Morgunblaðið - 27.08.2016, Page 44

Morgunblaðið - 27.08.2016, Page 44
44 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. FJÖLNIR-FYLKIR Á EXTRA-VELLINUM 28. ÁGÚST KL. 18:00 Fyrstu 50 áskrifendurnir fá tvo miða á leikinn. Mættu á völlinn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu við innganginn til að fá miða. MOGGAKLÚBBURINN BÝÐUR ÁVÖLLINN! FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA 27. ágúst 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 116.23 116.79 116.51 Sterlingspund 153.36 154.1 153.73 Kanadadalur 90.05 90.57 90.31 Dönsk króna 17.608 17.712 17.66 Norsk króna 14.138 14.222 14.18 Sænsk króna 13.825 13.907 13.866 Svissn. franki 120.14 120.82 120.48 Japanskt jen 1.1565 1.1633 1.1599 SDR 163.13 164.11 163.62 Evra 131.13 131.87 131.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.1309 Hrávöruverð Gull 1324.9 ($/únsa) Ál 1624.0 ($/tonn) LME Hráolía 49.03 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Vísitölumæling Hagstofunnar fyrir júlí sýnir að verðlag hefur hækkað um 0,34% frá fyrra mánuði. Jafngildir þetta að 12 mánaða verðbólga sé 0,9% en sé húsnæðisliður vísitölunnar dreginn frá er verðhjöðnun í landinu síðastliðna 12 mánuði, sem nemur 0,9%. Í upplýsingum frá Hagstofu segir að sumarútsölum sé víða lokið og verð hafi hækkað á fatnaði og skóm um 6,6% frá fyrra mánuði og það hafi áhrif til hækk- unar vísitölunnar sem nemur 0,25%. Kostnaður við búsetu í eigin húsnæði hafi hækkað um 1,5% sem hafi 0,23% áhrif á vísitöluna til hækkunar. Þá hafi verð á bensíni og olíum lækkað um 4,1% sem hafi áhrif til lækkunar vísitölu um 0,15%. Jafnframt að verð á bílum hafi lækkað um 2,1% sem lækki vísitölumæl- inguna um 0,13%. Þessi vísitölumæling er aðeins yfir því sem greiningardeildir viðskiptabank- anna spáðu um miðjan mánuðinn. Íslandsbanki og Arion banki spáðu 0,8% ársverðbólgu og Landsbankinn spáði 0,7% verðbólgu á sama tímabili. Verðbólga undir 1% þrátt fyrir útsölulok gilda um fjárfestingar sjóðsins í þeim félögum þar sem sjóðurinn á verulegan eignarhlut. Vilja láta gott af sér leiða „Við viljum vera virkir hluthafar í þeim félögum og láta gott af okkur leiða og veita þessum félögum aðhald varð- andi stjórnarhætti og fleira sem okkur finnst mega bæta.“ Árni segir að lífeyr- issjóðurinn skipti sér ekki af daglegum rekstri félaganna heldur vilji að góðum stjórnarháttum sé fylgt og hluthafar séu upplýstir um það sem skiptir máli. „Undanfarin tvö ár höfum við verið virkir á hluthafafundum bæði með til- lögugerð og málflutingi. Eins í sam- skiptum við stjórnarformenn félaga í aðdraganda hluthafafunda.“ Hann segir lífeyrissjóðinn fara yfir allt regluverk félaganna sem um ræðir, svo sem starfsreglur, stjórnarhátta- yfirlýsingar, starfskjarastefnur og skýrslur um framkvæmd þeirra, til- lögur fyrir hluthafafundi og aðra upp- lýsingagjöf frá félögum. Árni segir jafnframt að lögð sé áhersla á að tillögur fyrir hluthafa- fundi séu vel röstuddar og ekki um- fangsmeiri en ástæða er til. Það eigi ekki síst við þegar um er að ræða ráð- stöfun hlutafjár, svo sem hækkun, kaup eigin hluta eða veitingu kaup- rétta. „Við höfum frá árinu 2013 verið í umfangsmikilli vinnu við að yfirfara relguverk þeirra félaga sem við höf- um fjárfest í. Til viðbótar höfum við um árabil gefið fólki kost á að skrá sig hjá okkur hafi það áhuga á að setjast í stjórnir og metum þá með faglegum hætti ef við teljum ástæðu til að skipta okkur af stjórnarkjöri. En oft styðjum við þær stjórnir sem eru fyr- ir og erum ekki sérstaklega að koma okkar fólki að heldur bara með fag- legum hætti að finna hæfa einstak- linga.