Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.08.2016, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Hverfisgötu 105 www.storarstelpur.is Munið bílastæði á bak við hús Við erum á facebook SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Það er alveg ótrúlegt hvað minn- ingargreinarnar í Morgunblaðinu hjálpuðu mér mikið við leitina. Þær eru alveg stórkostlegar! Þið megið ekki hætta að birta þær! Þar eru upplýsingar sem hvergi annars staðar er að finna.“ Þetta segir Haf- steinn Jónsson um leið og hann sýn- ir blaðamanni fjölda ljósmynda frá fyrri hluta síðustu aldar. Þær komu óvænt í ljós í pappakassa sem hann fékk í hendurnar þegar faðir hans, Jón Snorri Bergsson, lést fyrir nokkrum árum, en myndirnar hafði föðurafi Hafsteins, Bergur Jónsson, bílstjóri og síðar pípulagningameist- ari, tekið. Í kassanum voru líka margar gulnaðar úrklippur úr ís- lenskum blöðum frá fyrri tíð sem límdar höfðu verið inn í möppu. „Ég hafði lengi ætlað mér að gera eitthvað við þetta efni,“ segir Haf- steinn sem er tæknifræðingur að mennt og hefur verið búsettur í Karlstad í Svíþjóð um langt árabil og starfar þar sem framkvæmda- stjóri við ljósleiðarafyrirtæki. Ljós- myndirnar voru hins vegar óárenni- legar við fyrstu sýn, óflokkaðar í umslögum og sumar í albúmi þar sem heldur var ekki gott að átta sig á tíma og samhengi. Nöfn voru á fæstum myndanna. Hjálp á netinu „Að gamni ákvað ég að setja eina mynd af afa í gömlum bíl inn á síðu fyrir gamlar íslenskar ljósmyndir á Facebook,“ segir Hafsteinn. „Mynd- in er tekin fyrir utan hús með skilti sem á stendur „Bifreiðastöð.“ Mig minnti að afi hefði verið að vinna hjá Bifreiðastöð Steindórs, því ég man að hann sagði eitthvað um Steindór í einni af mörgum heimsóknum til hans í gamla daga. Ég skrifaði við myndina að þarna væri afi minn á bílaplaninu hjá Steindóri. Fljótlega fékk ég að vita að bifreiðin er Buick árgerð 1925. Einhver spurði hvort myndin gæti mögulega verið tekin í Hafnarfirði. Hvort ekki sæist í þak- ið á Hótel Hafnarfirði? En hvað ætti afi svo sem að hafa verið að gera þar? Ég skoðaði myndirnar betur og fann fleiri sem voru teknar á sama stað. Á einni gat ég lesið „Brauð og kökur“ og símanúmerið 32. Ég fór að leita á netinu og fann bakarí Garðars Flygenring í Hafn- arfirði. En af hverju var afi þar? Svo uppgötvaði ég að Garðar var líka bílstjóri. Voru Garðar og afi að vinna saman? Næst fann ég út að í Hafnarfirði var á þessum tíma bif- reiðastöð sem hafði sama símanúm- er og Garðar bakari, nefnilega Bif- reiðastöð Sæbergs. Ég hringdi í eldri bróður minn og við reyndum að rifja saman upp minningar okkar frá samtölum við afa sem lést árið 1974. Eitthvað hafði hann sagt um Hafnarfjörð. En var hann að vinna þar? Og hvað var þetta sem hann sagði um Steindór? Ja, hann fór að minnsta kosti aldrei með leigubílum frá Steindóri, hringdi alltaf í Hreyfil eða Bæjarleiðir. Svo fletti ég úr- klippubókinni og sá að ein grein- anna fjallaði um Sæberg. Þegar ég setti aðra ljósmynd inn á Facebook- síðuna var mér bent á að afi hefði skrifað minningargrein um Sæberg. Og nú fór þetta smám saman að púslast saman. Ég