Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Endurheimt votlendis
og loftslagsmálin
- frjálst framtak í umhverfismálum
www.sigridur.is
• Hvernig verður best dregið úr
CO
2
losun á Íslandi?
• Hvernig er votlendi
endurheimt?
• Hvað getum við gert með
frjálsu framtaki?
• Morgunmatur frá kl. 8:00
• Enginn aðgangseyrir
Frummælendur:
Sigríður Á. Andersen
alþingismaður.
Sunna Áskelsdóttir
héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins.
Úlfar Steindórsson
forstjóri Toyota á Íslandi.
Morgunverðarfundur þri. 30. ágúst, 8:30-10:00
Reykjavík Natura (Hótel Loftleiðir) - Víkingasal
Friðbjörn Orri Ketilsson, varafor-
seti félagsins, bætir við að áhugann
megi eflaust einnig útskýra með því
að samgöngur voru hér lengst af
torveldar. „Þegar þú horfir til dæm-
is á vogskorna firði þar sem erfitt
er að fara á milli er flugið nánast
eins og draumur. Flugið minnkaði í
raun landið og sameinaði byggðir
landsins.“ Fólk af eldri kynslóðinni
hugsi því enn með mikilli hlýju til
þess.
Mikil samheldni í upphafi
Matthías rifjar upp að í árdaga
flugsins á Íslandi hafi þurft að
byggja upp alla aðstöðu og alla flug-
velli. „Í upphafi voru menn aðallega
á flugbátum, því að greiðasta að-
gengið á milli þéttbýlisstaða var í
gegnum hafnirnar,“ segir Matthías.
Því hafi verið verk að vinna.
„Ég held að á þessum uppbygg-
ingartímum, þegar þessi atvinnu-
félög voru stofnuð og fóru í sam-
keppni við stórfyrirtæki, hafi þessi
hópur verið mjög samheldinn.
Stjórnmálamenn, embættismenn og
frumkvöðlarnir sem voru á bak við
félögin störfuðu mjög náið saman
við að byggja þetta upp,“ segir
Matthías.
Friðbjörn Orri bætir við að í
gegnum tíðina hafi verið þver-
pólitísk sátt um að vera með öflugar
flugsamgöngur, ekki bara á landinu
sjálfu heldur einnig í millilandaflugi.
Stjórnmálamenn hafi á þeim tíma
beitt sér til þess að tryggja fram-
gang flugsins.
Kennsluflug gæti lagst af
Talið berst að Reykjavíkur-
flugvelli, en mikil óvissa hefur ríkt
síðustu árin um það hvort hann
verði áfram. „Mér finnst það sýna
styrk flugsins hverju menn hafa þó
áorkað miðað við þau erfiðu ytri
skilyrði sem pólitíkin hefur skapað
síðustu áratugi. Við höfum séð upp-
byggingu á flugkennslu, uppbygg-
ingu á einkaflugi og uppbyggingu á
atvinnuflugi þrátt fyrir þann litla
pólitíska skilning sem fluginu hefur
verið sýndur,“ segir Matthías.
Matthías og Friðbjörn Orri eru
ómyrkir í máli um þau áhrif sem
það gæti haft að úthýsa kennslu-
flugi úr Vatnsmýrinni. „Að óbreyttu
leggst kennsluflug af. Það er enginn
annar flugvöllur sem getur tekið við
þessu,“ segir Friðbjörn Orri. „Valið
stendur ekkert endilega á milli
þessa vallar eða einhvers annars
flugvallar, heldur gæti valið snúist
um að fólk færi frekar til útlanda til
þess að læra flug,“ segir Matthías.
Hann bætir við að hefðu stjórn-
málamenn verið hliðhollari flugi
væri hér líklega að finna flugsafn á
Reykjavíkurflugvelli og öfluga
kennsluaðstöðu þar sem hægt væri
að þjálfa erlenda flugmenn. Matt-
hías nefnir sem dæmi að slík starf-
semi sé á höfuðborgarsvæðinu, en í
Hafnarfirði. Töluvert sé um að er-
lendir flugmenn sæki þangað í nám.
