Morgunblaðið - 27.08.2016, Page 65
MINNINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
✝ JóhannaBjörnsdóttir
fæddist 27. janúar
1919 á Kollufossi í
Vesturárdal í
V-Húnavatnssýslu.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Norðurlands vestra
á Hvammstanga 16.
ágúst 2016.
Hún var dóttir
hjónanna Ingi-
bjargar Jónsdóttur húsmóður, f.
9. desember 1891, d. 4. júní
1974, og Björns Guðmundssonar
bónda, f. 23. febrúar 1985, d. 24.
mars 1985. Jóhanna var næst-
elst sjö systkina, elst var Þor-
björg Hólmfríður, látin, Guð-
mundur Reyndal, látinn, Jón
Björgvin, látinn, Ólöf, f. 14. des-
ember 1926, Jóhannes Ingvar, f.
1. janúar 1930, og Jón Elís, lát-
inn.
Jóhanna giftist hinn 1. sept-
ember 1945 Jóni Kristni Péturs-
fimm og komust þrjú upp: 1)
Kristín Dóra Margrét, f. 19.
september 1943, gift Haraldi
Holta Líndal, f. 20. nóvember
1939, d. 27. maí 2013. Synir
þeirra eru: a) Jón Pétur, f. 6.
mars 1964, sambýliskona Sig-
urbjörg Jónsdóttir, f. 1. júní
1963, fyrri sambýliskona Sól-
veig Valgerður Stefánsdóttir, f.
3. júní 1965; börn þeirra eru: i)
Soffía Kristín, f. 21. ágúst 1989;
ii) Sólveig Jóhanna, f. 21. ágúst
1989; iii) Kolbrún Védís, f. 11.
september 2000. b) Jónatan Elv-
ar, f. 13. maí 1965. c) Júlíus
Bjarki, f. 24. nóvember 1968,
sambýliskona Aðalheiður Lilja
Magnúsdóttir, f. 17. júlí 1969.
Börn þeirra eru: i) Haraldur
Holti, f. 4. september 2003, ii)
Vilborg Jóhanna, f. 27. janúar
2005, iii) Friðbjörg Margrét, f. 9.
apríl 2007. d) Jóhann Haukur
Kristinn, f. 21. júní 1978, maki
Birna Aldís Fernández, f. 21.
apríl 1981. Börn: i) Júlía Karen,
f. 23. janúar 2009, ii) Davíð Ari,
f. 28. nóvember 2010. 2) Jón Ívar
Jónsson, f. 3. maí 1946. 3) Magn-
ús Ari, f. 5. nóvember 1955.
Útför Jóhönnu fer fram frá
Melstaðarkirkju í dag, 27. ágúst
2016, klukkan 14.
syni frá Tungukoti
á Vatnsnesi, f. 20.
apríl 1918, d. 25.
ágúst 1978. Þau
hófu búskap á
Hvammstanga í
september 1941 en
hugur þeirra stóð
til búskapar í sveit
og leigðu þau jörð-
ina Tjörn í Þver-
árhreppi á Vatns-
nesi og bjuggu þar
til 1945 að þau keyptu Skarfshól
í Miðfirði. Þar hófu þau mikið
starf í ræktun lands og bygg-
ingu húsa á jörðinni og ráku þar
myndarbúskap. Það var henni
mikið áfall er Jón lést, rétt sex-
tugur að aldri, en hún hélt
ótrauð áfram búskap með son-
um sínum til dauðadags. Hún
hélt andlegu atgervi til síðasta
dags, fylgdist vel með ættingj-
um sínum og þjóðmálum í hví-
vetna.
Börn Jóhönnu og Jóns voru
Ég var þeirrar gæfu njótandi
að upplifa það að vera send í
sveit á sumrin. Fékk að hjálpa
til á Skarfshóli í Miðfirði hjá
Hönnu frænku. Raka meðfram,
sækja beljurnar og gefa kálfun-
um en líka leika mér í móanum
og lesa bækur. Hönnu frænku
var ætíð umhugað um heilsu
mína og eitt af því sem hún setti
sem skilyrði, þegar ég var hjá
henni á sumrin, var að ég drykki
mjólk sem var og er eitthvað það
alversta sem ég veit svo við
gerðum með okkur samkomulag.
Maggi-súputeningarnir komu í
þá daga í glösum, stórum og
litlum og eitt slíkt lítið glas
skyldi ég drekka á hverjum degi
og hún gaf sig ekkert með það.