uppgötvaði meira um þessa gömlu bifreiðastöð og bakaríið. Ég fann fjölda mynda af Sæberg og Jóhönnu konu hans. Ég las um samkeppnina á milli Sæ- bergs og Steindórs og áttaði mig nú á hvað afi hafði verið að fara. Ég setti mynd af mótorhjóli með hlið- arvagni á vefinn og einhver þekkti afa þar í vagninum. Á annarri mynd þekkti einhver flakkara sem fyrr á árum fór um Gullbringu- og Kjós- arsýslu. Ég náði sambandi við ætt- ingja fólks sem er á myndunum. Þetta var innblásturinn sem ég þurfti til að hefja það verkefni að flokka og skrá allar myndirnar hans afa og afla upplýsinga um fólkið á þeim og söguna að baki,“ segir Haf- steinn. Bók fyrir fjölskylduna Hafsteinn hefur samið bók þar sem hann safnar myndum afa síns saman og birtir upplýsingar um þær og bætir við ýmsu öðru efni úr fór- um fjölskyldunnar.Verkið hefur ekki verið gefið út og er aðeins til í nokkrum eintökum sem ætluð eru börnum hans og barnabörnum og bræðrum hans og fjölskyldum þeirra. En hann var fús að segja Morgunblaðinu söguna að baki myndanna í stuttri heimsókn til Ís- lands, enda hafi það ekki síst verið blaðinu og gagnasafni þess að þakka að honum tókst að skapa heillega mynd úr þeim brotum sem hann hafði þegar hann hófst handa um verkið. Rannsókn Hafsteins leiddi í ljós að Bergur afi hans, fæddur árið 1900, var einn af frumherjunum þegar bílaöld gekk í garð á Íslandi í byrjun 20. aldar. Hann var aðeins 21 árs gamall þegar hann eignaðist sinn fyrsta bíl, Overland módel 4 með númerið RE-224. Á þessum tíma voru aðeins rúmlega 200 bif- reiðar á öllu landinu. Samt var Bergur kominn af fátæku fólki og þurfti að vinna fjölbreytileg störf þegar hann var ungur í stað þess að ganga menntaveginn. Það var ekki fyrr en hann var orðinn fullorðinn að hann gat lagt stund á iðnnám og varð pípulagningameistari. Brautryðjandi bílaaldar En hvernig gat Bergur eignast bíl svona ungur og efnalaus? Hafsteinn telur líklegt að Þorleifur, annar eldri bræðra hans, hafi hjálpað hon- um við kaupin. Þorleifur þótti hörkutól, sótti sjóinn og kom undir sig fótunum með dugnaði og vinnu- semi. Og hugmynd Bergs var ekki að rúnta um bæinn á bílnum til að sýna sig og sjá aðra. Nei, bílinn átti Bílferðir þriðja áratugarins  Fjöldi ljósmynda af ferðalögum um Ísland í upphafi bílaaldar kom í leitirnar í Svíþjóð  Notaði minningargreinar Morgunblaðsins til að afla upplýsinga um afa sinn og ljósmyndir hans Ljósmyndir/Úr safni Bergs Jónssonar/Hafsteins Jónssonar. Bílstjórar Berthold Sæberg, athafnamaður, við Overland-leigubifreið sína árg. 1918. Um tíma hafði Hafnarfjarðarstöð hans útibú við Lækjartorg í Reykja- vík þar sem myndin er tekin. Bílstjórar voru fínir í tauinu og nutu virðingar í samfélaginu. Bergur Jónsson bílstjóri kemur gangandi fyrir aftan bílinn. Í gjánni Leigubílar úr Reykjavík í Almannagjá á Þingvöllum. Sjálfsagt þótti að aka þar niður fyrr á árum. Akstur til Þingvalla naut mikilla vinsælda. Glaðir í bragði Nýr bíll í flota bifreiðastöðvarinnar í Strandgötu í Hafn- arfirði, Nash árg. 1927. Berthold Sæberg lengst t.v. og Bergur á húddinu.  SJÁ SÍÐU 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.