Gríðarleg vaxtartækifæri
Matthías og Friðbjörn Orri vilja
þó frekar á þessum tímamótum
leggja áherslu á þá grósku og þau
tækifæri sem leynist í fluginu á Ís-
landi. „Það eru gríðarleg vaxtar-
tækifæri,“ segir Matthías. Tækifær-
in velti þó ekki á ferðamanna-
straumnum til landsins, heldur
snúist þau aðallega um leiðakerfið
sem flugfélögin eru að byggja yfir
Norður-Atlantshafið og flutning far-
þega þar yfir. Íslensk félög séu
komin með um 2% hlutdeild á þeim
markaði. „Ef menn vildu gætu
menn horft lengra. Tækifærin eru
klárlega til staðar,“ segir Matthías.
„En til þess þarf öfluga grasrót og
innviði til þess að styðja við slíkan
vöxt. Á það hefur skort á síðustu ár-
um.“
Mikil tækifæri leynast í fluginu
Flugmálafélag Íslands 80 ára á fimmtudaginn Markmið félagsins að vekja áhuga á flugmálum
og efla flugöryggi Áhugi Íslendinga á flugi er í hæstu hæðum Styrkja þarf innviði flugsins
Morgunblaðið/Þórður
Flugmálafélag Íslands 80 ára Þeir Friðbjörn Orri Ketilsson, varaforseti Flugmálafélags Íslands, og Matthías Svein-
björnsson, forseti, telja mikil tækifæri leynast í flugmálum hér á landi. Hins vegar þurfi að styðja við innviði þess.
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Áttatíu ár voru liðin á fimmtudag-
inn frá því að Flugmálafélag Íslands
var stofnað, en innan vébanda þess
starfa nær öll félög, samtök og hóp-
ar sem tengjast flugstarfsemi og
flugíþróttum á Íslandi í dag. Þá hef-
ur félagið frá upphafi lagt áherslu á
að efla flugöryggi hér á landi.
„Markmiðið með félaginu, sem hef-
ur ekki breyst í öll þessi ár, er að
vekja áhuga á flugmálum og fræða
almenning og upplýsa um það sem
er að gerast í flugheiminum,“ segir
Matthías Sveinbjörnsson, forseti fé-
lagsins. „Það hefur verið með kynn-
ingar, hvatt einstaklinga til að sinna
flugmálum, stutt við og styrkt flug-
sport og fleira.“
Áhugi á flugi mikill
hér á landi
„Ég myndi segja að staða flugsins
væri mjög góð á Íslandi,“ segir
Matthías. „Flugið er mjög stór hluti
af íslensku hagkerfi, það eru mjög
margir sem hafa atvinnu af flugi.“
Þá sé mikil gróska í öllu flugi. „Al-
menningur er áhugasamur um
flug,“ segir Matthías og bætir við
því til stuðnings að hérlendis séu
um fimm sinnum fleiri flugmenn á
íbúa en í Bandaríkjunum, sem þyki
mikil flugþjóð. Mjög margir af þeim
séu einkaflugmenn.
Eitt af hlutverkum Flugmálafélagsins er að glæða áhuga almennings á
flugmálum, og hefur félagið í því skyni haldið árlegar flugsýningar á
Reykjavíkurflugvelli auk þess sem það hefur staðið fyrir Flughátíðinni á
Hellu. Matthías segir að fyrsta flugsýningin hafi farið fram mjög fljótlega
eftir stofnun félagsins. Sýningin var haldin á Sandskeiði, af því að þá
voru engir flugvellir til staðar og komu menn þar langt að.
Matthías segir að þessir viðburðir séu ávallt vel sóttir. „Flugsýning-
arnar á Reykjavíkurflugvelli hafa kveikt áhugann hjá ansi mörgum, að sjá
vélarnar, geta skoðað þær og snert,“ segir Matthías og bætir við að ein
fyrsta minning sín sé af slíkri sýningu. Friðbjörn Orri skýtur inn í að þetta
séu líklega stærstu flugsýningar í heimi, miðað við höfðatöluna frægu!
ÝMSUM RÁÐUM BEITT TIL AÐ GLÆÐA ÁHUGANN
Flugsýning á Reykjavíkurflugvelli Flugmálafélagið hefur staðið fyrir flug-
sýningum um langt árabil. Þær eru gjarnan mjög vel sóttar.
Stærstu flugsýningar í heimi?