Hanna frænka innrætti mér
nægjusemi, að leggja alúð við öll
verk og aldrei að takast á við
neitt af hálfum hug. Minningin
um hana er í mínum huga minn-
ing um sterka konu, ákveðna,
fíngerða og hlýlega. Hanna
frænka var ekki bara frænka,
hún var mér eins og amma og
börnum mínum langamma, bæk-
ur og smá gotterí á jólunum frá
Hönnu frænku var stóri hluti
hefðarinnar og minninganna.
Hvað er fallegra en heilbrigð
ferðalok? Hanna frænka á
Skarfshóli hefur lokið langri ævi.
Hún var iðin kona og allt hennar
fas var hógvært og rólynt en nú
er hennar dagsverk að lokum
komið. Við kveðjum Hönnu
frænku með virðingu og þökk
fyrir allt. Sendum þeim Stínu,
Nonna og Ara sem og öðrum
ættingjum samúðarkveðjur.
Ef til vill er ekkert fegurra í lífinu
en að kynnast fegurð eldri konu,
sem alltaf er að vaxa að þolinmæði
mildi og manngæsku.
Hugsar til allra gjafa síns liðna lífs,
með þakklæti og varpar
aftanskini af friði í kringum sig.
(Sigurður Nordal)
Magnea Steinunn og börn.
Þvílík kona, þvílíkur skörung-
ur. Já, það er af mörgu að taka
þegar skrifuð eru minningarorð
um Jóhönnu frá Skarfshóli. Jó-
hanna, eða Hanna systir eins og
mamma kallaði hana, var ekki
há í loftinu en stór kona var hún
engu að síður, hún var stór kona
á svo margan hátt. Jóhanna var
hörkudugleg, bráðgreind, ákveð-
in, ósérhlífin og höfðingi heim að
sækja. Borðið í eldhúskróknum
á Skarfshóli svignaði undan
kræsingunum hvort sem maður
kom óvænt í heimsókn eða ekki.
Rætt var um það nýjasta í þjóð-
málunum en Jóhanna fylgdist
vel með öllu sem gerðist, mynd-
aði sér skoðanir og rökræddi
þær. Jóhanna var ekki allra og
vissi það, henni líkaði heldur
ekki við alla og fór ekki í feluleik
með það, heldur kom hreint og
beint fram. Minnið hennar var
óbrigðult og það var einstaklega
gaman að sitja og rifja upp
gamla tíma með henni, í rauninni
mundi hún allt. Þá var oft hlegið
hjartnæmum hlátri og það sem
hún gat hrist hausinn yfir því
sem hún kallaði vitleysuna í
yngri systur sinni tæplega ní-
ræðri, hún væri nú að verða elli-
ær. Já, hún Jóhanna hélt reisn
sinni fram á síðasta dag.
Þegar hún kynntist eigin-
manni sínum flutti hún að heim-
an og byggði síðar upp stórbýli
með honum á Skarfshóli. Jó-
hanna fór ekki varhuga af sorg-
inni í lífi sínu en tvö barna þeirra
hjóna létust í fæðingu og mann-
inn sinn, hann Jón, missti hún
árið 1978 úr krabbameini. Þetta
hlýtur að hafa tekið á hana en
hún kvartaði aldrei, svona var
lífið og það þýddi ekkert að tala
um þetta.
Það er skrítið til þess að vita
að 97 ára konan sem maður
hafði einhvern veginn hugsað
sér að yrði eilíf sé ekki lengur í
eldhúskróknum á Skarfshóli.
Hún leiðréttir ekki lengur mis-
minni hjá mér eða öðrum og hún
kemur ekki til með að koma
brosandi til dyra og bjóða okkur
velkomin og segir nei, að hún
ætli ekki að koma með okkur til
Reykjavíkur. Rödd hennar er
þögnuð en minningarnar
streyma fram og ylja á kveðju-
stund.
Ég heimsótti Jóhönnu síðast
að Skarfshóli í apríl sl. Næsta
heimsókn var á sjúkrahúsið á
Hvammstanga þar sem hún var
flutt og dvaldi í nokkra daga í
lok maí, þá tjáði hún mér að
þetta væri nú að verða gott, við
kvöddumst og þökkuðum hvor
annarri fyrir samveruna og allt
og allt. Nokkrum dögum síðar
var hún komin heim í eldhús-
krókinn sinn og átti eftir að sjá
um heimilið og taka á móti gest-
um í allt sumar. Þann 16. ágúst
kvaddi hún í svefni og varð þar
með að ósk sinni að þurfa ekki
að liggja lengi áður en kallið
kæmi. Ég hef þá trú að hún hafi
farið sátt frá borði.
