Morgunblaðið - 27.08.2016, Page 24

Morgunblaðið - 27.08.2016, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það er ys og þys á hinum gamalgróna basar Thorvaldsensfélagsins við Austurstræti. Við af- greiðslu eru félagskonur og ein þeirra afgreiðir þýska ferðamenn sem heillast hafa af íslenskum prjónapeysum sem félagið býður til sölu. Ferða- langarnir hafa ekki hugmynd um að konan í af- greiðslunni var, þar til nýlega, forsætisráð- herrafrú Íslands og að fyrir tæpum fimm mánuðum voru fjármál hennar umfjöllunarefni allrar heimspressunnar. Anna Sigurlaug Pálsdóttir stendur reglulega vaktina hjá Thorvaldsensfélaginu sem er eitt elsta félag landsins, stofnað árið 1875. Þar fetar hún í fótspor móður sinnar og ömmu sem báðar hafa helgað félaginu krafta sína. Þegar ferða- langarnir eru á brott fær blaðamaður tækifæri til að setjast niður með Önnu Sigurlaugu en hún hefur ekki tjáð sig við fjölmiðla frá því að eigin- maður hennar vék úr embætti forsætisráðherra í kjölfar umræðu um hin svokölluðu Panama- skjöl en í þeim var að finna upplýsingar sem tengdust eignum hennar. Hún segir að pólitískir andstæðingar eigin- manns hennar hafi lengi reynt að gera hann tor- tryggilegan vegna þeirra miklu fjármuna sem hún eignaðist við söluna á Toyotaumboðinu sem faðir hennar og móðir stofnuðu í upphafi átt- unda áratugarins. „Pabbi gaf okkur systkinunum hlut í fyrir- tækinu á sínum tíma og þó ég viti það ekki fyrir víst þá tel ég að hann hafi ákveðið að gera það af þeirri ástæðu að hann hefur mikla þörf fyrir að deila góðum hlutum með öðrum og veita öðrum tækifæri til að njóta ávaxta erfiðis síns. Æskuár hans hafa ábyggilega mótað hann að þessu leyti. Þegar hann var tólf ára voru báðir for- eldrar hans fallnir frá og amma hans tók hann að sér en hún lést tveimur árum síðar. Hann stóð því eftir nær munaðarlaus og var í vist á mörgum stöðum. Ég held að þetta hafi mótað hann mjög sem manneskju og hann lagði því mikið upp úr því að láta aðra njóta hlutanna með sér. Og raunar á þetta einnig við um mömmu að mörgu leyti því hún kemur úr fjöl- skyldu sem alltaf þurfti að hafa mikið fyrir hlut- unum.“ Hún segist hafa orðið vör við það í kjölfar þess að Sigmundur hóf þátttöku í pólitík að eignir hennar og fjölskyldunnar hafi verið milli tannanna á fólki. Hún segist skilja það að nokkru leyti en að í því tilliti sé rétt að halda til haga að ekki sé allt satt sem gangi manna í mill- um. Mikið hefur verið gert úr ágreiningi innan fjölskyldunnar og að sannarlega hafi ólík sjón- armið verið uppi varðandi ákveðna þætti í tengslum við rekstur fjölskyldufyrirtækisins en að það hafi allt verið leitt farsællega til lykta. „Pabbi hefur alltaf viljað gera vel við alla og það getur verið erfitt eins og allir vita. Í tiltekn- um málum vorum við systk- inin ekki sammála. Við systkinin erum bæði lík og ólík og við höfum orðið sátt um að vera sammála um sumt og annað ekki. Á milli okkar er hins vegar allt gott í dag.“ Þegar ákveðið var að selja fyrirtækið árið 2005 var Anna Sigurlaug nýorðin þrí- tug og stóð allt í einu uppi með mikla fjármuni. „Þegar ég allt í einu stóð uppi með miklar eignir þá leitaði ég ráðgjafar hjá Landsbankanum og þeir aðstoðuðu mig við að ávaxta þessa fjármuni og á grundvelli ráð- gjafar frá bankanum stofnaði bankinn í Lúx- emborg félag sem hélt utan um þá. Á þessum tíma vorum við Sigmundur búsett úti í Oxford og vorum ekki á leiðinni heim. Við tókum hins vegar ákvörðun um að snerta ekkert á þessum peningum næstu tvö árin. Við höfðum ekki áhuga á að breyta þeim takti sem líf okkar var í á þessum tíma. Við ákváðum einfaldlega að halda áfram að lifa lífinu eins og þessir peningar hefðu ekki komið til.“ Anna Sigurlaug lagði mikla áherslu á það í samskiptum við bankann að meðferð fjármun- anna stæðist alla skoðun og hafnaði hún meðal annars tillögum frá bankanum um að fresta skattlagningu af hluta hagnaðarins af sölu fyr- irtækisins sem þó var heimilt að lögum. Fyrr á þessu ári kom fram opinberlega að á árunum 2007 til 2015 greiddu þau hjónin tæpar 300 milljónir króna í skatt, eða um 400 milljónir á núvirði. Örlagaríkt viðtal í Ráðherrabústaðnum Það var fátt sem benti til þess að föstudagur- inn 11. mars yrði örlagapunktur á pólitískum ferli Sigmundar Davíðs. Þann dag hafði hann boðið fulltrúum sænska ríkissjónvarpsins til fundar við sig í Ráðherrabústaðnum þar sem ætlunin var að ræða ýmis mál sem búið var að útlista fyrirfram, meðal annars viðsnúning í ís- lensku efnahagslífi og bólu á fasteignamarkaði. Anna Sigurlaug segir að það hafi þó breyst þegar í ljós kom að tilefnið sem blaðamenn- irnir höfðu gefið upp var aðeins yfirvarp. „Sigmundur hringdi í mig strax að loknu viðtal- inu og honum var greini- lega brugðið yfir fram- komu sjónvarpsmannanna. Við hittumst í Ráðherra- bústaðnum og hann sagði mér frá því hvernig þetta hefði gengið fyrir sig. Fyrst í stað fannst mér þetta ekkert stórmál því við höfðum allt okkar á hreinu í þessum málum og pólitískir andstæðingar Sigmundar hafa oft- ar en ekki reynt að koma höggi á hann út af þessum eignum án þess að þeir hefðu erindi sem erfiði. En svo fann ég hvað honum leið illa yfir þessari framkomu. Það er ekki margt sem kemur honum úr jafnvægi en hann á það til að treysta fólki of vel og var miður sín yfir að hafa verið beittur svo ósvífnum blekkingum.“ Þau voru þó staðráðin í því að láta málið ekki Morgunblaðið/RAX Staðreyndirnar virtust litlu sem engu máli skipta Þegar Anna Sigurlaug Páls- dóttir stóð á þrítugu eignaðist hún mikla fjármuni í tengslum við sölu Toyotaumboðsins á Ís- landi. Þá grunaði hana ekki að rúmum áratug síðar yrðu sak- leysislegar ákvarðanir sem lutu að utanumhaldi þeirra eigna að stóru deilumáli í íslenskum stjórnmálum sem að auki myndu grípa athygli umheims- ins og leiða til þess að maður hennar vék úr stóli forsætis- ráðherra. ’ Það eru mál sem brenna á mér í kjöl- far þeirrar reynslu sem ég hef öðlast á þessum árum sem Sigmundur hefur setið á þingi og verið í ráðherraembætti.  SJÁ SÍÐU 26

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.