kallaði vitleysuna í yngri systur sinni tæplega ní- ræðri, hún væri nú að verða elli- ær. Já, hún Jóhanna hélt reisn sinni fram á síðasta dag. Þegar hún kynntist eigin- manni sínum flutti hún að heim- an og byggði síðar upp stórbýli með honum á Skarfshóli. Jó- hanna fór ekki varhuga af sorg- inni í lífi sínu en tvö barna þeirra hjóna létust í fæðingu og mann- inn sinn, hann Jón, missti hún árið 1978 úr krabbameini. Þetta hlýtur að hafa tekið á hana en hún kvartaði aldrei, svona var lífið og það þýddi ekkert að tala um þetta. Það er skrítið til þess að vita að 97 ára konan sem maður hafði einhvern veginn hugsað sér að yrði eilíf sé ekki lengur í eldhúskróknum á Skarfshóli. Hún leiðréttir ekki lengur mis- minni hjá mér eða öðrum og hún kemur ekki til með að koma brosandi til dyra og bjóða okkur velkomin og segir nei, að hún ætli ekki að koma með okkur til Reykjavíkur. Rödd hennar er þögnuð en minningarnar streyma fram og ylja á kveðju- stund. Ég heimsótti Jóhönnu síðast að Skarfshóli í apríl sl. Næsta heimsókn var á sjúkrahúsið á Hvammstanga þar sem hún var flutt og dvaldi í nokkra daga í lok maí, þá tjáði hún mér að þetta væri nú að verða gott, við kvöddumst og þökkuðum hvor annarri fyrir samveruna og allt og allt. Nokkrum dögum síðar var hún komin heim í eldhús- krókinn sinn og átti eftir að sjá um heimilið og taka á móti gest- um í allt sumar. Þann 16. ágúst kvaddi hún í svefni og varð þar með að ósk sinni að þurfa ekki að liggja lengi áður en kallið kæmi. Ég hef þá trú að hún hafi farið sátt frá borði. Klukkur tímans tifa telja ævistundir ætíð lengi lifa ljúfir vinafundir. Drottinn veg þér vísi vel þig ætíð geymi ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. (Hákon Aðalsteinsson) Jóhanna var ein af þessum stórmennum sem veita innblást- ur langt út yfir gröf og dauða. Við erum rík sem fengum að kynnast henni og eiga að. Eft- irlifandi systkinum Jóhönnu, þeim Jóhannesi, Ólöfu (mömmu) og Kristínu Rut (skásystur) og börnunum hennar, þeim Krist- ínu, Jóni, Ara, barnabörnum og öðrum afkomendum sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi minningin um kjarnakonuna hana Jóhönnu lifa með okkur. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir. Gefa, vona, þiggja, þrá, þjóna, njóta, gleðja. Elska, hlæja, fagna, fá, fara, missa, kveðja. (Bragi V. Bergmann.) Miðvikudaginn 10. ágúst síð- astliðinn sátum við hjónin í eld- húsinu hjá Hönnu frænku og sonum hennar, gæddum okkur á nýbakaðri hjónabandssælu og öðrum kræsingum, framreiddum af Hönnu. Við ræddum um lífið og tilveruna eins og við Hanna höfum gert með reglulegu milli- bili í nær 50 ár. Ekki grunaði mig þá, þrátt fyrir háan aldur Hönnu, að hún myndi leggja upp í sitt hinsta ferðalag örfáum dög- um síðar. Ég kom fyrst til sumardvalar að Skarfshóli sjö ára gömul, til Hönnu og Jóns heitins. Ég kom norður um miðjan maí og hélt aftur suður um miðjan septem- ber – og þannig var það í fjögur sumur. Ég var umvafin hlýju og kærleika á Skarfshóli og við Hanna bundumst strax mjög sterkum böndum; böndum sem entust ævilangt. Æ síðan var ég heimagangur á Skarfshóli og alltaf aufúsugestur. Minningarn- ar hrannast upp og eru efni í heila bók. Hanna frænka hafði mjög ákveðnar lífsskoðanir og sterka réttlætiskennd. Hún var nægju- söm, þakklát, örlát og gestrisin með afbrigðum. Hún hafði líka mjög skemmtilega kímnigáfu. Á Skarfshóli var ég hvött til bóka- lesturs og menntunar og að standa ávallt við mitt. Hanna og fjölskylda veittu mér veganesti út í lífið sem ég kem til með að búa að alla tíð. Ég kveð Hönnu frænku með sorg í hjarta en full þakklætis. Ég er þakklát fyrir langa og ein- staklega ljúfa samferð en jafn- framt fyrir það að Hanna fékk þá ósk sína uppfyllta að vera hress og kát og ekki upp á aðra komin allt til hinsta dags. Við Bragi, Magnús og Alex- ander sendum Kristínu, Jóni og Ara sem og öðrum aðstandend- um hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning heiður- skonu. Ingibjörg Sólrún Ingimundardóttir. Látin er Jóhanna Björnsdótt- ir bóndi og húsfreyja að Skarf- hóli í Miðfirði í Vestur-Húna- vatnssýslu. Það er við hæfi að minnast þessarar miklu heiðurs- konu nú þegar hún er lögð af stað í ferð sína yfir landamærin. 