Klukkur tímans tifa
telja ævistundir
ætíð lengi lifa
ljúfir vinafundir.
Drottinn veg þér vísi
vel þig ætíð geymi
ljósið bjart þér lýsi
leið í nýjum heimi.
(Hákon Aðalsteinsson)
Jóhanna var ein af þessum
stórmennum sem veita innblást-
ur langt út yfir gröf og dauða.
Við erum rík sem fengum að
kynnast henni og eiga að. Eft-
irlifandi systkinum Jóhönnu,
þeim Jóhannesi, Ólöfu (mömmu)
og Kristínu Rut (skásystur) og
börnunum hennar, þeim Krist-
ínu, Jóni, Ara, barnabörnum og
öðrum afkomendum sendi ég
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Megi minningin um
kjarnakonuna hana Jóhönnu lifa
með okkur.
Ingibjörg Ólöf
Vilhjálmsdóttir.
Gefa, vona, þiggja, þrá,
þjóna, njóta, gleðja.
Elska, hlæja, fagna, fá,
fara, missa, kveðja.
(Bragi V. Bergmann.)
Miðvikudaginn 10. ágúst síð-
astliðinn sátum við hjónin í eld-
húsinu hjá Hönnu frænku og
sonum hennar, gæddum okkur á
nýbakaðri hjónabandssælu og
öðrum kræsingum, framreiddum
af Hönnu. Við ræddum um lífið
og tilveruna eins og við Hanna
höfum gert með reglulegu milli-
bili í nær 50 ár. Ekki grunaði
mig þá, þrátt fyrir háan aldur
Hönnu, að hún myndi leggja upp
í sitt hinsta ferðalag örfáum dög-
um síðar.
Ég kom fyrst til sumardvalar
að Skarfshóli sjö ára gömul, til
Hönnu og Jóns heitins. Ég kom
norður um miðjan maí og hélt
aftur suður um miðjan septem-
ber – og þannig var það í fjögur
sumur. Ég var umvafin hlýju og
kærleika á Skarfshóli og við
Hanna bundumst strax mjög
sterkum böndum; böndum sem
entust ævilangt. Æ síðan var ég
heimagangur á Skarfshóli og
alltaf aufúsugestur. Minningarn-
ar hrannast upp og eru efni í
heila bók.
Hanna frænka hafði mjög
ákveðnar lífsskoðanir og sterka
réttlætiskennd. Hún var nægju-
söm, þakklát, örlát og gestrisin
með afbrigðum. Hún hafði líka
mjög skemmtilega kímnigáfu. Á
Skarfshóli var ég hvött til bóka-
lesturs og menntunar og að
standa ávallt við mitt. Hanna og
fjölskylda veittu mér veganesti
út í lífið sem ég kem til með að
búa að alla tíð.
Ég kveð Hönnu frænku með
sorg í hjarta en full þakklætis.
Ég er þakklát fyrir langa og ein-
staklega ljúfa samferð en jafn-
framt fyrir það að Hanna fékk
þá ósk sína uppfyllta að vera
hress og kát og ekki upp á aðra
komin allt til hinsta dags.
Við Bragi, Magnús og Alex-
ander sendum Kristínu, Jóni og
Ara sem og öðrum aðstandend-
um hugheilar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning heiður-
skonu.
Ingibjörg Sólrún
Ingimundardóttir.
Látin er Jóhanna Björnsdótt-
ir bóndi og húsfreyja að Skarf-
hóli í Miðfirði í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Það er við hæfi að
minnast þessarar miklu heiðurs-
konu nú þegar hún er lögð af
stað í ferð sína yfir landamærin.
55 ára viðkynning er löngu búin
að færa mér allan sannleik um
drengskap og manndóm Jó-
hönnu Björnsdóttur. Hún var
fædd að Kollufossi í Miðfirði
hinn 27.janúar árið 1919. Hún
bjó í Vestur-Húnavatnssýslu alla
sína lífstíð, 97 ár, þar af í Mið-
firði í yfir 90 ár. Hún var dóttir
hjónanna Ingibjargar Jónsdótt-
ur og Björns Guðmundssonar
sem lengst bjuggu í Reynhólum
í Miðfirði.