“ Árni segir að á aðalfundum félaga á árinu 2016 hafi Gildi lagt fram tillögur varðandi hlutabréfatengd réttindi í starfskjarastefnum hjá Sjóvá-Al- mennum, Eimskipafélaginu, HB Granda og Regin. Þessar tillögur hafi í meginatriðum gengið út á að hlut- hafar eigi aðild að ákvörðunum um hlutabréfatengd réttindi til stjórn- enda og starfsmanna. „Gildi lagði einnig fram tillögur varðandi heimildir til kaupa á eigin hlutabréfum á aðalfundum Sjóvá-Al- mennra, Reita, Eimskipafélagsins og HB Granda hf. Þær tillögur sneru að viðskiptum með eigin hlutabréf og að þau fari ávallt fram á jafnræðisgrund- velli fyrir alla hluthafa með formleg- um hætti þar sem framkvæmd við- skipta liggur fyrir fyrir fram.“ Veita félögum meira aðhald Gildi Sá fyrsti sem birtir hvernig hann greiðir atkvæði á hluthafafundum.  Gildi beitir sér til áhrifa sem eigandi í félögum á markaði  Fyrstur lífeyrissjóða til að birta upplýsingar um atkvæði og tillögugerð  Gagnsæi haft að leiðarljósi BAKSVIÐ Jón Þórisson jonth@mbl.is Lífeyrissjóðurinn Gildi mun eftirleiðis birta upplýsingar um atkvæðagreiðslu og tillögugerð sjóðsins á aðalfundum skráðra hlutafélaga. Er þetta í sam- ræmi við hluthafa- stefnu sjóðsins til að auka gegnsæi um störf sjóðsins sem hluthafa. Gildi er fyrsti lífeyris- sjóðurinn sem birt- ir slíkar upplýsing- ar með þessum hætti. „Þetta er fram- hald af vinnu við hluthafastefnu okkar sem við höfum lagt mikla áherslu á undanfarin ár,“ segir Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gildis. „Markmið Gildis er meðal annars að beita sér sem eig- andi í félögum þar sem sjóðurinn er hluthafi í þeim tilgangi að stuðla að langtímahagsmunum og sjálfbærni þeirra og ábyrgum stjórnarháttum. Við viljum líka stuðla að auknu gegnsæi og ábyrgð sem eigendur og fjárfestar á markaði.“ Árni segir hluthafastefnu Gildis Árni Guðmundsson Hagnaður Eimskipafélags Íslands nam 8,8 milljónum evra á öðrum fjórðungi ársins, eða sem svarar til 1,2 milljarða króna á núverandi gengi. Þetta er 59% meiri hagnaður en á sama ársfjórðungi í fyrra. Rekstrartekjur drógust saman um 0,4% á milli ára og námu 126,1 milljón evra. Á sama tíma drógust rekstrar- gjöld enn meira saman, eða um 3,0% miðað við annan ársfjórðung í fyrra. Þetta leiddi til þess að rekstrarhagn- aður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, jókst um 22% á milli ára og nam 16,2 milljónum evra á síðasta árs- fjórðungi, jafngildi 2,1 milljarðs króna. Hagnaður Eimskips á fyrri árshelm- ingi nemur 10,6 milljónum evra sem er 50,6% aukning á milli ára. Eigin- fjárhlutfall var 62% í lok júní. Gylfi Sigfússon, forstjóri, segir í afkomutilkynn- ingu til Kauphallar að Eimskip stefni að því að ljúka á þriðja og fjórða ársfjórðungi kaup- um á nokkrum fyr- irtækjum í Evrópu sem falla undir kjarnastarfsemi félagsins. „Félagið er nú í samstarfi við alþjóðleg lögfræði- og endurskoðunarfyrirtæki til að ljúka áreiðanleikakönnunum,“ segir Gylfi. „Eins og áður hefur komið fram er það áfram markmið okkar að vaxa, bæði með innri vexti og með kaupum á fyrir- tækjum sem falla að starfsemi félagsins og auka virði þess.“ Hagnaðaraukning hjá Eimskip Gylfi Sigfússon Viðskiptavinir fjármálafyrirtækisins Fossa munu fá beinan markaðsaðg- ang að meira en 50 kauphöllum víða um heim, samkvæmt samkomulagi sem Fossar hafa gert við danska bankann Saxo Bank. Þannig verður hægt að eiga bein viðskipti því sem næst hvar og hvenær sem er, í gegn- um borðtölvu eða fartölvu, spjald- tölvu og snjallsíma, segir í tilkynn- ingu frá Fossum. Jafnframt segir að samkomulagið veiti aðgang að yfir 30 þúsund fjár- festingakostum, svo sem í hlutabréf- um og skuldabréfum, gjaldeyri og skráðum verðbréfasjóðum. Beini aðgangurinn að þessum fjár- festingakostum verður í gegnum heimasíðu Fossa og verður þjón- ustan aðgengileg á næstu vikum. Samstarf þetta er hluti af stefnu Fossa um að aukna áherslu á al- þjóðlega starfsemi í kjölfar vænt- anlegrar losunar fjármagnshafta. Morgunblaðið/Eggert Fossar Haraldur Þórðarson, forstjóri. Aðgangur að yfir 50 kauphöllum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.