55 ára viðkynning er löngu búin að færa mér allan sannleik um drengskap og manndóm Jó- hönnu Björnsdóttur. Hún var fædd að Kollufossi í Miðfirði hinn 27.janúar árið 1919. Hún bjó í Vestur-Húnavatnssýslu alla sína lífstíð, 97 ár, þar af í Mið- firði í yfir 90 ár. Hún var dóttir hjónanna Ingibjargar Jónsdótt- ur og Björns Guðmundssonar sem lengst bjuggu í Reynhólum í Miðfirði. Um tvítugsaldur kynntist Jó- hanna ungum bóndasyni, Jóni Péturssyni frá Línakradal á Vatnsnesi. Þau hófu sambúð á Hvammstanga árið 1941. Þau festu kaup á jörðinni Skarfhóli í Miðfirði árið 1945 og bjuggu þar síðan. Við kaupin á Skarfhóli tóku þau eina lánið sem þau tóku á lífsleiðinni. Ávallt síðan var framkvæmt á Skarfhóli fyrir sjálfsaflafé. Jóhanna og Jón voru einstaklega samhent hjón, allt gert með fyrirhyggju og rósamri yfirvegun. Það var girt, ræktað, öll hús byggð ný, keyptar vélar og á ótrúlega skömmum tíma var öll þessi uppbygging fram- kvæmd án þess að taka eyrir að láni. Jón lést í ágúst 1978 af erf- iðum sjúkdómi og annaðist Jó- hanna bónda sinn í veikindum hans af einstakri nærfærni, þannig vildu þau hafa það, sam- an til síðustu stundar. Jóhanna og Jón eignuðust fimm börn. Af þeim lifðu þrjú, þau Kristín, f. 1943, Jón, f. 1946 og Ari, f. 1955. Kristín býr á Holtastöðum í Langadal og þeir bræður Jón og Ari eru bændur á Skarfhóli, og halda þar uppi fána ráðdeildar og fyrirhyggju. Á Skarfhóli er einstök gestrisni og móttökur gesta höfðinglegar. Mikill áhugi er á þjóðmálum, og sérstaklega öllu er snýr að land- búnaði. Það er við hæfi að enda þessar línur með erindi úr bændasálminum góða: Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænar gjörð, … (Bjarni Ásgeirsson.) Við kveðjum Jóhönnu Björns- dóttur með þakklæti fyrir langa og trausta vináttu um leið og við vottum börnum hennar og af- komendum dýpstu samúð. Blessuð sé minning Jóhönnu Björnsdóttur Ingimundur Magnússon. Jóhanna Björnsdóttir Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Hinsti vilji Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu- lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar og lögfræðiþjónusta Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN PÁLSDÓTTIR kennari, Goðheimum 20, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 10. ágúst, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 30. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. . Magnús Kjartan Hannesson, Feng Jiang Hannesdóttir, Hannes Hermann Mahong Magnússon. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR ÁSA BENEDIKTSDÓTTIR, andaðist að Skjóli 22. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. ágúst klukkan 13. . Hildur Hrönn Hreiðarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Ingibjörg Hreiðarsdóttir, Guðmundur Magnússon, Bogey Hreiðarsdóttir, Árni Alfreðsson, Logi Snævar Hreiðarsson, Hreiðar Hugi Hreiðarsson, Tove Gulbrandsen, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRYGGVI ÞÓR JÓNSSON rafverktaki, Móabarði 16b, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 31. ágúst klukkan 13. Jarðsett verður í Lágafellskirkjugarði. . Þorbjörg Ólafsdóttir, Ólafur Tryggvason, Fjóla Ólöf Karlsdóttir, Aðalheiður Tryggvadóttir, Bogi Hjálmtýsson. barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ATLI HELGASON prentari og knattspyrnuþjálfari, varð bráðkvaddur á heimili sínu 24. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 7. september klukkan 15. Þeir sem vilja minnast hans vinsamlega láti líknarstofnanir njóta þess. . Björg Helga Atladóttir, Jón Ægir Pétursson, Auður Atladóttir, Helgi Þórðarson, Hildur Atladóttir, Jón Hrafn Björnsson, Þorkell Atlason, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ALDÍS DÚA ÞÓRARINSDÓTTIR, lést 23. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 1. september klukkan 15. . Unnur Sigtryggsdóttir, Ásgrímur Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.