Um tvítugsaldur kynntist Jó-
hanna ungum bóndasyni, Jóni
Péturssyni frá Línakradal á
Vatnsnesi. Þau hófu sambúð á
Hvammstanga árið 1941. Þau
festu kaup á jörðinni Skarfhóli í
Miðfirði árið 1945 og bjuggu þar
síðan. Við kaupin á Skarfhóli
tóku þau eina lánið sem þau tóku
á lífsleiðinni. Ávallt síðan var
framkvæmt á Skarfhóli fyrir
sjálfsaflafé. Jóhanna og Jón voru
einstaklega samhent hjón, allt
gert með fyrirhyggju og rósamri
yfirvegun. Það var girt, ræktað,
öll hús byggð ný, keyptar vélar
og á ótrúlega skömmum tíma
var öll þessi uppbygging fram-
kvæmd án þess að taka eyrir að
láni.
Jón lést í ágúst 1978 af erf-
iðum sjúkdómi og annaðist Jó-
hanna bónda sinn í veikindum
hans af einstakri nærfærni,
þannig vildu þau hafa það, sam-
an til síðustu stundar.
Jóhanna og Jón eignuðust
fimm börn. Af þeim lifðu þrjú,
þau Kristín, f. 1943, Jón, f. 1946
og Ari, f. 1955. Kristín býr á
Holtastöðum í Langadal og þeir
bræður Jón og Ari eru bændur á
Skarfhóli, og halda þar uppi fána
ráðdeildar og fyrirhyggju. Á
Skarfhóli er einstök gestrisni og
móttökur gesta höfðinglegar.
Mikill áhugi er á þjóðmálum, og
sérstaklega öllu er snýr að land-
búnaði. Það er við hæfi að enda
þessar línur með erindi úr
bændasálminum góða:
Ef ég mætti yrkja,
yrkja vildi ég jörð.
Sveit er sáðmanns kirkja,
sáning bænar gjörð,
…
(Bjarni Ásgeirsson.)
Við kveðjum Jóhönnu Björns-
dóttur með þakklæti fyrir langa
og trausta vináttu um leið og við
vottum börnum hennar og af-
komendum dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Jóhönnu
Björnsdóttur
Ingimundur
Magnússon.
Jóhanna
Björnsdóttir
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Hinsti vilji
Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu-
lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til
samtals um það sem er þér mikilvægast við
lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum
mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla
upplýsinga er þér að kostnaðarlausu.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Elín Sigrún Jónsdóttir,
lögfræðingur
Útfararstofa kirkjugarðanna
Útfarar og lögfræðiþjónusta
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN PÁLSDÓTTIR
kennari,
Goðheimum 20,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 10. ágúst, verður
jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 30. ágúst klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð.
.
Magnús Kjartan Hannesson, Feng Jiang Hannesdóttir,
Hannes Hermann Mahong Magnússon.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AUÐUR ÁSA BENEDIKTSDÓTTIR,
andaðist að Skjóli 22. ágúst. Útför hennar
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
31. ágúst klukkan 13.
.
Hildur Hrönn Hreiðarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Ingibjörg Hreiðarsdóttir, Guðmundur Magnússon,
Bogey Hreiðarsdóttir, Árni Alfreðsson,
Logi Snævar Hreiðarsson,
Hreiðar Hugi Hreiðarsson, Tove Gulbrandsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
TRYGGVI ÞÓR JÓNSSON
rafverktaki,
Móabarði 16b, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 19.
ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 31. ágúst klukkan 13. Jarðsett verður í
Lágafellskirkjugarði.
.
Þorbjörg Ólafsdóttir,
Ólafur Tryggvason, Fjóla Ólöf Karlsdóttir,
Aðalheiður Tryggvadóttir, Bogi Hjálmtýsson.
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ATLI HELGASON
prentari og knattspyrnuþjálfari,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 24. ágúst.
Hann verður jarðsunginn frá Neskirkju
miðvikudaginn 7. september klukkan 15. Þeir sem vilja minnast
hans vinsamlega láti líknarstofnanir njóta þess.
.
Björg Helga Atladóttir, Jón Ægir Pétursson,
Auður Atladóttir, Helgi Þórðarson,
Hildur Atladóttir, Jón Hrafn Björnsson,
Þorkell Atlason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ALDÍS DÚA ÞÓRARINSDÓTTIR,
lést 23. ágúst. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 1.
september klukkan 15.
.
Unnur Sigtryggsdóttir, Ásgrímur Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.